Bókasafnið - 01.01.2001, Síða 16
sérstaklega þegar haft er í huga að það er ekki hægt
að prenta bækurnar út. Okkar reynsla hjá Bókasafni
Símans er sú að meðalverð fyrir skjábækur (fræði-
bækur) sé um 18-20 dollarar eða á bilinu 20-30%
lægra en sama bók á prenti. Svo verður að hafa í huga
að enginn sendingarkostnaður, virðisaukaskattur, toll-
skýrslukostnaður eða afgreiðslugjald bætist við
þannig að í heild er verðið langt undir því sem erlend
prentuð bók kostar bókasöfnin komin í hús. Síðast en
ekki síst, þá er bókin tilbúin fyrir notandann á örfáum
mínútum.
Framtíðin
Margt er óleyst og mörgum spurningum er ósvarað
varðandi framtíð rafbókanna. Mikilvægt er að fá
staðal (eða protocol) um form bókanna svo hægt sé
að lesa þær í þeim tækjum og tólum sem notendur
kjósa. Útgefendur hafa bannað útprentun á rafbók-
um af skiljanlegum orsökum, en það getur verið
bagalegt að geta ekki prentað út eina og eina síðu
(eins og t.d. þegar maður ljósritar stöku síðu úr bók)
til ýmissa nota.
Spurningum sem lúta að höfundarétti, virðis-
aukaskatti og öðru í þeim dúr hefur heldur ekki verið
svarað ennþá. Svo er líka spurning hvort notendur
vilja hafa „bókasafn" með sér hvert sem þeir fara,
kannske eru þeir bara hæstánægðir með eina bók en
aðgang að „áfyllingu" sem víðast, m.a. um vefinn eða
farsímann.
Mín skoðun er sú að hin hefðbundna bók muni
halda velli en rafbókin er samt óðum að festast í
sessi. Ég tel líklegt að þróunin verði sú að rafbókin
verði frekar notuð fyrir afþreyingarefni, ýmiss konar
handbækur, skýrslur svo og tæknilegt, fræðilegt og
faglegt efni, en fagurbókmenntir verði áfram gefnar
út á prenti. Ég tel líka að útgefendur skjábóka séu á
réttri leið með því að líkja eftir bókum eins og þær eru
í dag, þ.e. afsprengi 6000 ára þróunar.
Heimildir:
http://ebooks.barnesandnoble.com : Rafrænar bækur Adobe
Acrobat eBook Reader, Microsoft Reader og RCA REB 1100
skjábók.
http://www.aakb.bib.dk/hb/bibnyt/2000/44/artikell.htm
Udlán af elektroniske bpger begynder i Árhus.
http://www.aakb.bib.dk/hb/bibnyt/2001/7/artikell.htm Flere
elektroniske titler pá vejhttp://www.amazon.com Micro-
soft Reader og rafbækur fyrir hugbúnaðinn.
http://ebookempire.com : Rocket eBook.
http://www.powells.com/ebook/ebookeditions.html
Skjábækur og netbókaverslun.
http://www.rca.com RCA REB 1100 og 1200 skjábækur.
http://www.memoware.com/palm/ Hugbúnaður og bækur
fyrir lófatölvur.
http://store.palm.com/ Palm lófatölvur - upplýsingar um
búnaðinn
http://www.malogmenning.is Upplýsingar um rafbækur þ.á.
m. íslenskar.
http://www.ebook-gemstar.com/ Um RCA REB skjábækurn-
ar.
Summary:
Books in electronic format
In this article the author discusses changes in book
publishing, focusing on electronic books. For the last
two years, e-book publishing, e-book software and
hardware has been progressing with enormous
speed. In the article the author explaines the differ-
ences of products, focusing on the format and lack of
standards. This is followed by taking a closer look at
advantages and disadvantages of the RCA REB e-book
and it’s precedent the Rocket eBook. Experiments of
using e-books in libraries in Árhus Danmark, and
Iceland Telecom are discussed. The author discusses
the market expectations of publishers and how
pricing of electronic books can influence the
development of products. The article concludes with
a brief discussion of the future of electronic books.
14
BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001