Úrval - 01.06.1950, Blaðsíða 87
MASAIAR 1 MIÐ-AFRlKU
85
ursflokkaskiptingu, sem ræður
öllum athöfnum, jafnvel kyn-
hegðun, hugsunum og tali hvers
einasta masaia allt frá því
hann er umskorinn og þangað
til hann sem liðið lík er borinn
út á sléttuna og skilinn þar eftir
hýenum og gömmum til ætis.
Stutt lýsing á ævi masai-
drengs gefur bezta mynd af
menningu þeirra. Þegar masai-
barn fæðist, er kind lógað handa
öllum konum í þorpinu — nema
móðurinni. Uxi er einnig drep-
inn og er barninu gefinn uxa-
feiti. Móðirin borðar kjötið.
Þetta virðist vera eina reglulega
kjötátið sem tíðkast hjá masai-
um. Uxum er slátrað öðru
hverju til að gefa barninu feiti;
barnið er ekki vanið af brjósti
fyrr en það er átján mánaða.
Sex ára byrjar drengurinn að
gæta kálfshjarða heima við, en
kemur heim um hádegið til að
borða.
Sjö eða átta ára byrjar hann
að gæta stærri kálfa, kinda og
geitna, og þá kemur hann ekki
heim allan daginn. Á þessum
árum eru tvær miðframtennurn-
ar í neðrigóm teknar úr. Átta,
níu eða tíu ára fær hann hníf
og lítið spjót, og honum er
treyst til að gæta fullorðinna
nautgripa einn úti á stórum,
opnum sléttunum.
Ellefu eða tólf ára má hann
drepa ljón þegar hann er við
hjarðmennsku — og ætlast er
til að hann geti það. Þetta er
heiður, sem ég held að naumast
nokkur masaidrengur hafi unn-
ið til. En þeim er sagt, að þeir
œttu að geta drepið ljón á þess-
um aldri, og með þessa ábyrgð
á herðum sér fara þeir út á
slétturnar.
Fjórtán ára byrjar masai-
drengurinn kynlíf sitt með
ungum stúlkum á sínu reki og
lifir í frjálsum ástum þangað
til hann er 32 ára gamall. Þá
sker hann af sér hnakkafléttu
hermannsins, gengur að eiga
fyrstu konuna af þeim tveim
eða þrem sem hann eignast um
ævina, og gerist ráðsettur fjöl-
skyldumaður.
En þrátt fyrir hið frjálsa
ástalíf býr masaidrengurinn allt
frá kynþroskaárunum við
strangari siðareglur en tíðkast
í nokkru klaustri. Að þessu leyti
eru masaiarnir frábrugðnir öðr-
um kynflokkum Afríku.
Frá því að drengurinn er um-
skorinn, er hann bundinn al-
gerri hlýðni við boð og reglur.
Sumir óhlýðnast auðvitað eins