Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 2023, Side 50

Sjómannadagsblaðið - 2023, Side 50
50 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3 Viðbrigðin við að koma í land voru ofarlega í huga þátttakenda í einu rannsókninni sem gerð hefur verið á starfslokum sjómanna. Í rannsókninni kemur fram að hér hafi starfslok fólks lítið verið könnuð og ekkert horft til einstakra stétta. Óhætt er að fullyrða að starfslok fólks séu ein af stóru tímamótunum í lífi þess, enda verða alla jafna við þau miklar breytingar á lífsmynstri fólks. Takturinn sem fylgt hefur vinnunni hverfur og annað tekur við. Þetta á við um starfslok sjó- manna ekki síður en annarra, en málið hefur ekki verið rannsakað eða skoðað mikið hér á landi. „Þetta eru sannarlega mál sem þyrfti að rannsaka frekar,“ segir Kristjana Fenger iðjuþjálfi um rannsóknir á starfslokum sjómanna. Sjálf gerði hún fyrir nokkrum árum rannsókn sem bar heitið „Að leggja árar í bát: Starfs- lokaferli sjómanna“ og flutti um hana erindi á ráðstefnu í Háskóla Íslands haustið 2014. Rannsókn- in var líka birt í riti Félagsvís- indastofnunar Háskólans, Þjóðar- speglinum. Voru á síðutogurunum „Þetta var mjög skemmtileg rann- sókn og æðislegt að tala við alla þessa menn,“ segir Kristjana, en bætir við að hún hafi vitanleg fengið mun meiri gögn en birtast í greininni sem unnin var upp úr rannsókninni. Hún hafi þarna ver- ið að ræða við menn sem hafi verið á síðutogurunum fyrir hundrað árum. „Og það er mikil breyting sem hefur orðið á lífinu síðan þá.“ Til þátttöku í rannsókninni voru valdir sjómenn sem komnir voru á eftirlaun. „Þeir höfðu lifað tímana tvenna.“ Kristjana rifjar upp að á einum fyrirlestri sem hún hélt um rannsóknina hafi komið til hennar ungir sjómenn sem töluðu um að hlutirnir hefðu breyst mjög frá því sem þessi hópur upplifði þegar hann fór á eftirlaun. „Og þeir fóru náttúrlega á eftirlaun á mismun- andi hátt, bæði út af veikindum og einhverju öðru. Sumir voru á vinnualdri og aðrir voru sáttir.“ Í rannsókninni kemur fram að í svonefndum eigindlegum hluta rannsóknarinnar hafi verið tekin viðtöl við níu sjómenn á eftirlaun- um, en Sjómannafélag Eyjafjarð- ar hafi haft milligöngu um að útvega þátttakendur. „Mennirn- ir voru á aldrinum 67 til 74 ára þegar viðtölin fóru fram og voru liðin tvö til sjö ár frá starfslokum þeirra á sjó. Þeir höfðu starfað sem hásetar eða bátsmenn í 35 til 52 ár og voru allir fjölskyldumenn,“ segir þar. Í megindlegum hluta rannsóknarinnar, þar sem þátt- takendur svöruðu spurningalista, hafi svo tekið þátt 37 sjómenn á eftirlaunum. „Af þeim buðu 20 fram þátttöku sína úr 70 manna slembiúrtaki úr félagaskrá eftir- launaþega Gildis lífeyrissjóðs og 11 bættust við með snjóboltaúrtaki. Flestir voru menntaðir skipstjórar, stýrimenn eða vélstjórar (n=30) og unnu lengst af á því sviði, en aðrir unnu sem hásetar (n=5) eða kokkar (n=2). Allir voru fjölskyldu- menn og bjuggu ýmist með maka (n=31) eða einir vegna makamiss- is (n=6) eða skilnaðar (n=1). Allir áttu afkomendur, þ.e. börn og barnabörn.“ Góð laun en mikil fjarvera Kristjana segir skorta frekari rannsóknir á þessu sviði, en sjálf er hún komin á eftirlaun. Hún hafi alltaf ætlað að vinna meira úr þessum gögnum en ekki komist til þess vegna anna. Í rannsókninni sjálfri var horft til viðhorfa sjómanna til eigin starfsloka og aðdraganda þeirra. Tekin voru viðtöl við níu sjómenn á eftirlaunum og þau greind og í kjöl- farið var í símtali lagður spurninga- listi fyrir 37 sjómenn á eftirlaunum. „Niðurstöður sýndu að sjómennirnir höfðu flestir hafið störf mjög ungir og átt langa starfsævi á sjó. Áhugi á sjómennskunni var algengasta ástæða þess að þeir hófu þar störf. Það sem þeim líkaði best við starfið var hve launin voru góð, en síst fjarvera frá fjölskyldunni,“ segir í samantekt niðurstaðna. „Starfs- lokin voru þeim miserfið, þeir sem neyddust til að hætta voru ósáttir en hinir sem völdu það sjálfir voru sáttir.“ Þá kemur fram að misjafnt var hvernig undirbúningi starfslok- anna var háttað og hvað í þeim fólst. „Þátttaka þeirra í við- fangsefnum innan heimilisins jókst til muna eftir starfslok en tvennum sögum fer af þátttöku þeirra í tómstunda- og félagslífi.“ Bent er á að víðast hvar í vest- rænum ríkjum sé opinber lífeyr- isaldur 65 ár en hér á landi sé lög- bundinn eftirlaunaaldur 67 ár. Tók hlutverk af eiginkonunni „Fyrir 2005 höfðu sjómenn sinn eigin lífeyrissjóð, en þá miðaðist lífeyrisaldur þeirra við 65 ár. Þeir gátu tekið skertan lífeyri 60 ára og aukinn frá 65 til 70 ára. Þegar lögin voru afnumin sameinaðist sjóður- inn Lífeyrissjóði Framsýnar í Gildi lífeyrissjóði og við það breyttist eftirlaunaaldur sjómanna í 67 ár,“ segir í rannsókn Kristjönu. Um leið er bent á að sjómenn hafi samt sem áður möguleika á skertri lífeyristöku og vísað til upplýsinga á vef Tryggingastofn- unar ríkisins þar sem segir: „Sá sem hefur stundað sjómennsku í 25 ár eða lengur getur átt rétt á elli- lífeyri frá 60 ára aldri. Miðað er við að sjómaður hafi verið lögskráður á íslenskt skip eða skip gert út af íslenskum aðilum eigi færri en 180 daga að meðaltali í 25 ár.“ Kristjana segir viðmælendur sína í rannsókninni marga hafa nefnt viðbrigðin við að koma í land eftir gríðarmikla fjarveru að heiman vegna sjómennskunnar. „Einn nefndi hvernig konan hans var ekki hrifin af því hvernig hann tók þá af henni verkefni sem hún hafði alltaf annast. Þú kemur í land og þarft að finna þér ný hlut- verk.“ Þetta hafi verið upplifun margra sem fóru á eftirlaun þegar þeir höfðu aldur til. „Síðan voru hinir sem gátu ekki verið lengur á sjó og þurftu að finna vinnu í landi því þeir voru ennþá fyrir- vinna. Útgerðin var misvirk í að hjálpa þeim að finna eitthvað nýtt að gera og þeir voru svona misá- nægðir með það.“ Kristjana segir marga viðmæl- enda sinna hafa verið ágætlega staddir og komið ár sinni vel fyrir borð. „Og þá gjarnan búnir að koma sér upp tómstundaiðju eða einhverju við að vera. Sumir voru komnir með báta,“ segir hún og bætir við að í rannsókninni hafi hún rætt við sjómenn á Norður- landi; á Dalvík, Akureyri, Húsavík og þar um kring. „En þetta voru rosalega flottir karlar og gaman að tala við þá.“ Fékk að heyra alla söguna Kristjana segist ekki síst hafa haft gaman af því að ræða við hópinn af því að hjá þeim hafi hún gjarn- an fengið að heyra alla þeirra sögu, allt frá því þegar þeir byrjuðu fyrst á sjó og af hverju, þar til þeir fóru á eftirlaun. „En ég var hins vegar bara að fjalla um eftirlaunatím- ann, þannig að sum gögnin voru náttúrlega ekki höfð með í rann- sókninni.“ Gagnlegt hefði verið að sögn Kristjönu að taka aftur upp þráð- inn og ræða við sjómenn sem fóru á eftirlaun um tíu árum seinna en þeir sem hún ræddi við, því hún telur margt hafa breyst. Í þeim efn- um þurfi hins vegar aðrir að taka við keflinu. Í rannsókn Kristjönu er vitnað til erlendra rannsókna um að al- mennt séu viðhorf fólks til þess að láta af störfum jákvæð, þó að sum- ir kvíði starfslokunum. Í inngangi rannsóknar sinnar bendir hún á að lítið hafi verið vitað um starfs- lok fólks á Íslandi almennt og ekkert um starfslokaferli einstakra stétta eins og sjómanna þrátt fyrir að sjávarútvegur hafi verið einn þýðingarmesti atvinnuvegur Ís- lendinga í gegnum aldirnar. „Sjómennska er erfið vakta- vinna sem krefst oftast mikillar fjarveru frá fjölskyldunni. Það er því áhugavert að fá innsýn í starfslokaferli þeirra, undirbúning, umbreytinguna sjálfa og aðlögun að eftirlaunaárunum og hvort þetta sé á einhvern hátt frábrugðið lýsingum innlendra og erlendra rannsókna,“ segir þar. Fram kemur í niðurstöðum rannsóknar Kristjönu að þeir sem sjálfir stýrðu tímasetningu eigin starfsloka hafi átt auðveldara með breytinguna, en þeir sem þurftu að hætta óvænt hafi staðið frammi fyrir ýmsum brostnum vonum. „Rannsóknir sýna mikilvægi þess að vera sjálfur við stýrið í eigin lífi, þ.e. geta ákveðið sjálfur hvenær og hvernig starfslok manns ber að höndum til að þau verði sem far- sælust,“ segir þar og tekið er fram að niðurstaðan hafi verið sú sama í þessari rannsókn. » - óká Mál sem þyrfti að rannsaka meira Kristjana Fenger gerði fyrir um áratug rannsókn á starfslokum íslenskra sjómanna og ræddi við sjómenn á eftirlaunum. Hún segir að gagnlegt væri að fylgja rannsókninni eftir vegna breytinga sem hafi orðið. Mynd/Hreinn Magnússon Niðurstöður spurningakönnunar n Aldur þátt- takenda þegar þeir hættu sjó- mennsku var á bilinu 44 til 71 ár, að meðaltali 60,27 ár. Ástæðu starfsloka má sjá í Töflu 1 hér til hliðar. Flestir þátttakendur hættu vegna aldurs en í sumum tilfellum flýtti heilsufarsvandi og það að skip var selt fyrir starfslokum um fáeina mánuði. Þeir sem hættu vegna heilsubrests hefðu allir viljað starfa leng- ur á sjó, allt að 15 árum. Meðal persónulegra ástæðna fyrir því að hætta á sjó voru óskir um að vera nær fjölskyldunni eða starfa í landi, enda tilgreindu 57% þátttakenda að það versta við sjómennskuna væri fjar- veran frá fjölskyldunni. Ástæða Fjöldi Prósenta Aldur 22 59,5% Heilsa 8 21,6% Persónulegar ástæður 5 13,5% Skip selt 2 5,4% Samtals 37 100%

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.