Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Side 32

Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Side 32
Kjartan Jónsson: Þann 25. júlí s.l. var opnuð yfirlitssýning á Kjarvalsstöðum á listiðnaði frá Norðurlöndum. Kynntir voru hönnuðir og verk þeirra, sem á sínum tíma hlutu hönnunarverðlaun kennd við Frederik Lunning. Lunning verðlaunin voru veitt á 6. og 7. áratugnum til norrænna hönnuða, en íslendingar komu þar aldrei við sögu. Á sýningunni voru verk 40 hönnuða, en verðlaununum var ávallt veitt til tveggja hönnuða í senn á ári hverju. Flestir þeirra eru ennþá í fremstu röð hönnuða á norðurlöndunum í dag. Það var fróðlegt og skemmtilegt að sjá samankomin svo mörg verk, sem öll hafa til að bera, bæði fágun og listrænt handverk og svo pottþéttan gæðastimpil, að enginn efast um ágæti nokkurs hlutar, frekar en um margheiðraða og orðuberandi höfðingja á efri árum. Sýning sem þessi er ágætlega menntandi og vel til þess fallin að gefa mönnum innsýn í liðinn tíma. Þarna mátti sjá marga gamla kunningja, sem nú eru orðnir klassískir. Það er aftur á móti vart við því að búast að svona sýning hafi bein áhrif á hönnuði nútímans eða virki mótandi á yngri kynslóðina, þar sem þessir hlutir eru ekki lengur í fararbroddi. Þeir hlutir sem vöktu áhuga minn fyrir svolítið fjör voru t.d. nokkrir glermunir saman í skáp: Lake Palace eftir Finnan Oliva Toikka og litrík glös og skál eftir Svíann GunnarCyrén : Piloteroch flickor, sem er svolítið barnslegt og gáskafullt innlegg í alla siðfágunina. Auk þessa mætti nefna norsku leirlistakonuna Hertu Hillfon fyrir fersk tilþrif. Það er oft sagt um íslenska listmálara, að þeir séu nokkuð djarfari í litum og þormeiri en kollegar þeirra á norðurlöndum og sjáist það best þegar norðurlandaþjóðirnar sýna saman. Þetta finnst mér vísbending þess að íslenskir hönnuðir gætu, ef þeir fá 32

x

Hönnun: húsgögn og innréttingar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hönnun: húsgögn og innréttingar
https://timarit.is/publication/1814

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.