Bókatíðindi - 01.12.2003, Page 56
íslensk skáldverk
190 bls.
Salka
ISBN 9979-768-02-9
Leiðb.verð: 3.980 kr.
YFIR EBROFLJÓTIÐ
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Efniviður þessarar skáld-
sögu er spænska borg-
arastyrjöldin. Fæstir vita
að þrír Islendingar börð-
ust í borgarastyrjöldinni
spænsku. Bókin byggist
að hluta til á frásögu eins
þeirra sem, eins og marg-
ir aðrir ungir menn á
fjórða áratugnum, fer til
Spánar til að berjast gegn
uppgangi fasismans.
Þegar árin færast yfir
leitar hann á vit minn-
inga um horfna vini og
félaga sem tóku þátt í
orrustunni við Ebro.
Yfir Ebrofljótið hefur
hlotið frábærar viðtökur
og var tilnefnd til Is-
lensku bókmenntaverð-
launanna 2001 og að auki
tilnefnd til Bókmennta-
verðlauna Norðurlanda-
ráðs árið 2003.
459 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2412-0
Leiðb.verð: 1.799 kr.
Kilja
Söguleg skáldsaga
um Jón biskup Arason
og syni hans
ogQXIN
8jorðin
L.17 ÓLAFUR GUNNARSSON
Hðfundur motsölubðkarinnar TrSlltkirkje
ÖXIN OG JÖRÐIN
Söguleg skáldsaga um
Jón biskup Arason og
syni hans
Ólafur Gunnarsson
„Öxin og jörðin geyma þá
best.“ Þessi fleygu orð
vísa til þeirra dramatísku
atburða sem áttu sér stað
hér á landi fyrr á öldum
þegar Jón Arason biskup
var hálshöggvinn ásamt
sonum sínum tveimur:
þeirra atburða sem eru
kveikjan að nýrri bók
Ólafs Gunnarssonar. Með
þessu skelfilega ofbeldis-
verki hvarf öll mótspyrna
gegn hinum nýja lúterska
sið og danska konungs-
valdinu. Mannlegur harm-
leikur og örlög heillar
þjóðar fléttast hér saman
með afdrifaríkum hætti
og sagan lifnar við á síð-
um bókar þar sem ffá-
sagnarlist höfundar nýtur
sín til fulls.
366 bls.
JPV ÚTGÁFA
ISBN 9979-761-78-4
Leiðb.verð: 4.480 kr.
ÞEGAR HIMINNINN
GRÆTUR
Ástar- og spennusaga
úr sjávarþorpi fyrir
vestan
Álfheiður Bjarnadóttir
Björn Vilhjálmur Ólafs-
son, Bjössi kóngur, var
máttarstólpi þorpsins,
sem er staðsett einhvers-
staðar á Vestfjörðum.
Andrea, hin bráðfallega
einkadóttir hans, átti
miklu ástríki að fagna hjá
föður sínum. Hann
kenndi henni að rækta
sálina og hjartalagið, en
móður sína hafði hún
misst á unga aldri. Andrea
útskrifaðist úr Verslunar-
skólanum þar sem margir
skólabræður hennar voru
bélskotnir í henni, en hún
hafði aldrei orðið alvar-
lega ástfangin, þar til hún
féll fyrir Úlfljóti Her-
mannssyni, verslunar-
stjóra föður síns. Þó margt
færi öðruvísi en hún ætl-
aði, endaði þó allt vel að
lokum.
163 bls.
Vestfirska forlagið
ISBN 9979-778-17-2
Leiðb.verð: 1.900 kr.
stjanna
HRBPaR
VIGDÍS
GRÍMSDÓTTIR
ÞEGAR STJARNA
HRAPAR
Vigdís Grímsdóttir
„Ungum manni skolaði á
land um nótt í nóvember.
Það bar enginn kennsl á
beinin svona fyrst í stað
og það sváfu allir fuglar."
Með þessum orðum er
þeirri atburðarás hrint af
stað þar sem enginn veit
hver leynast kann í dular-
gervi og tefla lífi föru-
nauta sinna í tvísýnu. Enn
á ný er fólkið úr fyrri sög-
um Vigdísar Grímsdóttur,
Frá Ijósi til ljóss og Hjarta,
tungl og bláir fuglar, að
glíma við tilveru sína,
heitar tilfinningar og grá-
glettin örlög - og nú með
óvæntari og afdrifaríkari
hætti en nokkru sinni
fyrr, því að hér segir Vig-
dís Grímsdóttir skilið við
Rósu, Lenna, Lúnu og all-
ar hinar persónurnar sem
hún með hugmyndaflugi
og innsæi hefur kynnt til
sögunnar og fylgt af trú-
festu hvert sem leið þeirra
hefur legið.
218 bls.
JPV ÚTGÁFA
ISBN 9979-77577-7
Leiðb.verð: 4.280 kr.
54