Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 13

Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 13
Lestur þriðjudagsins 25. nóvember 1958. Að þéi* vegni vel, og að |»ia sért lieill heilsu EFTXR T. R. FI.AIZ „En sérhver, sem tekur þátt í kappleikjum, er bindindissamur í öllu, þeir til þess að hljóta forgengilegan sigursveig, en vér óforgengi- legan. Þess vegna hleyp ég þá ekki eins og upp á óvissu; ég berst eins og hnefaleikamaður, er engin vindhögg slær; en ég leik líkama minn hart og gjöri hann að þræli mínum, til þess að ég, sem hefi prédikað fyrir öðrum, skuli ekki sjálfur verða gjörður rækur.“ 1. Kor. 9, 25—27. Fyrr í þessu sama bréfi til Korintumanna, vekur Páll athygli þeirra á því, að líkamir okkar allra séu musteri Guðs. „Vitið þér eigi, að þér eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í yður? Ef nokkur eyðir musteri Guðs, mun Guð eyða honum, því að musteri Guðs er heilagt, og það eruð þér.“ 1. Kor. 3, 16. 17. Til eru þeir, sem lýsa því yfir bæði í orði og athæfi, að það sé persónulegt einkamál þeirra sjálfra, hvað þeir geri við líkami sína. Vilji þeir eta yfir sig og stytta ævi sína um tíu eða tuttugu ár með hjartaslagi, komi það þeim einum við. Ef þá langar til að drekka, reykja, ofgera sér með vinnu eða vinna ekki nóg, komi það þeim einum við. Þessir menn gleyma skyldu sinni við fjölskyldu sína, söfnuð, þjóð- félag eða ættland. Viðvíkjandi skyldu þeirra við Guð, segir Páll ennfremur: „Eða vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri Heilags anda í yður, sem þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin, því að þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð í líkama yðar.“ 1. Kor. 6, 19. 20. í þessum athugasemdum er það ljóslega fram sett, að því meiri vitsmunalegan skiln- ing sem einstaklingurinn hefur á heilsuvernd, því ábyrgari er hann fyrir Guði á heilsusam- legu viðhaldi líkama síns. Okkur er sagt, að líkaminn sé ekki okkar eiginn, heldur hafi Guð léð okkur hann. Hann er tæki, sem við getum vegsamað Guð með. Við verðum því að álykta, að Guð beri heilsu okkar fyrir brjósti eða líkamlegt ásigkomulag okkar. Ofangreind staðhæfing Páls lýsir upphaí: legum tilgangi Guðs með sköpun mannsins. í bókinni Ministry of Healing, bls. 415, lesum við: „Samkvæmt guðlegri ráðsályktun átti maðurinn, sem er öllum lífverum æðri og kóróna sköpunarverksins, að tjá hugsun Guðs og opinbera dýrð hans, því að „Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd.“ 1. Mós. 1, 27. Guð auð- sýndi manninum heiður með því að skapa hann eftir sinni mynd, og hann bjó honum hið merk- asta sköpunarverk, sem maðurinn hefur nokkra hugmynd um, — mannslíkamann, — og léði honum ævilangt, (upphaflega var ætlazt til að það yrði eilíflega) og bað um það eitt, að maðurinn vegsamaði skapara sinn í líkama sínum. „Svo áminni ég yður, bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram líkami yðar að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn, og er það skynsamleg guðsdýrkun af yðar hendi.“ Róm 12, 1. Það er ástæða til að ætla, að kjarni og líf fagnaðarboðskaparins sé endurreisn guðs- myndarinnar í manninum. Hlutverkið, sem Jesús fól lærisveinum sínum, gerir þetta sam- band augljóst. „En á ferðum yðar skuluð þér prédika og segja: Himnaríki er í nánd. Lækn- ið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda; ókeypis hafið þér meðtekið, ókeypis skuluð þér af hendi láta.“ Matt. 10, 7. 8. Þessi fyrirskipun, sem lærisveinunum var gefin viðvíkjandi starfsháttum, er sönn lýsing á starfsaðferð Krists sjálfs. Oftsinnis greina guðspjallahöfundarnir frá því, að Jesús hafi snortizt meðaumkun vegna þjáninga mannfjöldans, sorga hans og hung- urs. Af fordæmi Krists megum við draga þá skynsamlegu ályktun, að það er í sjálfu sér verðugt markmið kristniboðsstarfs að lina

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.