Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 2023, Side 24

Sjómannadagsblaðið - 2023, Side 24
24 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð J ú N Í 2 0 2 3 fór þá að hoppa um borð og leysa af. Svo ári seinna réði ég mig í fast starf.“ Markús varð skipstjóri á dælu- skipinu Perlunni. „Þá hafði ég leyst af um veturinn á fyrsta Herjólfi. Ég var því um borð þegar fólkið byrjaði að flytjast til baka eftir gosið,“ segir hann og hvernig hann hafi fengið tækifæri til að spjalla við eldra fólk sem hafði misst allt og var að koma heim aftur í fyrsta sinn eftir þessar nátt- úruhamfarir. „Eftir að hafa talað við þetta fólk fór ég að hugsa um rannsókn sem ég las í Bretlandi um mestu áföll í lífi fólks. Það mesta er dauðsfall í fjölskyldunni en það næstmesta að vera þvingaður til þess að flytja eins og gerðist þarna. Ég hef oft hugsað að margt þetta fólk hafi dáið fyrir tímann út af þessu áfalli. Það væri áhugavert að sjá það kannað.“ Markús horfir til baka. Margar eftirminnilegar stundir og undur- samlegt að koma til Asíu; Japan, Hong Kong, Filippseyja, Singapúr. „Þessi lönd voru paradís sjómanns- ins fyrir 60–70 árum,“ segir hann. Var það veðrið, maturinn? „Já, og stelpurnar,“ segir Markús. „Og þar var ódýrt. Við lifðum eins og grósserar.“ Hann hafi orðið yfir sig hrifinn. Drukkið menninguna í sig. Listmunir í búðargluggunum. Útskorið fílabein. „Maður stóð stjarfur fyrir utan en átti ekki pening til að kaupa,“ segir hann og lýsir því hvernig launin hafi verið lág þessi fyrstu ár. „Í Noregi gat maður beðið út- gerðina að taka vissan hlut og leggja inn á banka. Það safnaðist saman,“ segir hann og hvernig hann hafi unnið í 4–5 klukku- stundir fyrir dollaranum sem dekksdrengur í upphafi sjó- mannsára sinna. Hafið eða fjöllin? En svo kemur maður alltaf heim. Markús lýsir því hvernig afi hans hafi sagt þegar hann sá fjöllin hverfa á leið sinni til Winnipeg: „Ég kem aftur.“ Hann hafi svo mætt mótstöðu þegar hann mætti aftur og menn upplifað að hann væri kominn aftur til að taka af þeim vinnu. Markús kom einnig aftur. Ekki út af fjöllunum, heldur vegna þess að hann átti góða foreldra og vini sem hann náði að sameina sjó- mannslífinu. „Þau toguðu í mig.“ Og hann heldur í sjómennskuna. Sigldi í fyrra um Panamaskurðinn. „Ég fór með Axel Jónssyni með skipið Janus og hét Börkur NK sem seldur var til Mexíkó,“ segir hann nú á 89. aldursári. Finnur hann ekkert fyrir aldrinum? „Nei, mér finnst ég ekkert vera gamall. Er með starfsþrek og allt,“ segir hann nú þegar aðeins hefur verið tæpt á því helsta á löngum starfsferli. „Ef maður er stýrimað- ur verður maður að geta tekið til höndunum. Það er ekkert hægt að hafa stýrimann sem getur ekki unnið.“ Hann hafi öll réttindi. „Og ég fór í Slysavarnaskóla sjómanna fyrir tveimur árum. Ég er því með réttindi í þrjú ár. Ef einhver vill fá mig til að sigla get ég skaffað læknisvottorð. Ég flýg í gegnum það.“ En er eitthvað sem Markús hefði viljað breyta á langri ævi? „Það var nú einhvern tímann sagt að líf- ið væri núna. Það er núna. Ég hef náð að lifa því þannig. Hef aldrei haft minnstu áhyggjur, aldrei nokkurn tímann. Mig hefur alltaf klæjað að komast af stað.“ »– gag Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn 58 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 1 7 Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á Sjómannadaginn Eggjabúið og kjúklingabúið Hvammur ehf. að sjómönnum sé gert erfitt að skrá slys. Jónas Þór segir að finna megi dæmi um ofangreint. „Skipstjórn- armenn eru misjafnir eins og þeir eru margir. Þess eru því miður dæmi að menn hafi fengið neitun þegar þeir ætluðu að láta skrá atvik. Gjarnan með þeim rökum að það sé ekki hægt að standa í því að skrá öll tilvik, stór sem smá, sem eiga sér stað um borð. Þetta er þó sem betur fer undantekning og ég held að menn séu alltaf betur að átta sig á því hversu mikilvægt þetta er, líka skipstjórnarmenn. Skrán- ingarnar eru til fyrirmyndar hjá mörgum útgerðum en því miður eru til útgerðir þar sem þessi mál eru ekki í eins góðu lagi.“ Þá minnir Jónas Þór á að skylt sé samkvæmt reglum að skrá öll atvik í skipsdagbók, eigi síðar en í lok vaktar. Þá er einnig skylt sam- kvæmt lögum að tilkynna öll slys til Rannsóknarnefndar sjóslysa og til Sjúkratrygginga Íslands. „Ég hef bent á það áður að það eru kannski um fimm prósent slysa tilkynnt til rannsóknarnefndar- innar. Það er mjög sorgleg staða,“ segir Jónas Þór. „Tilgangur rann- sóknarnefndarinnar er ekki síst sá að safna gögnum og byggja þannig upp mikilvægan grunn sem kann að gera mögulegt að fyr- irbyggja slys síðar meir.“ Jónas Þór minnir á að það séu tryggingarfélögin sem séu bóta- skyld en ekki útgerðinar. Það ætti því ekki að vera feimnismál fyrir sjómenn að tilkynna útgerðinni um slys og óhöpp sem verða um borð. „Þetta er trygging sem bæði sjómenn og útgerð greiða fyrir, útgerðin þó meira.“ Um leið hafi þó heyrst af ástæðum fyrir því að einstaka útgerðir kunni að pirrast yfir svona hlutum. „Ef það verða mörg slys þá hækkar iðgjaldið og einhverjar útgerðir eru með eigináhættu og sjálfsábyrgð. En þetta eru ekki það miklar fjárhæð- ir að þær valdi því að útgerðirnar berjist gegn því að menn nái sínu fram, sem þó kemur fyrir. Um leið og það er búið að skrá slys í skipsdagbók ber útgerðin ábyrgð á því að tilkynna það til rann- sóknarnefndarinnar og til Sjúkra- trygginga Íslands. Þar er víða pottur brotinn því miður. Það þarf að skerpa á þessum atriðum – bæði gagnvart sjómönnum og útgerðum. Ef þetta er í lagi þá er búið að komast fyrir helsta vand- ann.“ -gfv „Þess vegna er mjög mikilvægt að fyrstu skrefin eftir óhapp séu rétt færð til bókar.“ Framtak-Blossi er orðinn umboðsaðili fyrir Volvo penta rafstöðvar og skrúfuvélar á Íslandi Dvergshöfða 27 - 110 Reykjavík www.blossi.is - blossi@blossi.is Sala á Volvo Penta varahlutum og viðgerðarþjónusta „í noregi gat maður beðið útgerðina að taka vissan hlut og leggja inn á banka. Það safnaðist saman,“ segir hann og hvernig hann hafi unnið í 4–5 klukkustundir fyrir dollaranum sem dekksdrengur í upphafi sjómannsára sinna. Vinur við sjávarútveginn Frá árinu 1927 hefur saga Olís verið samofin íslenskum sjávarútvegi og þjónustu við skip og útgerðir. Við ætlum að halda þeirri siglingu áfram.

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.