Sjómannadagsblaðið - 2023, Page 50
50 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3
Viðbrigðin við að koma í land voru ofarlega í huga þátttakenda í einu rannsókninni sem
gerð hefur verið á starfslokum sjómanna. Í rannsókninni kemur fram að hér hafi starfslok
fólks lítið verið könnuð og ekkert horft til einstakra stétta.
Óhætt er að fullyrða að
starfslok fólks séu ein af
stóru tímamótunum í lífi
þess, enda verða alla jafna við þau
miklar breytingar á lífsmynstri
fólks. Takturinn sem fylgt hefur
vinnunni hverfur og annað tekur
við. Þetta á við um starfslok sjó-
manna ekki síður en annarra, en
málið hefur ekki verið rannsakað
eða skoðað mikið hér á landi.
„Þetta eru sannarlega mál
sem þyrfti að rannsaka frekar,“
segir Kristjana Fenger iðjuþjálfi
um rannsóknir á starfslokum
sjómanna. Sjálf gerði hún fyrir
nokkrum árum rannsókn sem bar
heitið „Að leggja árar í bát: Starfs-
lokaferli sjómanna“ og flutti um
hana erindi á ráðstefnu í Háskóla
Íslands haustið 2014. Rannsókn-
in var líka birt í riti Félagsvís-
indastofnunar Háskólans, Þjóðar-
speglinum.
Voru á síðutogurunum
„Þetta var mjög skemmtileg rann-
sókn og æðislegt að tala við alla
þessa menn,“ segir Kristjana, en
bætir við að hún hafi vitanleg
fengið mun meiri gögn en birtast
í greininni sem unnin var upp úr
rannsókninni. Hún hafi þarna ver-
ið að ræða við menn sem hafi verið
á síðutogurunum fyrir hundrað
árum. „Og það er mikil breyting
sem hefur orðið á lífinu síðan þá.“
Til þátttöku í rannsókninni voru
valdir sjómenn sem komnir voru á
eftirlaun. „Þeir höfðu lifað tímana
tvenna.“ Kristjana rifjar upp að á
einum fyrirlestri sem hún hélt um
rannsóknina hafi komið til hennar
ungir sjómenn sem töluðu um að
hlutirnir hefðu breyst mjög frá því
sem þessi hópur upplifði þegar
hann fór á eftirlaun. „Og þeir fóru
náttúrlega á eftirlaun á mismun-
andi hátt, bæði út af veikindum
og einhverju öðru. Sumir voru á
vinnualdri og aðrir voru sáttir.“
Í rannsókninni kemur fram að
í svonefndum eigindlegum hluta
rannsóknarinnar hafi verið tekin
viðtöl við níu sjómenn á eftirlaun-
um, en Sjómannafélag Eyjafjarð-
ar hafi haft milligöngu um að
útvega þátttakendur. „Mennirn-
ir voru á aldrinum 67 til 74 ára
þegar viðtölin fóru fram og voru
liðin tvö til sjö ár frá starfslokum
þeirra á sjó. Þeir höfðu starfað sem
hásetar eða bátsmenn í 35 til 52
ár og voru allir fjölskyldumenn,“
segir þar. Í megindlegum hluta
rannsóknarinnar, þar sem þátt-
takendur svöruðu spurningalista,
hafi svo tekið þátt 37 sjómenn á
eftirlaunum. „Af þeim buðu 20
fram þátttöku sína úr 70 manna
slembiúrtaki úr félagaskrá eftir-
launaþega Gildis lífeyrissjóðs og
11 bættust við með snjóboltaúrtaki.
Flestir voru menntaðir skipstjórar,
stýrimenn eða vélstjórar (n=30)
og unnu lengst af á því sviði, en
aðrir unnu sem hásetar (n=5) eða
kokkar (n=2). Allir voru fjölskyldu-
menn og bjuggu ýmist með maka
(n=31) eða einir vegna makamiss-
is (n=6) eða skilnaðar (n=1). Allir
áttu afkomendur, þ.e. börn og
barnabörn.“
Góð laun en mikil fjarvera
Kristjana segir skorta frekari
rannsóknir á þessu sviði, en sjálf
er hún komin á eftirlaun. Hún
hafi alltaf ætlað að vinna meira úr
þessum gögnum en ekki komist til
þess vegna anna.
Í rannsókninni sjálfri var horft
til viðhorfa sjómanna til eigin
starfsloka og aðdraganda þeirra.
Tekin voru viðtöl við níu sjómenn á
eftirlaunum og þau greind og í kjöl-
farið var í símtali lagður spurninga-
listi fyrir 37 sjómenn á eftirlaunum.
„Niðurstöður sýndu að sjómennirnir
höfðu flestir hafið störf mjög ungir
og átt langa starfsævi á sjó. Áhugi
á sjómennskunni var algengasta
ástæða þess að þeir hófu þar störf.
Það sem þeim líkaði best við starfið
var hve launin voru góð, en síst
fjarvera frá fjölskyldunni,“ segir í
samantekt niðurstaðna. „Starfs-
lokin voru þeim miserfið, þeir sem
neyddust til að hætta voru ósáttir
en hinir sem völdu það sjálfir voru
sáttir.“
Þá kemur fram að misjafnt var
hvernig undirbúningi starfslok-
anna var háttað og hvað í þeim
fólst. „Þátttaka þeirra í við-
fangsefnum innan heimilisins
jókst til muna eftir starfslok en
tvennum sögum fer af þátttöku
þeirra í tómstunda- og félagslífi.“
Bent er á að víðast hvar í vest-
rænum ríkjum sé opinber lífeyr-
isaldur 65 ár en hér á landi sé lög-
bundinn eftirlaunaaldur 67 ár.
Tók hlutverk af eiginkonunni
„Fyrir 2005 höfðu sjómenn sinn
eigin lífeyrissjóð, en þá miðaðist
lífeyrisaldur þeirra við 65 ár. Þeir
gátu tekið skertan lífeyri 60 ára og
aukinn frá 65 til 70 ára. Þegar lögin
voru afnumin sameinaðist sjóður-
inn Lífeyrissjóði Framsýnar í Gildi
lífeyrissjóði og við það breyttist
eftirlaunaaldur sjómanna í 67 ár,“
segir í rannsókn Kristjönu.
Um leið er bent á að sjómenn
hafi samt sem áður möguleika
á skertri lífeyristöku og vísað til
upplýsinga á vef Tryggingastofn-
unar ríkisins þar sem segir: „Sá
sem hefur stundað sjómennsku í
25 ár eða lengur getur átt rétt á elli-
lífeyri frá 60 ára aldri. Miðað er við
að sjómaður hafi verið lögskráður
á íslenskt skip eða skip gert út af
íslenskum aðilum eigi færri en 180
daga að meðaltali í 25 ár.“
Kristjana segir viðmælendur
sína í rannsókninni marga hafa
nefnt viðbrigðin við að koma í
land eftir gríðarmikla fjarveru að
heiman vegna sjómennskunnar.
„Einn nefndi hvernig konan hans
var ekki hrifin af því hvernig hann
tók þá af henni verkefni sem hún
hafði alltaf annast. Þú kemur í
land og þarft að finna þér ný hlut-
verk.“ Þetta hafi verið upplifun
margra sem fóru á eftirlaun þegar
þeir höfðu aldur til. „Síðan voru
hinir sem gátu ekki verið lengur
á sjó og þurftu að finna vinnu í
landi því þeir voru ennþá fyrir-
vinna. Útgerðin var misvirk í að
hjálpa þeim að finna eitthvað nýtt
að gera og þeir voru svona misá-
nægðir með það.“
Kristjana segir marga viðmæl-
enda sinna hafa verið ágætlega
staddir og komið ár sinni vel fyrir
borð. „Og þá gjarnan búnir að
koma sér upp tómstundaiðju eða
einhverju við að vera. Sumir voru
komnir með báta,“ segir hún og
bætir við að í rannsókninni hafi
hún rætt við sjómenn á Norður-
landi; á Dalvík, Akureyri, Húsavík
og þar um kring. „En þetta voru
rosalega flottir karlar og gaman að
tala við þá.“
Fékk að heyra alla söguna
Kristjana segist ekki síst hafa haft
gaman af því að ræða við hópinn
af því að hjá þeim hafi hún gjarn-
an fengið að heyra alla þeirra sögu,
allt frá því þegar þeir byrjuðu fyrst
á sjó og af hverju, þar til þeir fóru
á eftirlaun. „En ég var hins vegar
bara að fjalla um eftirlaunatím-
ann, þannig að sum gögnin voru
náttúrlega ekki höfð með í rann-
sókninni.“
Gagnlegt hefði verið að sögn
Kristjönu að taka aftur upp þráð-
inn og ræða við sjómenn sem fóru
á eftirlaun um tíu árum seinna en
þeir sem hún ræddi við, því hún
telur margt hafa breyst. Í þeim efn-
um þurfi hins vegar aðrir að taka
við keflinu.
Í rannsókn Kristjönu er vitnað
til erlendra rannsókna um að al-
mennt séu viðhorf fólks til þess að
láta af störfum jákvæð, þó að sum-
ir kvíði starfslokunum. Í inngangi
rannsóknar sinnar bendir hún á
að lítið hafi verið vitað um starfs-
lok fólks á Íslandi almennt og
ekkert um starfslokaferli einstakra
stétta eins og sjómanna þrátt fyrir
að sjávarútvegur hafi verið einn
þýðingarmesti atvinnuvegur Ís-
lendinga í gegnum aldirnar.
„Sjómennska er erfið vakta-
vinna sem krefst oftast mikillar
fjarveru frá fjölskyldunni. Það
er því áhugavert að fá innsýn í
starfslokaferli þeirra, undirbúning,
umbreytinguna sjálfa og aðlögun
að eftirlaunaárunum og hvort
þetta sé á einhvern hátt frábrugðið
lýsingum innlendra og erlendra
rannsókna,“ segir þar.
Fram kemur í niðurstöðum
rannsóknar Kristjönu að þeir sem
sjálfir stýrðu tímasetningu eigin
starfsloka hafi átt auðveldara með
breytinguna, en þeir sem þurftu
að hætta óvænt hafi staðið frammi
fyrir ýmsum brostnum vonum.
„Rannsóknir sýna mikilvægi þess
að vera sjálfur við stýrið í eigin lífi,
þ.e. geta ákveðið sjálfur hvenær
og hvernig starfslok manns ber að
höndum til að þau verði sem far-
sælust,“ segir þar og tekið er fram
að niðurstaðan hafi verið sú sama
í þessari rannsókn.
» - óká
Mál sem þyrfti að
rannsaka meira
Kristjana Fenger gerði fyrir um áratug rannsókn á
starfslokum íslenskra sjómanna og ræddi við sjómenn
á eftirlaunum. Hún segir að gagnlegt væri að fylgja
rannsókninni eftir vegna breytinga sem hafi orðið.
Mynd/Hreinn Magnússon
Niðurstöður spurningakönnunar
n Aldur þátt-
takenda þegar
þeir hættu sjó-
mennsku var á
bilinu 44 til 71
ár, að meðaltali
60,27 ár. Ástæðu
starfsloka má sjá
í Töflu 1 hér til
hliðar. Flestir þátttakendur hættu vegna aldurs en í sumum tilfellum
flýtti heilsufarsvandi og það að skip var selt fyrir starfslokum um fáeina
mánuði. Þeir sem hættu vegna heilsubrests hefðu allir viljað starfa leng-
ur á sjó, allt að 15 árum. Meðal persónulegra ástæðna fyrir því að hætta
á sjó voru óskir um að vera nær fjölskyldunni eða starfa í landi, enda
tilgreindu 57% þátttakenda að það versta við sjómennskuna væri fjar-
veran frá fjölskyldunni.
Ástæða Fjöldi Prósenta
Aldur 22 59,5%
Heilsa 8 21,6%
Persónulegar ástæður 5 13,5%
Skip selt 2 5,4%
Samtals 37 100%