Bókatíðindi - 01.12.2003, Qupperneq 148
Ævisögur og endurminningar
I IN S OG
ÉG MAN [’AÐ
myndhöggvara, en þekkt-
ust er hún fyrir ár sín f
blaðamennsku þar sem
hún opnaði m.a. hálendið
fyrir lesendum Morgun-
blaðsins. Fróðleg bók um
merka konu.
488 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1722-7
Leiðb.verð: 4.990 kr.
FRÆGÐ OG FIRNINDI
Ævi Vilhjálms
Stefánssonar
Gísli Pálsson
Löngum hefur stafað
ljóma af persónu og afrek-
um Vilhjélms Stefánsson-
ar, jafnt hér á landi sem í
Vesturheimi. Hann var
frægur landkönnuður
sem fór þrjá leiðangra á
norðurslóðir, mannfræð-
ingur, eftirsóttur fyrirles-
ari og víðkunnur af eigin
skrifum og annarra, en þó
hefur ætíð verið hljótt um
einkalíf hans.
Gísli Pálsson, mann-
fræðingur og prófessor,
segir hér ævisögu Vil-
hjálms frá nýju sjónar-
horni, ekki síst í ljósi fjöl-
margra nýrra heimilda
sem komið hafa fram í
dagsljósið. Hann beinir
sjónum að tilteknum þátt-
um í ævi Vilhjálms og
störfum sem lítið hefur
verið fjallað um til þessa:
frásögn ferðadagbókanna,
inúítafjölskyldu hans og
þögninni sem hún hefur
verið sveipuð, konunum í
lífi hans, tengslum hans
við Island og togstreitunni
milli einkalífsins og þeirra
kenninga sem Vilhjálmur
er þekktastur fýrir.
416 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2439-2
Leiðb.verð: 4.990 kr.
GLEYMIÐ AÐ ÞIÐ
ÁTTUÐ DÓTTUR
Michael Tierney
Þýð.: Sigurður
Hróarsson
I Bangkok lifir Sandra
Gregory lífi sem flesta
dreymir um. En allt er í
heiminum hverfult; veik-
indi, atvinnuleysi og
óvænt stjórnarbylting
breyta drauminum fyrir-
varalaust í martröð. I
þessari óvenjulega ein-
lægu æviminningu, lýsir
Sandra atburðunum sem
leiddu til handtöku henn-
ar, hrollvekjandi aðstæð-
unum í Lard Yao fangels-
inu og þeirri tilfinningu
að vera dæmd til dauða.
Metsölubók Söndru hefur
komið út í 20 löndum.
Island er eina landið sem
hún hefur fallist á að
heimsækja og segja sögu
sína en hún kom til
landsins í september síð-
astliðnum.
260 bls.
Stöng
ISBN 9979-9529-9-7
Leiðb.verð: 4.480 kr.
GÓÐAN DAG, BARNIÐ
MITT!
Sagan af August
Strindberg, Harriet
Bosse og Anne-Marie,
dóttur þeirra
Björn Meidal
Þýð.: Helga Hilmisdóttir
August Strindberg og
Harriet Bosse eignuðust
eina dóttur en hjónaband
þeirra stóð stutt. Hér eru
saman komin sendibréf
Strindbergs til þeirra
mæðgna. Saga um elsk-
endur, föðurást og dóttur
sem lenti í eldlínu á milli
tveggja skapstórra lista-
manna.
200 bls.
PP Forlag
ISBN 9979-760-42-7
Leiðb.verð: 2.990 kr.
HALLDÓR
Hannes H. Gissurarson
Halldór er fyrsta bindi í
vandaðri og umfangsmik-
illi ævisögu Halldórs Kilj-
ans Laxness eftir dr.
Hannes Hólmstein Gissur-
arson og nær yfir tímabilið
1902-1932. Lýst er æsku
Halldórs og uppvexti í
Mosfellsdal, skáldatíð í
Reykjavík og ferðum víða
um heim, þ.á.m. dvöl
hans í klaustri í Lúxem-
borg árið 1922 og á Taorm-
ina á Ítalíu þar sem hann
skrifaði Vefarann mikla frá
Kasmír. Þá er gerð góð
grein fyrir Ameríkuárum
Halldórs. Bókinni lýkur
með umfjöllun um árin
sem Halldór skrifaði
Sölku Völku og hóf af-
skifti af stjórnmálum. I
bókinni koma fram ýmsar
upplýsingar sem ekki hafa
verið gerðar opinberar
áður, enda liggur mikil
heimildavinna að baki
þessari bók. Hannes
Hólmsteinn hefur m.a.
rannsakað skjalasöfn
heima og erlendis svo og
ferðast til flestra þeirra
staða þar sem Halldór
dvaldist á fyrstu áratugum
20. aldar.
616 bls.
Almenna bókafélagið
ISBN 9979-2-1736-7
Leiðb. verð: 5.990
146