Bókatíðindi - 01.12.2003, Síða 130
Fræði og bækur almenns efnis
mæli og sagnir úr litríkri
byggðasögu héraðsins
undir Jökli. I bókarauka er
m.a. viðtal Matthíasar
Johannessen ritstjóra og
skálds, sem hann átti við
Valdimar um 1960.
Matthías ritar einnig
aðfaraorð að bókinni, þar
sem hann kenst m.a. svo
að orði:
„Ungur blaðamaður
kynntist ég Valdimar
Kristóferssyni á Skjaldar-
tröð og þótti mikið til
hans koma; ekki vegna
útlits eða glæsimennsku,
íþrótta eða annarra afreka,
heldur vegna þess hann
átti þá greinds manns
tungu sem Svavar Guðna-
son talaði um í samtölum
okkar. Hann notaði hana
vel og eftirminnilega og
þá ekki sízt til þess að
lýsa óvenjulegri reynslu
og þeim föstu áratogum
sem lífið krafðist...
Mér þótti svo mikið til
um Valdimar að ég hand-
skrifaði samtalið við
hann, áður en það var vél-
ritað til prentunar. Mér
fannst ág vera að skrifa
smásögu um sérstæðan og
raunar ógleymanlegan
mann sem ætti alla mína
virðingu skilið."
415 bls.
Niðjar Valdimars
ISBN 9979-60-902-8
Leiðb.verð: 4.990 kr.
SPÁDÓMABÓKIN
Símon Jón Jóhannsson
Spádómabókin er að-
gengileg uppflettibók um
það hvernig hægt er að sjá
inn í framtíðina með
hjálp margvíslegra spá-
dómsaðferða frá ýmsum
heimshornum. Bókin,
sem prýdd er fjölda
mynda, er í senn fræð-
andi og skemmtileg og
höfðar jafnt til yngri sem
eldri Islendinga.
320 bls.
128
SIMON |ÓN JÓHANNSSON * *
SPÁpÓMA
BOKIN
Hvrmi< hjtgt <r ii u>4 í Irjmtiðiiu
nii-.'I (joííifryllum jiV.rJurn
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1682-4
Leiðb.verð: 4.990 kr.
SPORAR.
STÍLAR NIETZSCHES
Jacques Derrida
Þýð.: Garðar
Baldvinsson
Ritstj.: Torfi H. Tulinius
Sporar. Stílar Nietzsches
er um þann hluta heim-
speki Nietzsches sem er
hvað umdeildastur, þ.e.
konur. Jacques Derrida
ræðir hvernig hugmyndir
um konur og sannleika
tvinnast saman í ritum
Nietzsches. Sporar. Stílar
Nietzsches er mikilvægt í
allri umræðu um femín-
isma í upphafi 21. aldar.
75 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-9608-1-7
Leiðb.verð: 2.290 kr.
STJÓRNUN
Á TÍMUM HRAÐA
OG BREYTINGA
Þórður Víkingur
Friðgeirsson
Þetta er fyrsta bók sinnar
gerðar á íslensku þar sem
tekið er mið af íslenskum
aðstæðum og ýmsum
dæmum úr íslensku
atvinnulífi gerð skil, bók
fyrir alla þá sem vilja
snúa vörn í sókn. Hér er
fjallað um verkefnastjórn-
un - hið nýja stjórnunar-
form, skipulag fyrirtækja
og undirbúning verkefna,
áætlanagerð og eftirlit,
verklok og mat á árangri.
Einnig er greint frá
ýmsum kerfum sem not-
uð eru við verkefnastjórn-
un og kennt að setja upp
viðskiptaáætlanir. Þetta
er bók sem ratar víða,
jafnt til skóla og fyrir-
tækja sem frumkvöðla og
almennings, og henni
fylgir geisladiskur með
miklu ítarefni. Auk þess
hefur verið opnuð sérstök
heimasíða á Netinu, þar
sem lesendur geta sótt sér
margvíslegt efni til stuðn-
ings við bókina.
302 bls.
JPV ÚTGÁFA
ISBN 9979-775-46-7
Leiðb.verð: 6.980 kr.
Patil Virilío
Stríð
og kvikmyndir
STRÍÐ OG
KVIKMYNDIR
Paul Virilio
Þýð.: Bergljót S.
Kristjánsdóttir, Elísabet
Snorradóttir, Friðrik
Rafnsson, Gauti Krist-
mannsson og Gunnar
Harðarson
I Stríð og kvikmyndir
fjallar Paul Virilio um
skilgreiningar á stríðs-
vettvangi út frá sjónskynj-
un, og sýnir hvernig her-
kænska nýtir sér í síaukn-
um mæli tækni kvik-
myndalistarinnar til að
skipuleggja átök og átaka-
svæði. Rætt er um einstök
tækniafrek í sögu kvik-
myndagerðar, allt frá loft-
myndatækni Nadars 1858
til þeirrar tæknihyggju
sem einkenndi seinna
stríð og kalda stríðið, ekki
síst hvernig stórveldin
hafa nýtt sér kvikmynda-
tækni til njósna og hern-
aðarskipulags. Stríð og
kvikmyndir spáði fyrir
um tölvuleikjaform Flóa-
bardaga og vekur upp
áleitnar spurningar um
tengsl sjóntækni, stríðs og
trúarbragða.
254 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-9608-4-1
Leiðb.verð: 2.990 kr.