Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Blaðsíða 79
Á þessari mynd sést hvernig
stjórna má lýsingu á einstaka hluta
verslunargluggans, til að ná athygli
viðskiptavina. Stöðugt eykst
skilningur verslunareigenda og
hönnuða á mikilvægi góðrar
gluggalýsingar.
Lýsing í verslunum.
Rétt og góð lýsing í verslunum
hefur alla tíð verið veigamikill
þáttur í að gera verslunina og ekki
síður vöruna aðlaðandi fyrir
viðskiptavininn. Á síðustu árum
hafa farið vaxandi kröfur um
stóraukið Ijósmagn og einnig
möguleika á að lýsa sérstaklega
upp gluggaútsti11ingar, vörurekka
og einstakar vörur.
Það er augljóst að með
mismunandi lýsingu á einstakar
vörur í verslunum er hægt að
beina athygli viðskiptavinanna að
ákveðnum vörutegundum hverju
sinni. Rannsóknir hafa sýnt að
bein tengsl eru milli réttrar
verslunarlýsingar og mikillar sölu.
Þar sem áhrif lýsingarinnar getur
skapað vellíðan og aukinn áhuga
viðskiptavinarins á að kynna sér
vöruna nánar.
Flúrosent lýsing hefur hingað til
verið ráðandi sem verslunarlýsing
og notaðar hafa verið
kastarabrautir þar sem sérstakrar
lýsingar hefur verið þörf. Á síðustu
tveimur árum hefur átt sér stað
bylting í gerð og uppbyggingu
sérlýsingar, þ.e.a.s. kösturum og
öðrum tengdum Ijósgjöfum.
Sérhannaður lampabúnaður fyrir
mismunandi verslanir hefur litið
dagsins Ijós. Komnar eru á
markaðinn margar mismunandi
gerðir halogen kastara, bæði fyrir
venjulega spennu og lága spennu.
Þessir lampar eru búnir perum sem
hafa mismunandi eiginleika til
Ijósdreifingar, allt frá afmörkuðum
punkti t.d. 8° og allt upp í 50° horn
TURNOSTAR
r #
'V
50W fkL 050 mm
12V Ul GX5.3
0mrr> lux
700 1500
1500 375
2200 40° 165
50W JJ. 050 mm
12V .U:. GX 5,3
0mm lux
140 14000
280 3500
420 8° 1560
PRIMOSTAR
trá staösetningu lampa. Þannig
myndast möguleikar á að nota
sama lampann til að gefa
mismunandi sterka lýsingu á hvort
heldur sem er smáan eða stóran
hlut.
Sérstakir kastarar ætlaðir til
lýsingar í verslunargluggum eru nú
að ryðja sér til rúms. Þessir
kastarar eru yfirleitt útbúnir HQI-
TS háþrýstum perum sem gefa
mjög mikla lýsingu miðað við
orkunotkun. í verslunum er yfirleitt
kveikt á Ijósabúnaði nánast allan
sólarhringinn og því mikilsvert að
sá búnaður sé sem hagkvæmastur
hvað varðar orkunotkun.
Skilningur verslunareigenda og
hönnuða hefur aukist á nauðsyn
góðrar lýsingar og hafa þeir í
stöðugt auknum mæli leitað til
lýsingarhönnuða við val og
staðsetningu á lampabúnaði.
Vel upplýst verslun með góðum
og rétt upplýstum gluggum ætti að
vera metnaðarmál hvers
verslunareiganda í dag.
79