Ský - 01.02.1998, Qupperneq 5
I
SKÝ
1
1998
Viðtöl
5 Ekki einangraður sértrúarsöfn-
uður
Tómas R. Einarsson er einn af forsvarsmönn-
um djassklúbbsins Múlans sem hefur yfirgef-
ið Jómfrúna og er farinn á Sólon Islandus
14 Sveitapía að austan
Draumaprins leikkonunnar Ólafíu Hrannar
Jónsdóttur er þykkur, Ijósrauöhærður og með
hvít augnhár. „Ég vil íslenskan mann," segir
hún. Þetta og margt fleira skemmtilegt kemur
fram í hressilegu viðtali Þórdísar Lilju Gunn-
arsdóttur við leikkonuna. Ljósmyndir Páll
Stefánsson.
69 „Jáari“ í Færeyjum
Handboltakappinn Hans Guðmundsson spilar
og þjálfar H-71 í Þórshöfn og stýrir auk þess
vinsælasta kaffihúsi bæjarins.
72 Fleytir sér áfram á súrmjólkinni
Margrét Björgúlfsdóttir hitti manninn á bak
við vöffludeigið í fernunum og Bónussúr-
mjólkina: Jeff Clemmensen, hinn danska
mjólkurbússtjóra Norðfirðinga.
Greinar
11 Yfir 622 þúsund manns
rúmast í verslunarhúsnæði höfuðborgarinnar.
Rökréttast er að telja að verslunarpláss í land-
inu aukist (samræmi við fjölgun íbúanna.
Þannig er það þó alls ekki eins og Ágúst Sæ-
mundsson komst að.
21 6 x Herdís
Ský fékk Herdísi Sigurbergsdóttur, handbolta-
konu í Stjörnunni og landsliðinu og nýkjörinn
íþróttamann Garðabæjar 1997, til þess að
verða einskonar „leir" sem fimm Ijósmyndar-
ar fengu frjálsar hendur um að móta.
28 Sérsveitir björgunarsveitanna
Það er ekki á margra vitorði að fjórar íslensk-
ar björgunarsveitir starfrækja sérsveitir svo-
kallaðra undanfara. Þetta eru harðjaxlar sem
eru jafnan mættir fyrstir á veltvang voðaat-
burða og eru stöðugt í viðbragðsstöðu. Páll
Ásgeir Ásgeirsson skoðaði skipulag þessara
sveita og hvað þarf til að komast í þeirra raðir.
34 Af hverju?
Páll Stefánsson rifjar upp nokkra staði
sem hann hefur heimsótt á heimskringl-
unni og útskýrir af hverju hann langar
þangað aftur.
42 Þar sem lækirnir eru hvítir
í miðju Atlantshafinu liggja Færeyjar
óvarðar fyrir veðri og vindum. Hvar sem
maður er staddur á þessum litlu eyjum er
aldrei lengra en fimm kílómetrar að sjón-
um. Páll Stefánsson og Jón Kaldal heim-
sóttu Færeyjar.
48- Vetrarparadísin Akureyri
62 Blaðauki
Jón Kaldal og Páll Stefánsson fóru í vett-
vangsferð til Akureyrar á dögunum og
skoðuðu nokkra fleti á bæjarlífinu.
Liggur í loftinu
6 Baldur Trausti Hreinsson fetar í
fótspor Ingvars Sigurðssonar í
Meiri gauragangi, leikhúsdálkur
8 Hildur Óttarsdóttir debuterar
með íslenska dansflokknum,
bíódálkur
Milli himins og jarðar
71 Alþjóðlegar konur, Á Hverarönd
og í útsaumi á tíræðisaldri
í hverju tölublaði
63 Frá Flugfélagi íslands
Þjónusta, öryggi og veitingar um borð.
Forsíða
Herdís Sigurbergsdóttir
Ljósmynd: Áslaug Snorradóttir. Sjá bls. 21
SKÝ. 1998, 1. tbl. 2. árg.
Gefið út annan hvern mánuð fyrir farþega
Flugfélags íslands.
Útgefandi: lceland Review.
Ritstjóri: Jón Kaldal.
Ábyrgðarmaður: HaraldurJ. Hamar.
Ráðgjafi ritstjórnar: Thor Ólafsson.
Ljósmyndari: Páll Stefánsson.
Útlit: Erlingur Páll Ingvarsson.
Auglýsingar: Örn Steinsen.
Framkvæmdastjóri: Þorsteinn S. Ásmundsson.
Gjaldkeri: Erna Franklín.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn og auglýsingaskrifstofa hjá lceland Review,
Nóatúhi 17,105 ReykjavTk,
simi: 511 5700, bréfasimi skrifstofu: 511 5701,
bréfasími ritstjðrnar: 551 5711.
Eintaksverð kr. 299.