Ský - 01.02.1998, Síða 14

Ský - 01.02.1998, Síða 14
Verslunarhúsnæði fari fækkandi, en eini staðurinn þar sem íbúum fjölgar er höfuðborgar- svæðið. Ef spá um 3 prósent fólks- fjölgun á næstu fimm árum stenst má búast við því að landsmenn verði 280 þúsund talsins árið 2003. Ef ekki kem- ur til stórfelldra fólksflutninga til eða frá Reykjavík verða íbúar þar þá um 110 þúsund og alls rúmlega 170 þús- und á höfuðborgarsvæðinu. Frá Innréttingum til Internets I Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir því að til komi stórbættar samgöngur til og frá borginni og því leyfa ráðamenn í borginni sér að álykta sem svo að í náinni framtíð eigi eftir að verða til athafnaþríhyrningur höf- uðborgarsvæðisins sem nær frá Borg- amesi til Selfoss og þaðan til Reykja- nesbæjar. I því sambandi er ekki úr vegi að athuga hvemig þróunin hefur verið í verslun á því svæði. Árið 1751 lagði Skúli Magnússon fógeti til Innréttingamar í Reykjavík til þess að treysta forystu Reykjavíkur í trássi við hugmyndir sem uppi voru um að gera Hafnarfjörð að höfuðstað landsins. Með þessum hugmyndum var lagður gmnnur að því að efla versl- un og viðskipti í landinu þannig að hægt væri að skipuleggja þau út frá einum stað. Verslunarfrelsi á Islandi komst ekki á fyrr en 11. september 1816 en eftir það voru skipaferðir til landsins auknar að nokkru leyti. Stjómvöld gerðu sitt ýtrasta til þess að sporna við þéttbýlismyndun, en eftir þrot landbúnaðarsamfélagsins var ekki hægt að koma lengur í veg fyrir það og æ fleiri fluttust til bæjanna með von um betri lífsafkomu. Upp úr þessum aðstæðum fer verslun að mótast að einhverju leyti og farið er að uppfylla nýjar þarfir í breyttu þjóðfélagi. Með ýmsum aðgerðum stjómvalda er upp- vexti frjálsrar verslunar hamlað, en með Viðreisnarstjórninni á sjöunda áratugnum eru lagðar til úrbætur á því og í dag er úrval gæða á markaðinum gríðarlegt, bæði vegna aukins innflutn- ings og síðan vegna nýrra verslunar- hátta, til dæmis í gegnum Intemetið. I Reykjavík heldur miðborgin á- fram að treysta sig í sessi sem aðal- verslunarsvæði borgarinnar. Stærð miðborgarinnar er um 3,2 ferkílómetr- ar og þrífast þar um 1.200 fyrirtæki og stofnanir með alls um 8.000 starfs- menn. Af þessum 1.200 fyrirtækjum og stofnunum eru um 350 verslanir, flestar þeirra eru á Laugaveginum og Bankastrætinu og em fataverslanir al- gengastar. Aukning um 10 prósent fyrir árið 2001 Á níunda áratugnum fer aftur að kom- ast skriður á byggingu verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á höfuðborgar- svæðinu eftir nokkra lægð. Þá var Kringlan byggð, en á einu ári, 1987, eykst framboð verslunarhúsnæðis á svæðinu um 30.000 fermetra. Þetta Samkværnt tölumfrá Fasteignamati ríkisins er talið að í clagséu um 560 þúsundfermetrar í verslunar- og skrifstofu- húsnœði á höfuðborgar- svœðinu. Efþað vœri allt sett samanþá myndiþað náyfir svæðisem væri stœrra en 79 löglegir knattspyrnuvellir. hefur verið ein stærsta framkvæmd á sviði verslunarhúsnæðis í landinu í fortíð og nútíð. En úr því getur ræst á næsta ári ef farið verður út í byggingu 45.000 fermetra verslunarmiðstöðvar við Smáraiind í Kópavogi. Með þeirri framkvæmd og þeim verslunarmið- stöðvum sem nú þegar eru að rísa í Smárahvammslandi mun verslunar- húsnæði á höfuðborgarsvæðinu hafa aukist um meira en 10 prósent rétt eftir aldamótin. Samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins er talið að í dag séu um 560 þúsund fermetrar í verslunar- og skrif- stofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Ef það væri allt sett saman þá myndi það ná yfir svæði sem væri stærra en 79 löglegir knattspyrnuvellir. Líklega eru ekki til nægilega mörg knatt- spymulið í landinu til að spila á öllum þessum völlum í einu. Ólíklegt er að allt þetta húsnæði sé í notkun og sam- kvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur- borgar er reyndar lauslega áætlað að um 50 þúsund fermetrar af verslunar- og skrifstofuhúsnæði (rúmlega 7 knattspyrnuvellir) hafi staðir auðir í borginni árið 1995, en gera má ráð fyr- ir að þessi tala hafi eitthvað breyst síð- astliðin tvö ár. Skipulag fyrir komandi jól Þegar litið er á íbúafjölda á höfuðborg- arsvæðinu í dag og það borið saman við framboð verslunar- og skrifstofu- húsnæðis fæst sú niðurstaða að ef allir 160 þúsund íbúar höfuðborgarinnar kæmu sér fyrir inni í þessu húsnæði hefði hver íbúi um 3,5 fermetra fyrir sig. Það þýðir að hvert mannsbarn á Stór-Reykjavíkursvæðinu gæti komið sér fyrir í hjónarúmi af kóngastærð undir þaki í verslunum á svæðinu. Eða ef annar samanburður er tekinn slagar þessi fermetrafjöldi hátt upp í stærð fangaklefanna í Hverfissteini sem eru flestir um 5 fermetrar að stærð. Ef hinir 112 þúsund Islendingamir af landsbyggðinni kæmu einnig hefði hver íbúi landsins um 2,06 fermetra út af fyrir sig. Þegar sú fermetratala er borin saman við þann mælikvarða sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur notar til að ákvarða leyfilegan fjölda gesta inni á veitingastöðum borgarinnar kemur í Ijós að mun minni þrengsli em í versl- unum og skrifstofum á höfuðborgar- svæðinu en á veitingahúsum borgar- innar þar sem miðað er við 0,9 fermetra á hvem gest. Þetta þýðir aftur að verslunar- og skrifstofuhúsnæði borgarinnar rúmar ríflega 622 þúsund manns ef miðað er við reglur Heil- brigðiseftirlitsins. Það gæti svo orðið enn rýmra um höfuðborgarbúana ef af framkvæmd- um í Smárahvammi verður því þá eykst fermetrafjöldi á hvern íbúa um 0,1. Með þessar niðurstöður að leiðar- ljósi ættu landsmenn allir að kætast vegna þess að ef þeir raða sér skyn- samlega niður á verslanimar í landinu fyrir komandi jól ættu þrengsli og ör- tröð sem oft fylgja innkaupaleiðangri þess árstíma að vera úr sögunni. Agúst Sœmundsson er lausapenni í Reykjavík. 12

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.