Bókasafnið - 01.01.2001, Page 20

Bókasafnið - 01.01.2001, Page 20
- Samskrártákn, flokkstala og staðsetning verði tengd eintökum en ekki bókfræðilegri færslu. - Skilgreindur verði réttur safna til þess að skrá í kerfið. Þau söfn sem minnst þurfa að skrá munu ekki hafa skráningarheimild en munu geta tengt safnkost sinn. Lagt er til að gerðir verði þjónustusamningar safna á milli vegna skráningar þegar þess þarf með. Þetta er gert til þess að auka öryggi og áreiðanleika bók- fræðifærslanna. - Söfn sem ekki eru þátttakendur í Landskerfinu geti sótt bókfræðifærslur í kerfið. - Færslurnar verði almenningseign, þ.e. ekki verði tekið gjald fyrir þær. - Efnisorðagjöf verði samræmd. - Hægt verði að leita bæði í einstökum söfnum og ákveðnum fyrirfram skilgreindum hópum safna, t.d. eftir landshlutum, safnategundum o.s.frv. - Sameiginleg skrá yfir notendur, tenging við þjóðskrá. - Kennitala verði notuð sem númer notanda. - Sérstök bókasafnsskírteini verði aflögð en not- endur noti önnur persónuskilríki sem strika- merki verði límd á en ákjósanlegast er ef skanni getur lesið kennitöluna. - Kerfið verði þó að geta útbúið skírteini fyrir börn og aðra sem ekki hafa hentug skilríki. - Aðrar notendaupplýsingar en þær sem eru í þjóðskrá verði sértækar fyrir hvert safn. - Kerfisbókavörður geti skoðað útlánasögu safn- gagns tvö lán aftur í tímann. (Leitað verði um- sagnar Tölvunefndar.) - Kerfið verði að geta skilgreint mismunandi hópa notenda. 2.2 Vinna við þarfagreiningu Nefndin kynnti sér þarfagreiningu / útboðsgögn frá ýmsum bókasöfnum á Norðurlöndum og ákvað að leggja til grundvallar þarfagreiningu fyrir finnsk há- skóla- og rannsóknarbókasöfn. Hugmynd Finnanna er skyld okkar hugmyndum um landskerfi nema þeirra kerfi nær aðeins til háskólaumhverfisins. Einnig var þeirra þarfagreining mjög ítarleg og spar- aði okkur því mikla vinnu. Ákveðið var að mynda sér- fræðivinnuhópa til þess að aðlaga finnsku þarfa- greininguna að okkar þörfum. Á Landsbókasafni voru vinnuhópar fyrir hvern meginþátt bókasafnskerfis- ins, þ.e. skráningar-, útlána-, millisafnalána-, að- fanga-, tímarita- og leitarþátt. Á Borgarbókasafni var hópur sem einbeitti sér að útlánaþættinum. Síðsumars og haustið 1999 vann nefndin úr gögn- um vinnuhópanna með tilliti til landskerfis. í lok október var þarfagreiningin tilbúin til umsagnar. Um- sagnaraðilar voru skilgreindir Landsbókasafn ís- lands, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Bókís - notenda- félag Fengs, Aðildarsöfn Gegnis, Samtök forstöðu- manna almenningsbókasafna, Náttúrufræðihópur bókavarða, Bókavarðafélag íslands, Félag um al- mennings- og skólabókasöfn, Félag bókavarða í rann- sóknarbókasöfnum, Samstarfshópur bókavarða í framhaldsskólum og Félag bókasafnsfræðinga. Nefndin hélt fimm kynningarfundi fyrir umsagn- araðila dagana 29. október til 4. nóvember til þess að fylgja drögum að þarfagreiningu / útboðsgögnum úr hlaði. Fundað var með hinum ýmsu hópum bóka- safna og bókavarða, þar á meðal var einn fundurinn dreifður á fjóra staði á landinu með hjálp fjarfund- arbúnaðar. Á fundunum voru kynntar hugmyndir um eitt bókasafnskerfi fyrir landið og haldnir fyrirlestrar um þarfagreininguna, tæknileg atriði varðandi útboð- ið og punktar um skipulag og samstarf. Alls mættu um 150 manns á fundina og má segja að almennt hafi fundarmenn lýst áhuga og stuðningi við eitt bóka- safnskerfi sem hentað geti öllum söfnum landsins. Drögum að þarfagreiningunni var dreift til umsagnar á fundunum. í lok nóvember skiluðu umsagnaraðilar, 17 alls, umsögn og athugasemdum. Næstu þrír mánuðir voru notaðir til þess að ljúka vinnu við þarfagreiningu og var hún tilbúin til útboðs um miðjan febrúar 2000. 2.3 Annar undirbúningur í byrjun árs 2000 fóru tveir nefndarmenn, Elísabet Halldórsdóttir og Sigrún Hauksdóttir, á miðsvetr- arfund ALA, bandarísku bókavarðasamtakanna, í San Antonio í Texas. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér nýjungar í notkun bókasafnskerfa og mynda tengsl við seljendur þeirra. Enginn vafi er á að vegna þessar- ar ferðar bárust fleiri tilboð en ella hefði orðið. Einnig safnaðist mikil þekking á bókasafnskerfum og við- skiptaumhverfi þeirra sem nýst hefur á seinni stigum kerfisvalsins. Nefndin taldi nauðsynlegt að afla hugmyndinni um eitt landskerfi bókasafna fylgis og hélt því kynn- ingarfundi m.a. fyrir starfsmenn bókasafna, sveitar- stjórnarmenn og nemendur í bókasafnsfræði við HÍ auk þeirra funda sem áður hafa verið nefndir. 3 Útboð Landskerfi bókasafna var boðið út á evrópska efna- hagssvæðinu þann 21. febrúar 2000 í samræmi við lög og reglugerðir. Formleg kostnaðaráætlun lá ekki fyrir vegna útboðsins en fyrirfram gerði nefndin sér hug- myndir um að kostnaður við kaup á nýju kerfi og rekstur þess í 5 ár (leyfis- og viðhaldsgjöld greidd framleiðanda kerfisins) gæti numið á bilinu 100 til 150 milljónum króna. Er þá ótalinn eiginlegur rekstr- arkostnaður, s.s. hýsing netþjóns og vinna kerfis- bókavarða. Útboðsgögn voru unnin af Ríkiskaupum en þarfa- 18 BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.