Bókasafnið - 01.01.2001, Blaðsíða 21

Bókasafnið - 01.01.2001, Blaðsíða 21
greiningin var unnin af nefndinni eins og fram hefur komiö hér að framan. Tilboð voru opnuð hjá Ríkiskaupum 28. mars 2000. Tilboð bárust frá eftirtöldum aðilum: Bjóðandi Kerfi Elias Amicus Endeavor Voyager Epixtech Horizon ExLibris Aleph 500 Innovative Interfaces Millennium Norsk Systemutvikling Mikromarc Sirsi Unicorn VTLS Virtua Tilboð Norsk Systemutvikling uppfyllti ekki kröfur útboðslýsingar og var því dæmt ógilt. 4 Úrvinnsla tilboða 4.1 Þættir sem ráða vali Eftirtalin atriði voru í útboðsgögnum tilgreind sem lykilatriði við val á væntanlegum samningsaðila: • Heildarkostnaður við kaup og rekstur kerf- isins í 5 ár. • Starfshæfni og gæði kerfisins (lausnarinnar). • Þjónusta og tæknilegt umhverfi kerfisins á íslandi. • Mat á tæknilegri getu kerfisins á grundvelli upplýsinga í tilboðum seljenda og annarra upplýsinga sem nefndin kynni að afla sér, t.a.m. með vettvangskönnunum. • Samhæfni og aðlögun kerfisins að öðrum upplýsingakerfum. • Afgreiðslutími. Áður en úrvinnsla tilboða hófst ákvað nefndin að leggja verðupplýsingar til hliðar og láta þær ekki hafa áhrif á valið í fyrstu umferð a.m.k. en leggja þess í stað áherslu á að draga fram helstu styrkleika og veikleika í notkun kerfanna og tæknilegri útfærslu þeirra. 4.2 Verklag við úrvinnslu tilboða Áður en úrvinnsla tilboða hófst setti nefndin sér vinnureglur þar sem verklag við úrvinnslu á tilboðum var ákveðið. í meginatriðum var verklag nefndar- innar þannig: 1. Vægi einstakra þátta kerfanna í saman- burði ákveðið. 2. Tilboð allra bjóðenda yfirfarin og svör þeirra við einstökum spurningum og kröf- um í útboðsgögnum metin. 3. Skoðunarferð til Bandaríkjanna þar sem þau kerfi sem kæmust gegnum fyrsta val yrðu skoðuð við ýmsar aðstæður, rætt við notendur og stjórnendur kerfanna. Þessi ferð skyldi skipulögð án afskipta seljenda. Gert var ráð fyrir að 2 kerfi yrðu tekin til skoðunar rýnihópa og endanlegs vals nefnd- arinnar. 4. Rýnihópar skipaðir sérfræðingum í einstök- um þáttum kerfanna skoði starfshæfni kerfanna sem valin eru. Hver hópur leggi sjálfstætt mat á þann þátt sem honum er falið að skoða, þ.e. ekki sé um eiginlegan samanburð milli kerfa að ræða heldur sjálf- stætt mat þar sem hverju kerfi er gefin einkunn. 5. Nefndin yfirfari niðurstöður rýnihópa, tækni- lega högun, verð og þjónustu. Á grundvelli allra þessara upplýsinga velji nefndin það kerfi sem talið er henta best því hlutverki sem Landskerfi bókasafna á íslandi er ætl- að. 4.3 Svör bjóðenda yfirfarin og einkunn gefin Fyrsta skrefið í valinu var að yfirfara þau 7 tilboð sem talin voru gild á grundvelli útboðsins. Nefndin ákvað að leggja í þá vinnu að lesa yfir svör allra bjóðenda við þeim spurningum og kröfum sem fram komu í útboðsgögnum. Allar spurningar voru settar upp í töflu og svörum bjóðenda gefin einkunn á fyrirfram ákveðnu bili. Niðurstaða nefndarinnar var að velja 5 kerfi til áframhaldandi þátttöku, þ.e. öll kerfi sem fengu eink- unnina 9 eða hærra í samanburði tilboða. Þau kerfi sem komust áfram voru Aleph frá Ex- Libris, Millennium frá Innovative og Voyager frá Endeavor öll með einkunnina 9,6. Auk þess Unicorn frá Sirsi með 9,5 og Horizon frá Epixtech með 9,0 í einkunn. Þau tvö kerfi sem heltust úr lestinni í þessari umferð voru Amicus frá Elias með 8,1 og Virtua frá VTLS með 8,7 í einkunn. Þrátt fyrir að upphaflega hafi ætlunin verið að velja ekki fleiri en 4 kerfi í þessari umferð var nefndin sammála um að taka Horizon með á þeirri forsendu að kerfið fékk einkunnina 9,0. 4.4 Skoðunarferð til Bandaríkjanna Skoðunarferð til Bandaríkjanna var farin 14. maí til 2. júní. í ferðinni voru skoðaðar uppsetningar þeirra 5 kerfa sem hæsta einkunn hlutu við yfirferð tilboða. í þeim tilgangi að fá fram eins fjölbreytileg sjónar- mið notenda kerfanna og kostur var tók nefndin þá stefnu að reyna að skoða öll kerfin við mismunandi aðstæður. BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.