Heimili og skóli - 01.10.1946, Qupperneq 13
HEIMILI OG SKÖLI
107
HANNES J. MAGNÚSSON:
Andinn eða efnið
I.
Þau orð eru höfð eftir einhverjum
stórbokka sögunnar, að hann hefði allt
á valdi sínu nema tímann. Sú mikla
elfur rennur sinn eilífa farveg við-
stöðulaust, hvað sem öll stórmenni
heimsins segja. Glataður dagur, glatað
andartak kemur aldrei aftur. Tíminn
kemur og fer. Hann gefur mönnum
gjafir sínar, en dýrmætasta gjöfin er
þó andartakið, sem er að líða. Það er
tækifærið. Það er hin dýrðlega óska-
stund, sem okkur er öllum gefin. Það
er pundið mikla, sem konungur kon-
unganna hefur fengið okkur til að
ávaxta. Og ég held, að mér sé óhætt að
fullyrða það, að munurinn á hamingju
og óhamingju, menningu og ómenn-
ingu einstaklinga og þjóða liggi ekki
hvað sízt í ólíkri afstöðu til andar-
taksins, sem er að líða. En þrátt fyrir
allt er þó tíminn hinn mikli fræðari,
og þótt nemendurnir séu misjafnir,
grilla þó flestir í þann sannleika von
hráðar, að eins og maðurinn sáir, svo
mun hann og uppskera. Gott heimili
nýtur venjulega ánægjunnar af góð-
um og vel upp öldum börnum. Góður
kennari og góður skóli sér óneitanlega
mikinn ávöxt af starfi sínu, þótt upp-
skeran sé ekki alltaf í réttu hlutfalli
við þá orku, sem lögð var fram. Öll
ræktun, hvort sem það er jarðrækt eða
mannrækt, felur í sér fyrirheit, þótt
þau rætist ekki í dag eða á morgun.
Hún er engin spákaupmennska. Það
er ávöxtur af erfiði. áhyggjum og fórn-
um. Ræktunarmaðurinn má ekki vera
neinn ,,acta“-skrifari. Hann þarf að
standa í nánu sambandi við lífið sjálft
og vera skyggn á lögmál þess, hvort
sem þeirra er að leita í mold og gró-
andi jörð, eða í mannlegum sálum.
II.
Mannkynið er nú flakandi í sárutn.
Hrun hinna sigruðu er orðið að ægi-
legu böli, og sigurvegararnir hafa
o 7 o o o
12 ára bekkir:
Viðfangsefni:
1. Upprifjun 9—11 ára námsefnis.
2. Urn hvar rita skal n og hvar nn í
endingum.
3. Um g. (Lágur — lágt, hann hló,
þeir hlógu, um boga — boginn).
4. Um f, p og v. (Hefla, tefla, — efna,
nefna, tólf, tólfti, — klípa, kleipstu, —
hörfa, örva, til sjávar).
5. Um stafasamböndin gld og lgd, —
o o o 7
glt og lgt, — gnt pg ngt — og hljóðlaust
b. (Sigla — sigldi — siglt, velgja —
velgdi — velgt, signa — signdi — signt,
— kemba — kembdi — kembt o. s. frv.).
6. Um y — ý og ey.
7. Ýmis atriði. — Stór stafur og lít-
ill. Eitt orð eða tvö. Raðtölumerki.
Skammstafanir o. fl.
8. Um z.
9. Ýmiss konar stílar. T'öflustílar.
Endursagnir. Greinanuerki. Ritgerð-
ir. Bundnu máli snúið í óbundið mál.