Heimili og skóli - 01.10.1946, Side 20
HEIMILI OG SKÓLI
11 i
Skemmtileg
barnabók
Heimili og skóla barst fyrir skömrna
óvenjulega faileg og skemmtileg
barnabók. Nafnið er ákaflega yfir-
lætisiaust, því að bókin heitir blátt
áfram Visnabókin, og útgefandi er
Hlaðbúð í Reykjavík.
í bók þessa hefur Símon Jóh.
Agústsson prófessor safnað ýmsum
gömlum barnaljóðum og vísum,
vögguljóðum, þulum og gátum, sem
feður okkar og mæður, afar okkar og
ömmur, rauluðu við börn sín. Og þó
að nokkuð sé þarna af vísum og Ijóð-
um frá seinni árum, hefur þó mestur
hlutinn lifað á vörum þjóðarinnar
kynslóð fram af kynslóð.
Við iestur þessarar bókar lifir mað-
ur á ný margar hljóðlátar rökkur-
stundir frá bernskudögunum, þegar
töfrar vísnanna og okkar eigið ímynd-
unarafl fylltu litlu baðstofuna annar-
legri ævintýradul. Og frá þessum
sömu, Ijúfu ómum sofnuðum við svo
á kvöldin með frið í lijarta. „Sofa
manna börn í mjúku rúmí, bía og
kveða, og babbi þau svæfir."
Bók þessi er' ein hin þjóðlegasta,
sem út hefur komið um langt skeið.
Þar hijómar gamall og hugþekkur
strengur, sem of lítið hefur borið á
í seinni tíð, þegar erlendir og innlend-
ir „slagarar“ liafa farið sigurför um
landið. Og það er ósk mín, að Vísna-
bókin mætti verða til þess að hefta
nokkuð för þeirra.
Ekki má gleyma að geta þess, að
bókin er prýdd forkunnar fallegum
myndum eftir Halldór Pétursson list-
málara, og er efni þannig niður rað-
að, að mynd er alltaf á annarri síð-
unni, en vísurnar á hinni, og gefur
það þeim nýtt líf og aukið gildi.
Nokkrar þessara mynda eru prentaðar
með litum, og spillir það ekki fyrir.
Foreldrum, sem vilja gefa barni
sínu góða bók, er óhætt að velja
Vísnabókina. Og trúað gæti ég, að hún
seldist upp á skömmum tíma, ef upp-
lagið er ekki því stærra.
H. J. M.
Skriístafavísur
Lag: Gamli Nói.
Okkur höllum, okkur höllum
ögn til hægri — sko!
Höldum í liendur saman,
hæ! Það er svo gaman.
Jafnir háir, jafnir lágir,
Jónsi skrifar svo.
Ekki hvassir, ekki þröngir.
Allir syngja í kór:
Að gera okkur gleiða,
geispandi og leiða.
Það er kattar-, það er kattar-,
það er kattarklór.
V. Ö.