Bókasafnið - 01.01.2001, Page 17

Bókasafnið - 01.01.2001, Page 17
Dögg Hringsdóttir, Elísabet Halldórsdóttir og Sigrún Hauksdóttir Landskerfi bókasafna - Um val á sameiginlegu tölvukerfifyrir íslensk bókasöfn Imars 1998 setti menntamálaráðherra á laggirnar nefnd sem hefur það hlutverk að gera tillögur um val á bókasafnskerfi sem hentað gæti fyrir öll bókasöfn í landinu þ.m.t. Landsbókasafn íslands, almenningsbókasöfn, skólasöfn og rannsóknarbóka- söfn. Hlutverk nefndarinn- ar er að velja eitt bóka- safnskerfi sem þjónað get- ur öllum landsmönnum eða eins og segir í erindis- bréfinu þá er nefndinni ætlað að hafa að leiðar- ljósi að öll bókasöfn í landinu geti orðið sam- tengd og að gagnagrunnar þeirra líti út sem ein heild frá sjónarhóli notenda. Auk þeirra markmiða sem menntamálaráðherra setti nefndinni hafði hún að leiðarljósi að auka hag- ræðingu í rekstri bóka- safnanna. í fyrsta lagi varðandi beinan kostnað við kaup og rekstur bóka- safnskerfa. í öðru lagi er takmarkið að útrýma marg- faldri vinnu vegna skrán- ingar bæði bókfræði- færslna og notendaupp- lýsinga innan bókasafna- umhverfisins hérlendis og auka gæði og áreiðanleika upplýsinganna. Að lokum er markmiðið að auðvelda aðgang allra íslendinga að safnkosti hvers safns eða allra safna landsins sem heild. Nefndin er skipuð fulltrúum frá menntamála- ráðuneytinu, Landsbókasafni íslands - Háskólabóka- safni, Borgarbókasafni og Sambandi íslenskra sveit- arfélaga. Formaður og starfsmaður nefndarinnar koma frá ráðuneytinu. Pétur Ásgeirsson var skipaður for- maður en hann lét af störfum í júní 1999 og þá tók Arnór Guðmundsson sæti hans. Þóra Óskarsdóttir er starfsmaður nefndarinnar. Fulltrúar Landsbókasafns voru Andrea Jóhannsdóttir og til vara Sigrún Hauks- dóttir. Andrea fór í starfsleyfi frá Landsbókasafninu í febrúar 1999 og þá tók Sigrún sæti hennar og Auður Gestsdóttir til vara. Full- trúar Borgarbókasafns eru Elísabet Halldórsdóttir og til vara Þóra Sigurbjörns- dóttir. Á vordögum 2000 var Dögg Hringsdóttir ráð- in kerfisbókavörður hjá Borgarbókasafni og tók hún þá sæti Þóru Sigur- bjömsdóttur. Fulltrúar Sam- bands íslenskra sveitar- félaga eru Marta Hildur Richter og Anna Sigríður Einarsdóttir til vara. Auk nefndamanna hafa fjölmargir aðrir lagt hönd á plóg. Má þar fyrstan nefna Pál Grétarsson verkefnis- stjóra hjá Ríkiskaupum sem hafði veg og vanda af útboðsferlinu og úrvinnslu tilboða ásamt nefndinni. Bjarni Júlíusson og Magnús Atli Guðmundsson voru tæknilegir ráðgjafar, Sig- bergur Friðriksson sérfræð- ingur á Landsbókasafni að- stoðaði við skráningar- og samskrárþætti, Ingibjörg Rögnvaldsdóttir verkefnisstjóri á Borgarbókasafni við leitarþátt, Sjöfn Kristjánsdóttir handritasérfræðingur á Landsbókasafni við sérhæfð atriði handrita, Þórdís Þórisdóttir stjórnarráðsfulltrúi í menntamálaráðuneyti vann að frágangi útboðsgagna. Auk þeirra sem hér hafa verið upptaldir hafa fjölmargir bókasafnsfræðingar Borgarbókasafns og Landsbókasafns auk fulltrúa í rýnihópum frá enn fleiri söfnum lagt fram ómælda vinnu við þarfagreiningu og val á bókasafnskerfmu. Handritaskrifarar. Smámyndfrá 11. öld. Bókasafnið 25. ÁRG. 2001 15

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.