Sjómannadagsblaðið - 2023, Page 42
42 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3
Þ að var þrautin þyngri
fyrir Elísabetu Sveins-
dóttur og Önnu Björk
Árnadóttur, sem að
öðrum ólöstuðum bera hitann og
þungann af skipulagningu há-
tíðahalda sjómannadagsins, að
undirbúa hátíðina í fyrra. Eins og
aðrir skipuleggjendur viðburða
þurftu þær að vera við öllu búnar.
Heimsfaraldur kórónuveirunnar
stóð enn yfir þegar skipulagning
hófst, með öllum sínum samkomu-
takmörkunum og nándarreglum,
og því ekki hlaupið að því að meta
hvort og hvernig halda mætti við-
burð sem tugþúsundir hafa sótt í
gegnum árin.
Eins og í lygasögu
„Við renndum mjög blint í sjóinn í
fyrra út af Covid,“ segir Elísabet.
„Við vorum með plan B á bak við
eyrað ef veiran myndi skjóta upp
kollinum aftur, en við sluppum
blessunarlega við það.“ Öllum
samkomutakmörkunum var aflétt
á fyrra hluta ársins og létu ekki sjá
sig aftur. „Við vonuðum það besta
– en við fengum líka það besta.
Dagurinn gekk eins og í lygasögu.“
Það er ekki ofsögum sagt. Ekki
aðeins buðu veðurguðirnir upp
á blíðskaparveður heldur var
mætingin framar björtustu vonum.
Óformleg talning gaf til kynna að
allt að 40 þúsund manns hefðu
lagt leið sína á hátíðarsvæðið á
Granda og segir Elísabet að svæð-
ið hafi borið fjöldann vel. Þessum
fjölda hafi þó óneitanlega fylgt
ákveðin úrlausnarefni.
„Ef það er einhver einn lærdóm-
ur sem við getum dregið af hátíð-
inni í fyrra þá er það að huga betur
að umferðinni út af Grandanum.
Það myndaðist smá teppa þegar
mannfjöldinn yfirgaf svæðið eftir
hátíðina og því munum við hvetja
fólk til að taka strætó, leggja
annars staðar, labba út á Granda
eða taka Hopp-hjól – en að öðru
leyti klikkaði hreinlega ekkert í
fyrra,“ segir Elísabet.
Vönduð og
metnaðarfull dagskrá
Hátíðahöldin í ár verða með
svipuðu sniði og í fyrra og aftur
verður stuðst við hið sígilda nafn
Sjómannadagsins, í stað heitisins
Hátíð hafsins sem notað var um
nokkurra ára skeið. Sjómanna-
dagsráð, Faxaflóahafnir og Brim
standa sem fyrr að hátíðinni og í
ár fellur það í skaut tónlistarmann-
inum Jóni Jónssyni að stýra dag-
skránni úti á Granda. Elísabet segir
að það hafi komið bersýnilega í
ljós í fyrra hvað Sjómannadagur-
inn er mikil fjölskylduhátíð. Allir
aldurshópar hafi sótt hátíðahöldin
á Grandanum, jafnvel fjölmargir
ættliðir úr sömu fjölskyldunni,
og skipti þá engu hvort gestirnir
hefðu einhverja tengingu við sjó-
mennsku. „Við erum ekki aðeins
að heiðra sjómenn og þennan mik-
ilvæga atvinnuveg heldur erum
við einnig að svala forvitni fólks.
Fólk virðist almennt vera mjög
áhugasamt um sjávarútveg en
gerir sér sjaldan ferð niður á höfn,“
segir Elísabet. Þess vegna sé svo
mikilvægt að mati skipuleggjenda
að hátíðahöldin einkennist ekki
aðeins af skemmtiatriðum heldur
þurfi dagskráin einnig að vera
ákveðin upplifun sem fólki bjóðist
færi á að taka þátt í.
Elísabet segir að dagskráin í ár
verði því bæði vönduð og metn-
aðarfull. Eftir messu í dómkirkj-
unni verði sjómenn heiðraðir í
Hörpu og að kaffisamsæti loknu
verði marserað í skrúðgöngu út á
hátíðarsvæðið á Granda. Meðal
þess sem þar verður í boði í ár eru
ýmsir fastir liðir á Sjómannadegin-
um; eins og reiptog, koddaslagur,
keppni í sjómanni og dorgi, furðu-
fiskasýning, fiskisúpa í boði Brims,
harmonikkuleikur, þyrlubjörgun
á sjó og fjöldi annarra skemmti-
Rétt ákvörðun að
renna blint í sjóinn
Hátíðahöld sjómannadagsins í ár verða um margt sambærileg hátíðinni í fyrra, sem að sögn skipu-
leggjenda gekk vonum framar. Þrátt fyrir töluverða óvissu sökum faraldursins var engu að síður
ákveðið að láta slag standa og boða til fjölskylduhátíðar á Granda, ákvörðun sem skipuleggjendur sjá
ekki eftir enda mættu tugþúsundir og gerðu sér glaðan dag í blíðviðrinu. Ekki er því við öðru að bú-
ast en að öll geti fundið eitthvað við sitt hæfi á sjómannadeginum í ár.
Elísabet Sveinsdóttir, sem hér sést,
og Anna Björk Árnadóttir bera að
öðrum ólöstuðum hitann og þung-
ann af skipulagningu hátíðahalda
sjómannadagsins. Í fyrra var fyrsta
hátíðin eftir heimsfaraldur Covid og
þótti takast afar vel.
Mynd/Hreinn Magnússon
meðal þess sem þar
verður í boði í ár eru
ýmsir fastir liðir á
Sjómannadeginum; eins
og reiptog, koddaslagur,
keppni í sjómanni og
dorgi, furðufiskasýning,
fiskisúpa í boði Brims,
harmonikkuleikur,
þyrlubjörgun á sjó og fjöldi
annarra skemmtiatriða.