Heimili og skóli - 01.12.1946, Page 3
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
5. árgangur. Nóvember—Desember 6. hefti
fólin 18Q1
Eftir Matth. Jochumsson
Fullvel man eg íimmtíu ára sól,
fullvel meir en hálfrar aldar jól,
man það fyrst, er sviítur allri sút
sat eg barn með rauðan vasaklút.
Kertin brunnu bjart í lágum snúð,
bræður fjórir áttu ljósin prúð,
mamma settist sjálf við okkar borð;
sjáið, ennþá man eg hennar orð:
„Þessa hátíð gefur okkur guð,
guð, hann skapar allan lífsfögnuð,
án hans gæzku aldrei sprytti rós,
án hans náðar dæi sérhvert ljós.
Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð,
guð hefir kveikt, svo dýrð hans gætuð
séð;
jólagleðin ljúfa lausnarans
leiðir okkur nú að jötu hans."
Síðan hóf hún heilög sagnamál,
himnesk birta skein í okkar sál;
aldrei skyn né skilningskraftur minn
skildi betur jólaboðskapinn.
Margan boðskap hef eg hálfa öld
heyrt og munað fram á þetta kvöld,
sem mér kveikti ljós við ljós í sál, —
ljós, sem oftast hurfu þó sem tál.
Hvað er jafnvel höndum tekið hnoss?
Hismi, bóla, ský, sem gabbar oss;
þóttú vinnir gjörvallt heimsins glys,
grípur þú þó aldrei nema fis!
Arsól hver, sem öllu fögru hét,
ætíð hvarf á meðan rósin grét;
vorið hvert, sem bauð mér betri hag,
brást mér löngu fyrir vetrardag.