Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Page 79

Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Page 79
Á þessari mynd sést hvernig stjórna má lýsingu á einstaka hluta verslunargluggans, til að ná athygli viðskiptavina. Stöðugt eykst skilningur verslunareigenda og hönnuða á mikilvægi góðrar gluggalýsingar. Lýsing í verslunum. Rétt og góð lýsing í verslunum hefur alla tíð verið veigamikill þáttur í að gera verslunina og ekki síður vöruna aðlaðandi fyrir viðskiptavininn. Á síðustu árum hafa farið vaxandi kröfur um stóraukið Ijósmagn og einnig möguleika á að lýsa sérstaklega upp gluggaútsti11ingar, vörurekka og einstakar vörur. Það er augljóst að með mismunandi lýsingu á einstakar vörur í verslunum er hægt að beina athygli viðskiptavinanna að ákveðnum vörutegundum hverju sinni. Rannsóknir hafa sýnt að bein tengsl eru milli réttrar verslunarlýsingar og mikillar sölu. Þar sem áhrif lýsingarinnar getur skapað vellíðan og aukinn áhuga viðskiptavinarins á að kynna sér vöruna nánar. Flúrosent lýsing hefur hingað til verið ráðandi sem verslunarlýsing og notaðar hafa verið kastarabrautir þar sem sérstakrar lýsingar hefur verið þörf. Á síðustu tveimur árum hefur átt sér stað bylting í gerð og uppbyggingu sérlýsingar, þ.e.a.s. kösturum og öðrum tengdum Ijósgjöfum. Sérhannaður lampabúnaður fyrir mismunandi verslanir hefur litið dagsins Ijós. Komnar eru á markaðinn margar mismunandi gerðir halogen kastara, bæði fyrir venjulega spennu og lága spennu. Þessir lampar eru búnir perum sem hafa mismunandi eiginleika til Ijósdreifingar, allt frá afmörkuðum punkti t.d. 8° og allt upp í 50° horn TURNOSTAR r # 'V 50W fkL 050 mm 12V Ul GX5.3 0mrr> lux 700 1500 1500 375 2200 40° 165 50W JJ. 050 mm 12V .U:. GX 5,3 0mm lux 140 14000 280 3500 420 8° 1560 PRIMOSTAR trá staösetningu lampa. Þannig myndast möguleikar á að nota sama lampann til að gefa mismunandi sterka lýsingu á hvort heldur sem er smáan eða stóran hlut. Sérstakir kastarar ætlaðir til lýsingar í verslunargluggum eru nú að ryðja sér til rúms. Þessir kastarar eru yfirleitt útbúnir HQI- TS háþrýstum perum sem gefa mjög mikla lýsingu miðað við orkunotkun. í verslunum er yfirleitt kveikt á Ijósabúnaði nánast allan sólarhringinn og því mikilsvert að sá búnaður sé sem hagkvæmastur hvað varðar orkunotkun. Skilningur verslunareigenda og hönnuða hefur aukist á nauðsyn góðrar lýsingar og hafa þeir í stöðugt auknum mæli leitað til lýsingarhönnuða við val og staðsetningu á lampabúnaði. Vel upplýst verslun með góðum og rétt upplýstum gluggum ætti að vera metnaðarmál hvers verslunareiganda í dag. 79

x

Hönnun: húsgögn og innréttingar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hönnun: húsgögn og innréttingar
https://timarit.is/publication/1814

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.