Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Page 5
4 Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
5
Vinnubúðir voru settar upp við brúna í Kjós í byrjun
september. Stefnan var að halda brúnni opinni eins
lengi og hægt var. „Við unnum ýmsa undirbúningsvinnu
fyrst, mokuðum í bílaplan fyrir norðan brúna til að búa
til góðan púða fyrir þungan krana sem þurfti í verkið.
Við losuðum rær sem hægt var að losa og söguðum í
sundur brúargólfið svo auðveldara væri að hífa það í
burtu,“ lýsir Fjölnir og bætir við að flokkurinn hafi átt í
góðu samtali við landeigendur, nágranna, sveitarfélagið
og veiðifélagið en Laxá í Kjós er mikil laxveiðiá og því
mikilvægt að ekki yrði mikið rask.
Brúnni var svo lokað vegna framkvæmda
19. september og bílum beint um hjáleið á
Kjósarskarðsveg og Meðalfellsveg. „Við byrjuðum á
því að rífa alla yfirbyggingu brúarinnar, netmottur,
timburgólf, gömul vegrið og slíkt. Síðan hafði safnast
mikil mold ofan á steypta hluta brúarinnar og henni
þurfti að moka burt. Við höfðum aðeins áhyggjur af
því að það hefði áhrif á laxveiðina en veiðifélagið
sannfærði mig um að það væri bara gott fyrir þá að fá
svona lífræn efni í ána,“ lýsir Fjölnir.
Næst var að styrkja brúna með stálbitunum fjórum,
þá voru gólfflekarnir hífðir ofan á stálbitana og
vegriðsstoðir settar upp. Þegar þessu var lokið
var hægt að opna fyrir umferð um brúna að nýju
miðvikudaginn 28. september og var brúin því aðeins
lokuð í tíu daga. „Viðgerðunum var þó alls ekki lokið
og eftir opnun settum við á slitlagsgólf og netmottur
ásamt því að ganga frá vegriðum. Eins þurfum við að
vinna í hallanum í landinu í kringum brúna þar sem hún
hækkaði um 30 cm vegna stálbitanna.“
Næsta verkefni brúavinnuflokksins er að taka
niður vegrið á Borgarfjarðarbrúnni og setja í staðinn ný
Securo vegrið sem standast allar nútíma öryggiskröfur.
Á næsta ári stendur svo til að snúa aftur að brúnni yfir
Laxá í Kjós og laga þá steyptu stöplana undir brúnni.
← Einn af fjórum stálbitum hífður á brúna.
↙ Frá byggingu brúarinnar, fyrir 90 árum.
↓ Brúavinnuflokkurinn frá Vík. F.v. Garðar Ingvar Geirsson,
Sigurjón Karlsson, Sævar Halldórsson, Guðmundur Jónsson,
Birgir Þór Brynjarsson og Fjölnir Már Geirsson.