Heimili og skóli - 01.12.1946, Side 3

Heimili og skóli - 01.12.1946, Side 3
Heimili og skóli TÍMARIT UM UPPELDISMÁL 5. árgangur. Nóvember—Desember 6. hefti fólin 18Q1 Eftir Matth. Jochumsson Fullvel man eg íimmtíu ára sól, fullvel meir en hálfrar aldar jól, man það fyrst, er sviítur allri sút sat eg barn með rauðan vasaklút. Kertin brunnu bjart í lágum snúð, bræður fjórir áttu ljósin prúð, mamma settist sjálf við okkar borð; sjáið, ennþá man eg hennar orð: „Þessa hátíð gefur okkur guð, guð, hann skapar allan lífsfögnuð, án hans gæzku aldrei sprytti rós, án hans náðar dæi sérhvert ljós. Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð, guð hefir kveikt, svo dýrð hans gætuð séð; jólagleðin ljúfa lausnarans leiðir okkur nú að jötu hans." Síðan hóf hún heilög sagnamál, himnesk birta skein í okkar sál; aldrei skyn né skilningskraftur minn skildi betur jólaboðskapinn. Margan boðskap hef eg hálfa öld heyrt og munað fram á þetta kvöld, sem mér kveikti ljós við ljós í sál, — ljós, sem oftast hurfu þó sem tál. Hvað er jafnvel höndum tekið hnoss? Hismi, bóla, ský, sem gabbar oss; þóttú vinnir gjörvallt heimsins glys, grípur þú þó aldrei nema fis! Arsól hver, sem öllu fögru hét, ætíð hvarf á meðan rósin grét; vorið hvert, sem bauð mér betri hag, brást mér löngu fyrir vetrardag.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.