Bókasafnið - 01.01.2001, Síða 7
Þar eru meðal annars teiknimyndasögur í úrvali, bæði
á íslensku og erlendum málum, tímarit og annað efni
sem höfðar til unglinga.
Tölvueign safnsins jókst verulega og nú hafa gest-
ir aðgang að um 30 tölvum tengdum Netinu og þar er
einnig hægt að leita í gagnagrunni safnsins. í barna-
deildinni eru þrjár tölvur eingöngu ætlaðar börnum
og einnig leikjastöð (Playstation tölva).
Með flutningnum í Grófarhús er lokið áratuga
baráttu starfsmanna og velunnara Borgarbókasafns
fyrir nýju húsnæði aðalsafns. Safnið hefur einnig
eignast nýjan bókabíl sem var tekinn í notkun 23.
janúar s.l. Það er þó ekki þar með sagt að starfsmenn
Borgarbókasafns geti siglt lygnan sjó inn í rósrauða
framtíð hóglífis og munaðar. í Bústaðasafni er hafinn
undirbúningur að flutningi í Kringluna síðar á þessu
ári. Enn vantar bókasafn í Árbæinn, en í janúar s.l. fól
borgarráð borgarbókaverði að kalla saman samstarfs-
hóp til að skoða með hvaða hætti væri hentugt að
koma fýrir útibúi þar. Svo má alltaf laga og bæta í eldri
söfnunum og blessuð tæknin sér til þess að við þurfum
að bæta við nýjum tækjum og tólum og starfsmönnum
og stólum og...
Gestir aðalsafns eru flestir ánægðir með nýja
safnið í Grófarhúsi þótt einstaka maður sakni gömlu
bókalyktarinnar. Þeir urðu þó margir ákaflega glaðir
þegar þeir sáu gömlu starfsmennina innan um allar
nýjungarnar, einhverja fasta punkta verða menn að
hafa í tilverunni.
Þáttur starfsmanna í flutningum sem þessum
verður seint ofmetinn. Það þarf gott starfsfólk með
létta lund til að allt gangi upp. En þegar það er til
staðar má bara hafa gaman að þessu öllu saman.
Heimildir
Þórdís Þorvaldsdóttir: Borgarbókasafn Reykjavíkur. í: Sál ald-
anna: íslensk bókasöfn í/ortíð og nútíð, Reykjavík : Háskóla-
útgáfan, 1997, s. 251-276
Anna Torfadóttir: Óútgefið efni, samtöl
7
Summary
Moving a mountain : moving the Main Library of
Reykjavik City Library from Esjuberg to Grófarhús.
The Main Library of Reykjavik City Library moved
to Tryggvagata 15 during the summer 2000. Now the
library shares premises with the Reykjavik City
Archives and Reykjavik Museum of Photography. This
article touches on the history of the Main Library and
discusses the preparations of the transportation to
the new building. A diverse collection of some
160.000 volumes had to be boxed and labelled.
Accommodation for patrons has been improved
substantially in the new building and space has
increased sixfold. The authors conclude that for such
a great task as the transportation ofThe Main Library
to be completed successfully, the role played by the
excellent staff should not be underestimated.
K.Ó.H
ORÐ
ORÐ í EYRA
Het’ur nú til sölu úrval hljóðbóka af
ýmsu tagi, fyrir börn og fullorðna.
Á þessu ári koma út
nýjar og spennandi bækur.
Fylgisl með tilkynningum frá ORÐI I
EYRA, Hljóðbókaútgáfu
BI i ndrabókasat'ns ísIands.
Upplýsingasími 564-4222
Netfang: ordieyra@ismennt.is
BÓKASAFNIÐ 25. Arg. 2001
5