Úrval - 01.06.1945, Blaðsíða 103
HANN FÉLL 2000 FET — OG HÉLT LÍFI
101
þann veginn að taka sig upp
þegar Percy lenti á sandrifinu,
og' fimmta Corsair-vélin var
ferðbúin, en enginn var til að
fljúga henni. Hann hljóp þang-
að, brá sér upp í stýris-,,pytt-
inn“ rendi sér af stað, til þess
að ná hinum.
Þessar fimm Corsair-vélar
-— illvígustu orustuflugvélar
Bandaríkjaflotans, — klifu
upp i fimm mílna hæð og Russ-
ell-eyjarnar voru sem smar-
agða-belti til að sjá, á Ijósblá-
um flosgrunni. Og japönsku
orustuflugvélarnar steyptu sér
yfir fimm-menninganna for-
málalaust.
,,Allir fóru nú að skjóta, og
himininn varð þrunginn brak-
andi eldi, er við hringuðum
okkur og sveifluðum eins og
vitlausir menn, ýmist upp á við,
eða til hliða,“ sagði Percy síðar.
,,Ég baunaði á tvo Japana, en
það var eins og baunirnar mín-
ar hrinu ekki á þeim. Mér varð
þá litið niður og sá, að fimm
óvinaflugvélar voru að elta vél
félaga míns, Jimmy Johnsons,
3000 fetum neðar. Þeir ,,göt-
uðu“ hann óskaplega.
Ég bylti mér við og hentist
hvínandi niður á við, með 400
mílna hraða, og tók að skjóta
á þá, strax er ég komst í færi.
Þeir tvístruðust, og vélin mín
hélt áfram að hrapa einar tvær
mílur, áður en mér tókst að
rétta hana við, í 14 þús. feta
hæð. Ég var einn. Ekki einn ein-
asti Japani sýnilegur, og engin
orustuflugvélanna okkar held-
ur. Þetta sýnir hve skjót-
an endi loftbardagar geta
haft. Ég stefndi því heimleiðis.
Þá sá ég fimm óvinaflugvél-
ar koma brunandi neðan úr
skýjakögri, 3000 fetum fyrir
neðan mig. Þær stefndu í gagn-
stæða átt og virtust ekki verða
mín varar. Gerðist ég nú fífl-
djarfur, gaf hreyflinum allt sem
hann þoldi og steypti mér yfir
þær, þó að leikurinn væri ójafn,
eða fimm á móti einum. Ég dró
hinar tvær síðustu uppi og
brenndi af öllum byssunum.
Önnur kollveltist niður, en hin
flúði, illa leikin. Ég var orðinn
æstur og þyrstur í fleiri ,,dráp.“
Reyndi ég nú að hækka flugið,
til þess að komast í betri að-
stöðu til nýrrar árásar.“
En Gilbert Percy gerði aldrei
nýja árás. Tækin hans voru öll
í tætlum, og bensínið rann í
lækjum í stýrishúsinu, sem
brátt fylltist reyk. 1 hægra
handlegg og fæti hafði hann