Ský - 01.02.1998, Blaðsíða 18

Ský - 01.02.1998, Blaðsíða 18
Lolla ástsælustu leikkonum og hefur kitlað hláturtaugar landans oftar og meira en flestar íslenskar leikkonur um langa hríð. Hún lifir fyrst og fremst í hugum manna sem gamanleikkona og því kemur dálítið á óvart þegar hún segist hafa leikið fleiri alvarleg hlutverk. „í Þjóðleikhúsinu hef ég leikið mun fleiri hlutverk með alvarlegum undir- tóni og mér finnst voðalega gott að skipta gríni og alvöru til hálfs.“ En finnst Ólafíu Hrönn hún sjálf vera fyndin? „Já,“ segir hún og skellihlær. „Það er voða asnalegt að segja það. A þriðja ári í leiklistarskólanum fór ég á kvik- myndanámskeið hjá Kristínu Jóhann- esdóttur, kvikmyndaleikstjóra, og það var í fyrsta skipti sem ég sá mig leika. Við höfðum tekið upp senu úr Þremur systrum og þegar ég fékk að sjá upp- tökuna fékk ég óstöðvandi hláturskast því mér fannst ég svo fyndin. Hinir skildu ekkert í þessu og spurðu: Hvað? Hvað? Og ég man að ég hugsaði með mér: „Vá, ég er þá svona fyndin eftir allt saman,“ því ég var sko ekkert að reyna að vera fyndin. En ég sé vel af hverju ég kem fólki til þess að hlæja.“ Kallar á sorgina í sjálfri sér Ólafía Hrönn segist hafa verið heppin með hlutverk, en fyrst um sinn hafi hún þráð hlutverk sem krefðist engrar fyndni, hún hefði aldrei reynt að koma því að í leiklistarskólanum að hún væri fyndin og vildi því sýna hvers hún væri megnug án grínsins. Henni varð að ósk sinni og eitt af fyrstu hlutverk- um hennar var hlutverk Magnínu í Heimsljósi nóbelskáldsins. Það var svo ekki fyrr en í áramótaskaupinu 1989 sem kom í ljós hversu ægilega fyndin hún gat verið. „Eg hef verið einstaklega heppin á mínum leiklistarferli. Þegar ég útskrif- aðist fékk ég yndislegt hlutverk í Síldin kemur, síldinfer þar sem ég lék svona týpu sem fólkinu líkar við og svoleiðis allt skiptir mjög miklu máli. Þá man fólk betur eftir manni og lang- ar til að sjá mann aftur.“ Er einhvem tímann erfitt að leika? „Já, það er erfitt að leika þegar maður er ósáttur við eigin frammi- stöðu og eins þegar maður finnur sig ekki í hlutverkinu.“ Hvað gera leikarar til dæmis ef þeir fá skyndilega dmllusting í miðju leikriti? „Ég fékk nú einu sinni svo heiftar- lega magakveisu og ælu í Gauragangi að ég þurfti að ganga út. Það stóð svo- leiðis garðslangan upp úr og niður úr mér. Ég reyndi að lufsast um í sýning- unni, en ég meikaði ekki lokaatriðið. Það hefði kostað bleyju og vesen, þannig að Steinunn Ólína tók laglínur fyrir mig. Það getur verið rosalegt að lenda í svonalöguðu.“ En hvemig er hægt að gráta í hlut- verki sýningu eftir sýningu? „Maður kallar bara á sorgina í sjálf- um sér, það hafa allir einhverja sorg að bera og maður nærir sína eigin sorg. Svo setur maður sorgina saman við það sem maður er að leika og þá smellur þetta oftast. En það er svo skrítið að í stykki sem sýnt er mjög lengi, eins og til dæmis í Taktu lagið, Lóa, þá fer einhvem veginn allt tilfinn- ingakerfið í gang og maður er smám saman á ósjálfráðan hátt kominn inn í sýninguna.“ Ólafía Hrönn segir það aldrei hafa komið fyrir sig að fá óstöðvandi grát- kast og verða þannig til vandræða í leiksýningu, enda væri það afar við- vaningslegt. Ber þá á góma hvort ekki sé algengt að leikarar verði ástfangnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.