Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Page 39
Hér var útveggur dimmrar og lokaðrar eldhússkonsu brotinn niður og
aukið við glerhús-borðkrók út í garðinn. Út um dyr glerhússins má sækja
matjurtir í matjurtargarðinn.
Um samspil húss og ytra
umhverfis þess, er of lítið hugsað í
nútíma arkitektúr, enda segir
viðtekin regla að arkitektarnir eigi
að hætta að hugsa þar sem ytra
borði hússins sleppir. Fólk hefur
þó gert byltingu í þessum málum
með að brjóta op á útveggi og
bæta við glerskálum. Oftast er
þetta aðeins gert út frá stofum, en
getur þó einnig gert flestar aðrar
tegundir af herbergjum
skemmtilegri og notadrýgri, en þau
voru fyrir. Þar sem því er hægt að
koma við ætti sérhvert herbergi að
hafa beinan aðgang að svölum eða
opnu svæði.
Skordýranet
Færanleg jurtahilla
1
Gluggakarmur
N
Skemmtileg nýjung eru hinir svokölluðu gróðurhúsagluggar. Þetta eru
glerkassar, með hillum, sem skrúfaðir eru utan á gluggann. Ekki er enn til
innflytjandi eða framleiðandi að þessu hér á landi, en auðvelt er að fá
þetta smíðað eftir máli.
Tímarnir breytast og eldhúsin með.
Það nýjasta sem hönnuðum og
húsbyggjendum er ráðlagt, er að
ætla heimilistölvunni pláss, þar
sem mataruppskriftir og ýmsar
aðrar upplýsingar geta auðveldlega
verið tiltækar.
39