Bókatíðindi - 01.12.2003, Síða 3
Efnisyfirlit
Ahugi íslendinga á bókum er kunnur langt út
fyrir landsteinana. Á íslandi eru gefnar út
fleiri bækur en í nokkru öðru landi, sé mið-
að við höfðatöluna góðkunnu; og íslendingar virðast
líka lesa meira en almennt gerist í löndunum sem
við miðum okkur oftast við. Þrátt fyrir ýmsar spár
um að bókin muni víkja fyrir annarri afþreyingu og
nútímalegri virðist lestraráhuginn hér á landi vera
býsna stöðugur. Bókafólk staðfesti þetta enn eina
ferðina á alþjóðlegu bókmenntahátíðinni sem hér
var haldin s.l. haust, þegar upplestarsalir yfirfylltust
á hverju kvöldi og gríðarleg þátttaka var í uppákom-
um á miðjum degi, enda hurfu erlendir gestir hátíð-
arinnar á braut fullir aðdáunar á bókasamfélaginu
okkar á Islandi.
Það er þó langt í frá sjálfgefið að þetta ástand vari
að eilífu og allir þeir sem láta sig veg íslenskrar bók-
menningar einhverju varða þurfa að halda vöku
sinni og vinna að því að viðhalda þessum mikla
lestaráhuga. Það er íslenskum stjórnvöldum t.d. til
vansa að íslensk bókaútgáfa þurfi að búa við næst
hæsta virðisaukaskatt á Norðurlöndunum og á
ýmsan hátt annan þurfa að sætta sig við rýrari
stuðning en tíðkast meðal systurþjóðanna í norðri.
Bókatíðindin koma nú út í 17 sinn og að þessu
sinni eru kynntar fleiri bækur en nokkru sinni áður.
í Bókatíðindum er þó einungis að finna þær bækur
sem útgefendur telja eiga sérstakt erindi á jólamark-
að og þau spegla því alls ekki alla útgáfu ársins.
Útgáfufyrirtækin á íslandi eru allmörg, en það er
líka að verða æ algengara að einstaklingar gefi út
bækur án tilstuðnings bókaforlags. Þannig eru alls
119 fyrirtæki, félagasamtök eða einstaklingar sem
standa að þeim 515 bókakynningum sem hér birtast.
Bókatíðindin eru snemma á ferðinni líkt og und-
anfarin ár, þannig að lesendur hafa nægan tíma til
að kynna sér það fjölbreytta bókaval sem býðst fyrir
þessi jól. Tíðindunum er dreift inn á hvert einasta
heimili í landinu, alls 109 þúsund eintökum.
Islenskir bókaútgefendur senda landsmönnum
öllum bestu óskir um ánægjuleg bókajól og farsæld
á komandi ári.
F.h. Félags íslenskra bókaútgefenda,
Benedikt Kristjánsson.
Leiðbeinandi verð
„Leiðb.verð" í Bókatíðindum 2003 er áætlað
útsöluverð í smásölu með virðisaukaskatti.
íslcnskar barna- og unglingabækur.....2
Þýddar barna- og unglingabækur.......16
íslensk skáldvcrk....................38
Þýdd skáldverk.......................56
Ljóð.................................74
Listir og ljósmyndir.................82
Fræði og bækur almcnns ctnis.........86
Saga, attllræði og hcraðslýsingar.. 136
Ævisögur og cndurniinningar........ 142
Ilandbækur......................... 156
IVIatur og drykkur................. 174
Spil............................... 177
Ilöfundaskrá....................... 178
Bóksalar........................... 185
Útgefendur......................... 186
Titlaskrá.......................... 189
BÓKATÍÐINDI 2003
Útgefandi: Félag íslenskra bókaútgefenda
Barónsstíg 5
101 Reykjavík
Sími: 511 8020, fax: 511 5020
Netf.: baekur@mmedia.is
FUAC ISLENSKRA . . r . , . r •
Vetur: www.bokautgata.is
Hönnun kápu: Ragnar Freyr Pálsson
Grafískur hönnuður
www.onrushdesign.com
Listaháskóli Islands
Ábm.: Benedikt Kristjánsson
Upplag: 109.000
Umbrot, prentun
og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing: Póstdreifing ehf.
- Gæði frá degi til dags.
ISSN 1028-6748