Bænavikan - 22.11.1958, Qupperneq 32

Bænavikan - 22.11.1958, Qupperneq 32
— 32 — auðugar kenningar sínar. Hann varð að leita að mönnum, sem voru fúsir til að láta endur- nýja hjörtu sín. Hann kom til að gefa mönn- um ný hjörtu. En hinir sjálfsréttlátu bæði fyrr og nú finna enga þörf fyrir að eignast nýtt hjarta. Jesús gekk framhjá fræðimönn- unum og Faríseunum, því að þeir fundu enga þörf hjá sér fyrir frelsara. Þeir voru upptekn- ir af formi og helgisiðum. Kristur hafði sjálfur stofnsett þessa siði; þeir höfðu verið fullir af lífi og andlegri fegurð, en Gyðingarnir höfðu glatað andlega lífinu í helgisiðum sínum og héldu sér í dautt formið, eftir að andlega lífið var útdautt meðal þeirra. Þegar þeir viku frá kröfum og boðorðum Guðs, leituðust þeir við að fylla upp í eyðurnar með því að fjölga sín- um eigin boðum, og gerðu þau miklu strangari en boð Guðs. Því strangari sem þeir urðu, því minni kærleika og guðrækni sýndu þeir. Krist- ur sagði við mannfjöldann: ,,A stóli Móse sitja fræðimennirnir og Farísearnir. Allt, sem þeir segja yður, skuluð þér því gjöra og halda, en eftir verkum þeirra skuluð þér eigi breyta; því að þeir segja það, en gjöra það eigi. Og þeir binda þungar byrðar og lítt bærar, og leggja mönnum þær á herðar, en sjálfir vilja þeir ekki snerta þær með fingri sínum. En öll sín verk gjöra þeir, til þess að sýnast fyrir mönnum, því að þeir gjöra minnisborða sína breiða og stækka skúfana. Og þeir hafa mætur á helzta sætinu í veizlunum og efstu sætunum í samkundunum og að láta heilsa sér á torg- unum, og að vera nefndir „rabbí“ af mönnum. ---- Vei yður, fræðimenn og Farísear, þér hræsnarar! Þér gjaldið tíund af myntu, anís og kúmeni, og skeytið eigi um það, sem mik- ilvægara er í lögmálinu: réttvísina og misk- unnsemina og trúmennskuna. En þetta bar að gjöra og hitt eigi ógjört láta.“ Matt. 23, 2—7. 23. Hinum síðasta söfnuði er ætlað að ganga í gegnum sams konar reynslu og Gyðingarnir; og votturinn trúi, sem gengur milli gullstik- anna sjö, hefur alvarlegan boðskap að flytja, hann segir: „En það hefi ég á mcti þér, að þú hefir fyrirlátið þinn fyrri kærleika. Minnst þú því, úr hvaða hæð þú hefir hrapað, og gjör iðrun, og gjör hin fyrri verkin; að öðrum kosti kem ég til þín og færi ljósastiku þína úr stað, ef þú gjörir ekki iðrun.“ Op. 2, 4. 5. Kærleiki Guðs hefur farið þverrandi í söfnuð- inum, og afleiðingar þess eru, að sjálfselsk- an hefur risið upp í nýjum mætti. Um leið og kærleikurinn til Guðs dvínar, dvínar einnig bróðurkærleikurinn. Þó að lýsingin á söfnuð- inum í Efesus geti átt við söfnuð okkar, getur söfnuðinn samt skort nauðsynlega guð- rækni. Jesús sagði um hann: „Ég þekki verkin þín og erfiðið og þolinmæði þína, og að eigi getur þú sætt þig við vonda menn; og þú hefir reynt þá, sem segja sjálfa sig vera postula, en eru það ekki, og þú hefir komizt að því, að þeir eru lygarar. Og þú hefir þolinmæði, og byrðar hefir þú borið fyrir míns nafns sakir og ekki þreytzt. En það hefi ég á móti þér, að þú hefir fyrirlátið þinn fyrri kærleika.“ Op. 2, 2—4. Hátíðlegar guðsþjónustur, trúarlegir helgisið- ir, ytri auðmýkt og tilkomumiklar fórnir, allt þetta ber vott um, að viðkomandi álíti sjálfan sig réttlátan. Það er allt til að vekja athygli á sjálfum sér og koma öðrum til að segja: Þessi maður hlýtur að fá inngöngu í himna- ríki. En það er blekkingin eintóm. Verkin kaupa okkur ekki aðgang að himninum. Fórn- in mikla, sem færð var, nægir öllum þeim sem trúa. Kærleiki Krists mun gæða hinn trúaða nýju lífi. Sá, sem drekkur af uppsprettu lífs- ins, mun verða fylltur hinu nýja víni guðs- ríkis. Réttur andi og hvöt munu stjórna hin- um trúaða, og gæzka og guðrækni munu koma í ljós hjá þeim, sem beina sjónum sínum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar. Beinið sjónum ykkar til Guðs en ekki til manna. Guð er hinn himneski faðir ykkar, sem er fús til að umbera breyskleika ykkar með þolinmæði, fyrirgefa hann og lækna. „En í því er hið eilífa líf fólgið, að þeir þekki þig, hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir, Jesúm Krist. Þú munt umbreytast við það að horfa á Krist, þar til þú ferð að hata fyrri hroka, hégómagirnd og sjálfsálit, sjálfsrétt- læti og vantrú. Þú munt varpa þessum synd- um frá þér eins og einskisnýtri byrði og ganga með auðmýkt, hógværð og trausti frammi fyr- ir Guði. Þú munt iðka kærleika, þolinmæði, mildi, gæzku, miskunnsemi og sérhverja dyggð, sem býr í guðsbarninu, og að lokum muntu fá að dvelja meðal hinna helguðu og heilögu. 00562293 - 6

x

Bænavikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.