Bókasafnið - 01.01.2001, Blaðsíða 48
Fyrir eru:
Svið Birgir Millj. kr.
Heilbrigðismál OVID 0,9
Viðskiptafræði Hagfræði
ABI/Inform 2,2
Samtals 3,1
Niðurstaðan er sú að viðbótarfjárþörfin vegna fyrsta
áfanga er um 10,8 milljónir króna á ári.
Áfangi 2: Fleiri gagnasöfn sbr. þarfagreiningu nefnd-
arinnar:
Svið Birgir Millj.kr.
Öll fræðasvið ISI 7
Samtals: 7
Áætlað er að um þessar mundir séu keyptar áskriftir
tímarita fyrir um 75 til 100 milljónir króna. í áfanga
tvö þarf að kanna þetta mál nánar og leita leiða til fá
aðgang að gagnagrunnum og rafrænum tímaritum í
staðinn að einhverju eða öllu leyti. Þetta krefst mikill-
ar vinnu sem nefndin taldi ekki á sínu verksviði.
Nefndin er vongóð um að árlegum kostnaði við
áfanga 2, er nemur 7 milljónum króna á ári, megi
mæta að verulegu leyti með hagræðingu sem felst í
því að breyta núverandi áskriftum yfir í rafrænar.
Kanna þarf nánar rafrænu tímaritin og leita leiða til
fá aðgang að þeim á landsvísu.
Nefndin leggur til að meðan á tímabundna til-
raunaverkefninu stendur verði lögð megináhersla á
fyrsta og annan áfanga. Þriðji áfangi er framtíðar-
verkefni sem þarf að skoða nánar síðar. Hvað varðar
nánari sundurliðun á áfanga 1, 2 og 3 er vísað til töfl-
unnar Birgjar og gagnasöfn í Viðauka 1 í skýrslunni.
Vegna þess hve örar breytingar eru á þessu sviði er
lagt til að stofnað verði til tímabundins verkefnis um
framkvæmdina, t.d. til 3ja ára. Þessi tími verði notað-
ur til að festa notkun rafrænna gagnasafna í sessi. í
því sambandi er aðgangur að nauðsynlegum gagna-
söfnum skilyrði. Auk þess kallar verkefnið á innri
markaðsfærslu hjá bókasöfnum og þjálfun og aðstoð
við notendur. Tækniumhverfið er tiltölulega gott en
þó má búast við að sums staðar þurfi þar eitthvað úr
að bæta. Markmiðið með tilraunaverkefninu er að
eftir þrjú ár verði aðgangur að rafrænum gagnasöfn-
um orðinn eðlilegur hluti af þjónustu bókasafna og
notkunin sem slík viðurkennd sem mikilvægur þátt-
ur í tölvulæsi íslensku þjóðarinnar.
Tllraunatíminn verði einnig notaður til að finna
sem bestan og hagkvæmastan farveg fyrir framhald-
ið. Að þeim tíma liðnum verði málið endurskoðað og
því fundinn framtíðarfarvegur í Ijósi fenginnar
reynslu.
Að ofan hefur aðeins verið gerð grein fyrir áskrift-
arkostnaði. Við hann bætist kostnaður vegna verk-
taka og verkefnisstjórnar. Aðeins er unnt að áætla
þennan kostnað því val á verktaka og samningar við
hann eru alfarið eftir. Hins vegar er unnt að gera sér
nokkuð góða grein fyrir kostnaðinum og nota niður-
stöðuna til viðmiðunar. Tekið er mið af verðlagi á al-
mennum markaði.
Kostnaðarþáttur 1. ár Millj. 2. ár Millj. 3. ár Millj. Alls
Áskriftir
Áfangi 1 10,8 10,8 10,8 32,4
Áfangi 2 7,0 7,0 14,0
Áfangi 3 10,0 10,0
2 starfsmenn
aðstaða, ferðir o.fl. 12,0 12,0 12,0 36,0
Aðkeypt sérfræðiþj. 1,0 1,0 1,0 3,0
Verkefnisstjórn 1,5 1,5 1,5 4,5
Samtals 25,3 32,3 42,3 99,9
Taflan sýnir að heildarfjárþörf við tímabundna til-
raunaverkefnið er tæpar 100 milljónir króna.
Lokaorð
Nefndin starfaði í tæpt ár og hafði á þeim tíma kann-
að með hvaða hætti væri unnt að tryggja íslending-
um aðgang að gagnasöfnum í gegnum Internetið.
Tæknin er til staðar en vandinn, sem við er að etja, er
hins vegar hið háa verð sem greiða þarf fýrir aðgang
að þeim gagnasöfnum sem æskilegt og jafnvel nauð-
synlegt er að geta boðið aðgang að. Það er ljóst að
íslensk bókasöfn hafa mikinn áhuga á að geta boðið
viðskiptavinum sínum aðgang að gagnasöfnum sem
nauðsynleg eru íslensku rannsókna- og vísindasam-
félagi, til eflingar þekkingar og nýsköpunar í atvinnu-
lífi. Vegna þess hve rannsóknasamfélagið hér á landi
er lítið og þjóðin fámenn er jafnvel lægsta verð á
gagnasöfnum mörgum bókasöfnum ofviða. Því verð-
ur að leita leiða til að tryggja að við njótum hag-
kvæmni stærðarinnar og gerum landssamninga um
aðgang að gagnasöfnum, annaðhvort ein eða í sam-
vinnu við aðrar þjóðir.
Heimildir:
Framtíðarsýn ríkisstjórnar íslands um upplýsingasamfé-
lagið (1996) Reykjavík. Ríkisstjórn íslands.
GALILEO. [Rafræn útgáfa]. Georgia Library Learning Online
46
BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001