Heimili og skóli - 01.10.1946, Qupperneq 22
116
HEIMILI OG SKÓLI
1. Að því aðeins sé lenging skólaskyldunnar
framkvæmd, að stórum verði aukið verklegt nám
i unglingadeildunum frá því sem nú er í 7. bekk
barnaskólanna.
2. Að barnakennarar verði hafðir með í ráðum,
þegar ákveða skal endanlega námsefni í 1. bekk
unglingaskólans, sem á að taka við 14. aldursár-
inu af barnaskólunum. Verður það að teljast
mikilvægt, að börnum á þeim aldri verði ekki
ofþyngt með miklti og þungu bókpámi, en barna-
kennarar hins vegar kunnugastir námsgetu og
þroska þessa aldursstigs.
3. Að jafnframt því sem aukið verði verklegt
nám í unglingadeildinni, verði einnig kristin-
dómsfræðslu og öðrum siðrænum viðfangsefnum
gefið ríflegt rúm í námsskrá fyrir 14—15 ára
nemendurna, og því komi það ekki til mála að
skerða þá kristindómsfræðslu, sem 14. aldursáriff
hefur haft hingað til, heldur eigi miklu fremur
að auka hana.
4. Að um leið og nám yngri deildar barnaskól-
anna verður aukið, komi hjálpargögn í skrift og
átthagafræði.
5. Að beitt sé fyllstu varkárni við útilokun
barna frá eldri deild með prófi upp úr yngri
deild, meðan engir skólar eru til fyrir þau börn.
6. Að barn, sem eftir tveggja ára nám í elztu
deild barnaskólans nær ekki barnaprófi, losni við
framhaldsskólaskyldu, nema við verklegt nám.
7. Að jafnframt því sem reglugerð og nám-
skrá barnaskólanna verður samin, séu námsbæk-
ur endurskoðaðar og nýjar samdar, sem svari til
þeirra breyttu viðhorfa, er stytting skólaskyld-
unnar unt 1 ár hefur í för með sér.
8. Fundurnn telur sjálfsagt, að nefnd reyndra
barnakennara aðstoði við að semja reglugerð um
öll próf í Irarnaskólum og námskrár þær, er
þeinr verða settar samkvæmt hinum nýju fræðslu-
lögum.
Vorið.
Þriðja hefti af barnatímaritinu Vorinu er nú
komið út fvrir skömmu og flytur að vanda mjög
fjölbreytt lesefni fyrir börn og unglinga. Þarna
eru margar sögur, kvæði, leikrit, gátur og þrautir,
gaman og alvara o. m. fl. Meðal annars er þarna
sagan af Steini Bollasyni í leikritsformi, mjög
skemmtilegum búningi. Margar myndir eru í
ntinu. Það kostar aðeins 5 krónur.
/.' = -■ ..............-.....■ =?■
HEIMILI OG SKÓLI
Tímarit um uppeldismál
Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar
Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst
20 síður hvert hefti, og kostar árg. kr.
10.00, er greiðist fyrir 1. júní.
Útgáfustjóm:
Snorri Sigfússon, skólastjóri.
Kristján Sigurðsson, kennari.
Hannes J. Magnússon, yfirkennari.
Afgreiðslumaður:
Sigurður Jónsson skrifstofumaður, Eyrar-
landsveg 29.
Innheimtumaður:
Eiríkur Sigurðsson, kennari, Hrafnagils-
stræti 12, sxmi 262.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, Páls Briems-götu
20, sími 174
Prentverk Odds Bjömssonar
,[--------- . '
Útbreiðið Heimili og skóla.
Vinir og velunnarar ritsins eru beðnir að út-
vega því nýja áskrifendur. Nýir útsölumenn ósk-
ast, sérstaklega í sveitunum. Munið, að nýir
kaupendur fá síðasta árgang ókeypis.
í þessum tveimur vísum finnst stafrófið, nema
x og z:
Gömul vísa.
Afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suður á bæi
að sækja bæði sykur og brauð
sitt af hvoru tæi.
Hýr hann kemur heim í kvöld,
hlakkar stúlka og piltur.
Mér hann gefur mola og högld,
mun ég þakka stilltur.
V. Ö-