Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Blaðsíða 13

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Blaðsíða 13
12 Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. 13 Rannsókna- og þróunarstarf er mikilvægur þáttur í starfsemi Vegagerðarinnar þar sem það styður við það hlutverk stofnunarinnar að byggja upp og sjá um vegakerfi landsins á sem hagkvæmastan hátt. Einnig eru þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi. Því styður Vegagerðin við rannsóknastarf, innanlands sem og utan, og tekur virkan þátt í erlendu rannsóknasamstarfi. Markmið með þátttöku Vegagerðarinnar í erlendu samstarfi á sviði rannsókna og þróunar eru m.a. að: → Afla nýrrar þekkingar og reynslu → Fylgjast með þróun og færa hana inn í landið → Miðla eigin þekkingu og reynslu. Um þessar mundir í NordFoU Meðal verkefna sem unnið er að á vegum NordFoU eru NorDust II (en. Nordic Road Dust Project) sem hófst 2019. Verkefnið tengir saman sérfræðinga í svifryksmengun frá umferð og gatnakerfi. Vegagerðin tekur þátt í því verkefni og eru fulltrúar hennar Páll Valdimar Kolka, sérfræðingur á áætlana- og umhverfisdeild Vegagerðarinnar og Þröstur Þorsteinsson, prófessor í umhverfis og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Áherslan er á gerð líkana til að meta og spá fyrir um loftmengun bæði með líkanagerðinni sjálfri og rannsóknaraðferðum til að meta áhrif nagladekkja, slits á vegum, jarðganga og annarra þátta sem spila inn í svifryksmengun. Íslenski hluti verkefnisins beinist að mælingum á upphleðslu ryks á vegyfirborði og áhrif mótvægisaðgerða. Verkefninu lýkur með lokaskýrslu á næsta ári. Undanfarið hafa verið haldnar vinnustofur um rannsóknir á malbiki, annars vegar, og rannsóknir á áhrifum vega á dreifingu ágengra, framandi tegunda gróðurs, hins vegar. Ráðgert er að Vegagerðin muni taka þátt í rannsóknasamstarfi. Á þessum fundum hafa rannsóknarverkefnin verið skilgreind og verkaskipting ákveðin. Vegagerðin mun taka þátt í þessum rannsóknum ásamt Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands. Á næstunni fer af stað rannsóknarverkefni um kortlagningu ágengra framandi tegunda gróðurs meðfram vegakerfinu með myndgreiningartækni og aðferðarfræði til að draga úr útbreiðslu þeirra. Frekari upplýsingar um NordFoU samstarfið og rannsóknaskýrslur má finna á www.nordfou.org ↑ Merki NordFoU samstarfsins.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.