Skinfaxi - 01.02.2016, Blaðsíða 37
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Gefa grunnskólum í
Reykjavík snúsnú-bönd
„Okkur langar til þess að börnin hafi gaman
af því að hreyfa sig,“ segir Frímann Ari Ferdin-
andsson, framkvæmdastjóri hjá Íþróttabanda-
lagi Reykjavíkur (ÍBR) og boðberi hreyfingar.
ÍBR ætlar að
gefa öllum
grunnskólum í
Reykjavík
snúsnú-bönd í
Hreyfiviku
UMFÍ svo börn-
in geti skemmt
sér í góðum
leik. Skólarnir
eru um 40 tals-
ins og fær hver
skóli gefins
fimm bönd. Ef
böndin eru
bundin saman
ná þau einn
kílómetra.
Allir hreyfa sig
í Grundarfirði
„Það er ókeypis í golf á golfvellinum í Hreyfi-
viku UMFÍ og boðið upp á æfingagræjur fyrir
byrjendur. En svo setjum við upp frisbígolfvöll,
björgunarsveitin reisir klifurvegg og boðið
verður í skokk og gönguferðir inn í Hrafnkels-
staðabotn og fleiri góða staði,“ segir Sigríður
Hjálmarsdóttir,
menningar- og
markaðsfulltrúi
Grundarfjarðar-
bæjar. Í líkams-
ræktinni verða
opnir hit-tímar.
Í þeim verða
margir vöðva-
hópar teknir
fyrir sem er víst
algjör þrekraun.
Boðið verður
upp á hreyf-
ingu fyrir alla
aldurshópa.
Skíðaganga og
fuglaskoðun á Húsavík
„Við bjóðum upp á alls konar hreyfingu,“ segir
Kjartan Páll Þórarinsson, boðberi hreyfingar
á Húsavík. Líkamsræktarstöðin Töff sport
ætlar að vera með opna tíma fyrir bæjarbúa,
boðið verður upp á sögugöngu um bæinn,
golfklúbbur Húsavíkur verður með viðburð,
hægt er að
fara í frisbígolf,
fuglaskoðun
og hreyfa sig
með skokk- og
hjólahópi. Þá
er frítt í sund
og getur
gönguskíða-
fólk fetað spor
á heiði.
Hvað er í boði
í Hreyfiviku UMFÍ?
Fleiri og fleiri taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ, ýmist sem boðberar
hreyfingar eða þátttakendur. Á síðasta ári voru þátttakendur
40.000. Hér eru dæmi um viðburði í Hreyfiviku UMFÍ um land allt.
Eins og sjá má ættu allir að geta fundið sína uppáhalds hreyfin-
gu. Þetta er aðeins lítið brot af þeim fjölmörgu viðburðum
sem verða í boði á hverjum degi í Hreyfivikunni.
Hreyfivika UMFÍ 23.–29. maí
Vesturbyggð / Patreksfjörður, Tálkna-
fjörður og Bíldudalur/Barnavagnaganga
og íþróttaæfingar fyrir mæður í fæðingar-
orlofi, fjölskyldudagar íþróttafélaga,
leikir fyrir börn og fullorðna, opnir tímar í
íþróttahúsum, blak, ringó, zumba.
Búðardalur / Hreyfistöðvar á ákveðnum
stöðum fyrir þá sem hlaupa um bæinn,
skipulagðar fjallgöngur og sund á eftir,
þemadagar í Auðarskóla.
Dalvík / Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar opnar
alla líkamsræktartíma, frítt í ræktina, frítt í sund.
Skokkhópar og gönguhópar bjóða fólki með.
Raufarhöfn / Zumbakennsla
Lundur í Öxarfirði
/ Zumbakennsla
Reykjanesbær / Sveitarfélaga-
keppni í sundi. Allir þeir sem synda
eitthvað fara í pott og geta unnið
árskort í sund.
Hreyfivikan er hvergi eins
Sigríður Hjálmarsdóttir,
menningar- og markaðsfull-
trúi Grundarfjarðarbæjar.
Kjartan Páll Þórarinsson,
boðberi hreyfingar á
Húsavík.
Frímann Ari Ferdinandsson,
framkvæmdastjóri hjá ÍBR og
boðberi hreyfingar.
Hvolsvöllur / Ratleikur tvisvar í viku í
sumar sem byrjar í Hreyfivikunni, skipu-
lagðir göngutúrar leikskólabarna og
vatnazumba í sundlauginni. Enginn má
gleyma hinni sívinsælu og geysihörðu
sundkeppni sveitarfélaga.
Ölfus / Opnir hópatímar í líkams-
ræktinni, fullorðinsfimleikar og
jóga ásamt mörgu fleiru.
Seyðisfjörður / Fjallgöngur
tvisvar á dag og morgunjóga undir
berum himni, pæjupúl og hlátur-
jóga fyrir fjölskylduna. Seyðfirð-
ingar stefna á verðlaunapall í sund-
keppni sveitarfélaganna.