Skinfaxi - 01.02.2016, Síða 27
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 27
ÍSAFJÖRÐUR
Nafnið Ísafjörður átti forðum við um allt
Ísafjarðardjúp en festist síðan við eyrina
í Skutulsfirði sem var helsti verslunarstað-
urinn á þessu svæði. Innst í Ísafjarðardjúpi
er hins vegar fjörður sem ber nafnið Ísa-
fjörður og veldur þetta gjarnan nokkrum
heilabrotum hjá erlendu ferðafólki.
Eyri í Skutulsfirði – Ísafjörður – er forn
verslunarstaður, höfuðstaður Vestfjarða
og tilheyrir nú hinu sameinaða sveitar-
félagi Ísafjarðarbæ. Þar hefur verið stund-
uð verslun öldum saman en strax á 16. öld
komu kaupmenn frá Hamborg sér upp
aðstöðu á eyrinni. Með tilkomu dönsku
einokunarverslunarinnar var eyrin svo fest
enn frekar í sessi sem miðstöð fiskveiða
og verslunar.
Eftir að einokuninni var aflétt störfuðu
mörg gróskumikil útgerðar- og verslunar-
félög á Ísafirði. Þeirra þekktast er án efa
Ásgeirsverslun sem var langöflugasta
einkafyrirtæki landsins á sínum tíma. Fyrir-
tækið var með umsvifamikla útgerð, keypti
fyrstu gufuskip sem Íslendingar eignuð-
ust, hélt uppi farþega- og vörusiglingum
um Ísafjarðardjúp og sigldi með afurðir
sínar beint frá Ísafirði til markaðslandanna
við Miðjarðarhaf. Ásgeirsverslun stóð fyrir
ýmsum öðrum nýjungum svo sem fyrsta
talsíma á milli húsa á Íslandi.
Saltfiskur varð verðmætasta útflutnings-
afurð Íslendinga á 19. öld og vinnsla hans
varð undirstaða atvinnulífs á Ísafirði. Um
aldamótin 1900 var Ísafjörður næststærsti
bær landsins og í fararbroddi í mörgu er
sneri að útgerð og sjávarútvegi. Til
Ísafjarðar má m.a. rekja upphaf vél-
væðingar fiskiskipaflotans sem og
upphaf rækjuveiða við Ísland.
Samhliða atvinnulífinu blómstraði
einnig menningin í bænum. Tónlistin á sér
þar ríka hefð og var Tónlistarskóli Ísafjarð-
ar fyrsti tónlistarskóli landsins. Bókasafn
var stofnað þegar árið 1889 og um tíma
áttu Ísfirðingar eitt allra glæsilegasta leik-
hús landsins, Templarahúsið, sem brann
árið 1930.
Ísafjörður hefur ótal margt að bjóða
ferðafólki. Sjóminjasafnið í Neðstakaup-
stað, í húsum einokunarverslunarinnar frá
18. öld, þykir eitt af skemmtilegustu söfn-
um landsins en þar er einnig til húsa
Harmonikusafn Ásgeirs Sigurðssonar. Í
Gamla sjúkrahúsinu á Eyrartúni er bóka-
safn, skjalasafn, ljósmyndasafn og metnað-
arfullt listasafn. Ganga um gamla bæinn
er líka á við bestu heimsókn á safn, ekki
síst ef hið ágæta húsakort er með í för.
Náttúran í kringum Ísafjörð er einstök og
býður upp á fjölmargar frábærar göngu-
leiðir við allra hæfi og ekki er verra að líða
um kyrran hafflötinn á kajak. Í Tungudal er
golfvöllur og fyrir þá sem leggja leið sína
til Ísafjarðar að vetri er rétt að benda á
skíðasvæðin í Tungudal og á Seljalands-
dal. Sundhöllin á Ísafirði er gömul en vina-
leg innilaug með heitum potti og gufu-
baði. Frá Ísafirði eru reglulegar áætlunar-
ferðir báta yfir í Hornstrandafriðlandið, til
eyjarinnar Vigur og víðar. Snæfjallaströnd
tilheyrir einnig Ísafjarðarbæ en þar er rekin
eina ferðaþjónustan við norðanvert Djúp,
í Dalbæ og þar er Snjáfjallasetur með sögu-
sýningar.
Á hverju ári fara fram metnaðarfullar
menningarhátíðir á Ísafirði. Þar ber hæst
klassísku tónlistarhátíðina Við Djúpið, leik-
listarhátíðina Act Alone og sjálfa rokk-
hátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður.
Unnendur íþrótta og útivistar fá líka sitt
á Skíðavikunni, Fossavatnsgöngunni og
Mýrarboltanum ásamt Hlaupahátíð á Vest-
fjörðum sem fram fer á Ísa-
firði, Bolungarvík og í
Dýrafirði.