Bókasafnið - 01.01.2001, Blaðsíða 19
- Metrabók er íslenskt bókasafnskerfi sem notað er
í mörgum smærri söfnum.
- Embla er ástralskt kerfi (Alice) sem notað er í
nokkrum smærri söfnum.
1.2 íslensk bókasöfn í stafrænt upplýsinganet
Arið 1995 skipaði menntamálaráðuneytið nefnd sem
átti að gera tillögur um hagkvæmustu leiðina til þess
að tengja bókasöfn landsins í stafrænt upplýsinganet
og þar með gera þeim kleift að leggja færslur sínar í
sameiginlegan gagnagrunn. í stuttu máli var niður-
staða nefndarinnar að samnýta skyldi bókasafnskerf-
in Feng og Gegni með samskiptastaðlinum Z39.50. Á
þessum tímapunkti var hugmyndin sú að flest bóka-
söfn myndu sækja um aðild annað hvort að Gegni
eða Feng. Nefndin tók ekki afstöðu til þess hvort
kerfið söfnin skyldu nota. Önnur meginniðurstaða
nefndarinnar var að styrkja minni söfn til tölvukaupa
og tengingar við Internetið.
1.3 Nefnd um val á bókasafnskerfi
í mars 1998 skipaði menntamálaráðherra nefnd þá
sem getið er í upphafi greinarinnar. Á þessum tíma
var orðið ljóst að þróun Libertas kerfisins yrði hætt
innan örfárra ára og Dobis/Libis kerfið væri orðið mjög
úrelt og því brýn þörf á því að huga að endurnýjun.
2 Störf nefndarinnar
Fyrsta verkefni nefndarinnar var að afla upplýsinga
um þau bókasafnskerfi sem í boði eru. Spurningalisti
var sendur út til allra helstu framleiðanda þar sem
leitað var upplýsinga um hvaða þættir væru í boði og
hver tæknilegur grunnur kerfanna væri ásamt þjón-
ustuupplýsingum. Augljóst var að kaup af þeirri
stærðargráðu sem bókasafnskerfi fyrir öll bókasöfn
landsins er yrðu að fara í útboð á hinu evrópska
efnahagssvæði. Ákveðið var að fara í svonefnt lokað
útboð. Á haustdögum var farið í forval og höfðu Ríkis-
kaup umsjón með því. Tilboð í forvali voru opnuð 20.
desember 1998 og var þá ljóst að mun færri aðilar
höfðu tekið þátt en þeir sem höfðu svarað fyrrnefnd-
um spurningalista. Af þeim kerfum sem nefndin taldi
vænleg höfðu aðeins fjögur tekið þátt og við bættust
þrjú óþekkt kerfi sem við nánari athugun reyndust
ekki henta svona viðamiklu bókasafnaumhverfi.
Nefndinni fannst fjögur álitleg kerfi heldur rýr upp-
skera í forvali því óvíst væri um þátttöku í lokaútboði.
Til að bæta gráu ofan á svart höfðu þrjú tilboð að auki
verið send á rangan stað eða borist of seint. Ennfrem-
ur höfðu á þessum tíma orðið ýmsar breytingar í
tölvumálum sem gætu haft áhrif á val á kerfi og
einnig hafði kaupendahópurinn stækkað. Eftir ná-
kvæma íhugun, vangaveltur og ráðleggingar sérfræð-
inga var ákveðið að rifta þessu lokaða útboði og byrja
upp á nýtt, í þetta sinn í opnu útboði.
2.1 Högun landskerfis
Sumarið 1999 hófst vinna við nákvæma þarfagrein-
ingu og má þá segja að grunnhugmyndin að Lands-
kerfi bókasafna hafi mótast. Við undirbúning var litið
til mismunandi samskráa en fjórar tegundir af sam-
skrám tíðkast:
- Einn sameiginlegur gagnagrunnur sem allir
skrá í og síðan eru færslur sóttar í gagnagrunn-
inn fyrir kerfi einstakra bókasafna, sbr. Libris í
Svíþjóð.
- Einn gagnagrunnur sem allir skrá í og sérstakir
bókasafnsgrunnar eru ekki til. Þetta form er
notað bæði í Feng og Gegni.
- Sýndarsamskrá eða Virtual OPAC. Margir gagna-
grunnar og mismunandi bókasafnskerfi sem eru
samkeyrð með samskiptastaðlinum Z39.50.
- Sameinaðar skrár, þar sem ólíkir gagnagrunn-
ar eru keyrðir saman og snyrtir til.
Fram að þessum tíma hafði nefndin uppi þrjár meg-
inhugmyndir um högun landskerfis.
- Samtenging mismunandi bókasafnskerfa með
samskiptastaðlinum Z39.50.
- Samtenging margra gagnagrunna sem nota
sama bókasafnskerfið.
- Eitt bókasafnskerfi og einn gagnagrunnur sem
þjónar öllum bókasöfnum.
Niðurstaða nefndarinnar var þriðja hugmyndin, þ.e.
eitt bókasafnskerfi og ein samskrá sem skyldi þjóna
öllum bókasöfnum landsins. Helstu rökin voru :
- Ódýrasta lausnin, því hvert nýtt kerfi kostar í
grunninn það sama og fyrsta kerfið
- Samnýting á þekkingu
- Þjónusta bókasafna við alla landsmenn mun
batna til muna
- Allar sértækar upplýsingar er varða hvert safn
skulu aðeins vera aðgengilegar viðkomandi
safni. Ef það er ekki framkvæmanlegt með einu
kerfi verður að kaupa fleiri eintök af sumum
þáttum kerfisins, t.d. sérstakan útlánaþátt fyr-
ir hvert safn
Sýn fyrir nýtt bókasafnskerfi sem þjónað geti öllum
bókasöfnum í landinu byggir á fyrrgreindum mark-
miðum og eru eftirfarandi atriði sem rauður þráður í
þarfagreiningunni.
- Ein bókfræðileg samskrá sem öll söfn sem hafa
skráningarheimild skrá í.
- Bókfræðifærslur fyrir íslenskt efni, þjóðbóka-
skrá, skulu varðar gegn breytingum eða vera
geymdar í sérstökum gagnagrunni.
BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001
17