Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Blaðsíða 14

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Blaðsíða 14
14 Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. 15 Hugmyndin var að kíkja á skjalasafn Vegagerðarinnar en eins og stundum áður fannst þar margt áhugavert en ekkert um það sem leitað var að. Þá beindist leitin að timarit.is. Kílómetrasteinar eða mílusteinar eru fyrirbæri sem eiga sér sögu í þúsundir ára hjá fornum menningarþjóðum. Einingarnar hafa auðvitað verið mismunandi en tilgangurinn alltaf sá sami, að veita vegfarendum upplýsingar um hve langt þeir séu komnir frá tilteknum stað. Þetta er svo rótgróið hugtak í ensku, milestones, að það er nú notað fyrir hvers kyns áfanga. Á Íslandi voru frá öndverðu hlaðnar upp vörður ferðalöngum til leiðsagnar um fjallvegi og væntanlega hafa einhverjar þeirra verið viðmið um það hvernig ferðinni miðaði. En þegar aðeins var farið að bæta vegi umfram troðninga þá hefur fylgt vilji til að merkja vegalengdir samkvæmt erlendri fyrirmynd. Metrakerfið hafði verið tekið upp á Íslandi svo önnur eining en kílómetri virðist ekki hafa verið notuð hér. Reyndar var eitthvað um það á þessum árum að nota orðið röst (ft. rastir) um kílómetra þannig að einhverjir töluðu um rastasteina. Kílómetrasteinar En hvernig voru vegirnir mældir í lengd? Það vill svo skemmtilega til að við eigum greinargóða frásögn af slíkri mælingu Kóngsvegarins frá Þingvöllum austur að Brúarhlöðum sumarið 1907. Það var Sigurður Pálsson síðar vegaverkstjóri sem skráði söguna og er hún birt hér sem rammagrein, aðeins stytt. Hluta Kóngsvegarins má enn sjá í Brekkuskógi í Biskupstungum þar sem hann liggur að Brúará rétt neðan við Brúarfoss. Ég var nýlega beðinn um að grennslast fyrir um heimildir um kílómetrasteina, þ.e.a.s. tilhöggna steina sem árin fyrir og eftir þarsíðustu aldamót voru settir upp meðfram nokkrum þjóðvegum og mörkuðu vegalengd frá tilteknum upphafsstað með 5 km bili. Höfundur: Viktor Arnar Ingólfsson tæknifræðingur → Steinninn úr Reykjadal sem nú er varðveittur á Ystafelli er frábrugðin öðrum kílómetrasteinum þar sem hann hefur verið staðsteyptur. ↓ Atlaskort, 30 km steinn merktur. Hann er nú varðveittur á Ystafelli.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.