Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Qupperneq 74
stærri aðila berist fyrirtækjum í
félaginu. Jafnframt er leitast við að
tryggja, að viðteknar reglur um
framkvæmd útboða séu virtar, en á
því hefur stundum orðið
misbrestur. Vafalaust mætti enn
betur gera á þessu sviði, t.d. með
meira samstarfi við hönnuði, sem í
reynd ráða oft miklu um
framkvæmd útboða og val tilboða.
Ekki er hér átt við að veita
innlendum iðnaði sérstök
forréttindi, heldur tryggja að hann
sé ekki sniðgenginn að
ástæðulausu, t.d. vegna skorts á
upplýsingum um vöruframboð og
verkgetu innlendra fyrirtækja.
Samkeppni um hönnun
og húsgagnasýning.
Á undanförnum árum hefur
verið unnið að ýmsum
hagræðingar- og
vöruþróunarverkefnum í
húsgagnaiðnaðinum og hefur
félagið ásamt Landssambandi
iðnaðarmanna tekið þátt í stjórnun
þeirra. Ekkert slíkt verkefni er nú í
gangi. Hins vegar er nú unnið að
verkefni, sem er algjörlega á
vegum félagsins, en það er
samkeppni um hönnun nýrra
húsgagna. Samkeppnin er
skipulögð í tveim þrepum. í fyrra
þrepi skiluðu þátttakendur
tillögum í formi teikninga. í síðara
þrepinu hefur tillöguhöfundum
verið komið í samstarf við
framleiðendur til að smíða
„prótótýpur" að tillögunum og úr
þeim verður endanlega valið til
verðlauna. Samkeppninni lýkur
síðan með sýningu á tillögunum,
sem haldin verður n.k. haust og
þar verða e.t.v. einnig sýndar fleiri
nýjungar í hönnun og framleiðslu.
Markmið samkeppninnar er að
FÉLAC HÚSCACNA-OC
INNRÉTTINCAFRAMLEIÐENDA
Hallveigarstíg 1 • 101 Reykjavík • Sími 621590
Nýtt merki félagsins. Það er teiknað af Arthúr Ragnarssyni,
myndlistarmanni og útfært af auglýsingastofunni P & Ó.
fá fram frjóar hugmyndir, örva
hönnun og vöruþróun og efla
samstarf hönnuða og
framleiðenda. Ekki er vanþörfá
slíku, þar sem starfskraftar
hönnuða hafa ekki nýtst sem skyldi
í iðnaðinum. Af um 70 húsgagna-
og innanhússarkitektum, sem
starfandi eru hér á landi, eru
aðeins sárafáir, sem starfa beinlínis
við hönnun húsgagna og
innréttinga til fjöldaframleiðslu.
Góð hönnun er algjört lykilatriði
að árangri í þessari iðngrein. Hún
verður þó ekki til nema með nánu
samstarfi hönnuða og
framleiðenda, enda þarf bæði að
taka mið af formi og fagurfræði,
sem hönnuðurinn er sérfræðingur í
og forsendum markaðar og
framleiðslu, sem framleiðandinn
þekkir best.
Gæðaprófanir á húsgögnum.
Það hefur lengi verið áhugamál
félagsins, að komið verði á gæða-
og styrkleikaprófunum á
húsgögnum og innréttingum, eins
og tíðkast í flestum
nágrannalöndum. Fyrir allnokkru
síðan hefur verið komið upp
aðstöðu til slíkra prófana hjá
Iðntæknistofnun Islands og hefur
félagið tekið þátt í að móta reglur
fyrir þá starfsemi. Því miður hefur
gengið allt of hægt, að koma
prófunum af stað og gera þær það
j virka markaðstæki, sem þeim var
ætlað að vera. Iðntæknistofnun
hefur skort fjármuni til þessa starfs.
Einnig þarf að tryggja, að
j opinberum stofnunum verði gert
að kaupa aðeins húsgögn og
innréttingar, sem hafa verið
gæðaprófuð af Iðntæknistofnun
eða annarri stofnun, sem hún
I viðurkennir. Sömuleiðis þarf að
fara fram kynning meðal
almennings á slíkum prófunum og
þýðingu þeirra. Það er alls ekki
ætlunin að innleiða boð eða bönn
varðandi kaup almennings á
húsgögnum, heldur er íslenskum
framleiðendum nauðsynlegt að
eiga aðgang að slíkum prófunum,
til þess að væntanlegur kaupandi
geti treyst gæðum vörunnar, enda
flagga erlendir keppinautar óspart
slíkum gæðastimplum.
Gæðaprófanir eru auk þess
nauðsynlegur liður í
vöruþróuninni, því það getur verið
dýrt spaug að hefja framleiðslu á
húsgögnum, sem ekki standast
gæðakröfur. Fyrir fyrirtæki, sem
ætla að ráðast í útflutning, eru
slíkar prófanir bráðnauðsynlegar.
Fræðsluátak í tréiðnaði.
Eitt helsta vandamálið í
húsgagna- og trjávöruiðnaði um
þessar mundir er skortur á vel
þjálfuðu starfsfólki. Aukin
vélvæðing og ný framleiðslutækni
í tréiðnaði gerir kröfur um
menntun aðstoðarmanna við
framleiðslu og sífellda
endurmenntun iðnaðarmanna.
Einnig er þörf á meiri og jákvæðari
kynningu á störfum í iðngreininni.
Að undanförnu hefur félagið ásamt
öðrum hagsmunaaðilum,
Iðntæknistofnun og Iðnfræðsluráði
unnið að svonefndu fræðsluátaki í
tréiðnaði. í því felst annars vegar
undirbúningur fagnáms ófaglærðs
fólks. Þetta nám, sem nú er
nýhafin kennsla í, er skipulagt í
allnokkrum þrepum og í
námskeiðaformi og getur það
endað með sveinsprófi. Síðar er
ætlunin að undirbúa námskeið til
endurmenntunar starfandi
iðnaðarmönnum.
74