Bókasafnið - 01.01.2001, Blaðsíða 6

Bókasafnið - 01.01.2001, Blaðsíða 6
fleiri kassa (kassafjöldinn varð að lokum um 3000) og ungt og sprækt sumarafleysingafólk var ráðið til starfa. Er kom að sölu á húsgögnum safnsins og bókasafns- búnaði hófst alveg nýtt tímábil í starfssögu starfsmanna safnsins, starfsmanna með meira en 20 ára starfsald- ur í Borgarbókasafni. Um tíma líktist lestrarsalurinn götumarkaði í erlendri stórborg. 18. júní 2000 fluttist skrifstofa safnsins inn á 4. hæðina í Tryggvagötu 15. Stuttu síðar var safnefni lestararsalar flutt og köss- unum staflað upp í ófrá- gengið húsnæði á 5. hæð. Hafist var handa við að pakka, eignatelja og þjófa- verja safnkostinn í Esjubergi 1. júlí og tók það um hálfan mánuð með góðri hjálp starfsmanna úr öðrum deild- um Borgarbókasafns. Hillur í útlánssal voru hálftómar í vissum bókaflokkum því gestir safnsins höfðu hjálp- að til við að flytja safnið. Allan júnímánuð voru þeir hvattir til að taka mikið að láni og skila því ekki fyrr en í september. Þeir tóku þessu afar vel og fóru klyfjaðir heim. Þegar aðalsafni var lokað þann 30. júni voru síð- ustu gestir þar kvaddir með virktum og starfsmenn skrifstofunnar, sem þegar voru fluttir, sáu til þess að starfsmenn aðalsafns gerðu sér glaðan dag er dyrum Esjubergs hafði verið lokað kl. 19:00. Það var með blendnum hug sem starfsmenn kvöddu þetta gamla hús, því þrátt fyrir þrengslin áttu flestir þaðan góðar minningar. Þá hófst enn nýr kafli í sögu flutninganna. Bið varð á því að hægt yrði að koma nýju safni fýrir í Gróf- arhúsi. Steinsteypa, hillur, bækur, bókakassar, bóka- verðir og iðnaðarmenn þvældust hvert um annað í einum hrærigraut. Það þurfti mikið af góðu skapi, stjórnkænsku og hæfilegu magni af kæruleysi til að halda sönsum í því ástandi sem þar ríkti. Myndin hér að framan sýnir hvemig var umhorfs á afgreiðslusvæð- inu á 1. hæð þann 16. ágúst en safnið var formlega opnað tveimur dögum síðar. Það er verið að dúkleggja gólfið og afgreiðsluborðið og allan búnað vantar. Grófarhús Húsið var formlega opnað á afmælisdegi Reykjavíkur- borgar þann 18. ágúst. Þetta gamla pakkhús fékk gott og grípandi nafn, Grófarhús, með tilvísun í það að húsið stendur beinlínis á uppfýllingu í Grófmni þar sem var uppsátur fyrir báta Víkurmanna, Hlíðarhúsamanna og Gijótamanna. Borgarbókasafn og Borgarskjalasafn voru opin al- menningi á menningarnótt þann 19. ágúst en starf- semi bókasafnsins hófst ekki fýrr en 8. september. Ljósmyndasafn Reykjavíkur hóf starfsemi í Grófarhúsi 1. nóvember. Fyrstu vikurnar var af- greiðslutími aðalsafns tak- markaður en í lok október var hann kominn í sitt fasta horf og nú er meðal annars opið bæði laugardaga og sunnudaga frá kl. 13:00 - 17:00. í Borgarbókasafninu í Grófarhúsi vinna nú 45 manns, og eru 11 þeirra nýir starfsmenn en starfs- menn safnsins alls voru 104 í 86 stöðugildum um ára- mótin 2000/2001. Rými fyrir gesti Borg- arbókasafns er á 1., 2. og 5. hæð Grófarhúss en skrif- stofan á þeirri 4. Meðal nýj- unga í starfseminni má nefna: Reykjavíkurtorg á 1. hæð en þar er hægt að kynna sér lífið í borginni, fyrirtæki og stofnanir, félög, námskeið, menningarviðburði og það sem efst er á baugi hverju sinni. Á Reykjavíkurtorgi verða auk þess haldnir fundir og sýningar sem tengjast Reykjavík en annars er í Grófarhúsi nægur sögulegur fróðleikur af ýmsu tagi, t.d. skjöl og ljósmyndir hjá sambýlisstofnunum okkar. Tón- og mynddeild á 5. hæð. Stór hluti þess tónlistar- efnis sem var í Gerðubergi var fluttur í aðalsafn og hefur bóka- og tímaritakostur safnsins um tónlist og kvik- myndir verið aukinn verulega. Áfram verður lánuð út vinsæl tónlist í Gerðubergi og Foldasafni. Farið er að lána út kvikmyndir á DVD-diskum. Úrvalið er ekki mikið enn sem komið er en það á eftir að aukast verulega. Grófarsal á 6. hæð. Nú ræður safnið yfir góðu rými sem nota má til að halda ýmsar dagskrár, málþing og sýningar en Grófarsalur er fyrirlestra- og sýningarsal- ur sem söfnin þrjú í Grófarhúsi nýta í sameiningu. Efni fýrir ungt fólk á 2. hæð. Safnið leggur mikla áherslu á að bjóða upp á áhugavert efni fyrir ungt fólk og er nú í fyrsta sinn sérstök unglingadeild í safninu. 4 BÓKASAFNIÐ 25. ARG. 2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.