Heimili og skóli - 01.12.1946, Side 17

Heimili og skóli - 01.12.1946, Side 17
HF.IMILI OG SKÖLl 135 ætti ekkert skilt við sálnaveiðar stjórnmálaflokkanna eða annað slíkt. En hvað er svo um skólana? munu einhverjir spyrja. Hvernig leysa þeir sinn þátt af hendi? íslenzkir barna- skólar eru svo ungar stofnanir, að þar kemur varla til nokkur samanburður á því, sem var og er. En fullyrða má, að þeir hafi ekki getað tekið við þeirri byrði, sem heimiilin hafa létt af sér í þessum efnum. í fyrsta lagi hafa þeir engin skilyrði til að koma þarna í stað foreldranna, og í öðru lagi munu margir kennarar vera þau börn síns tíma, að hafa engan sérstakan áhuga á þessum þætti uppeldisins, þótt þeir geri annars skyldu sína. Þó að það sé erfitt að rökstyðja það, að hér sé á ferðum nokkur uppe'ldis- leg ihætta, er mér þó næst að halda, að svo sé. Hnignun trúarlífsins hefur í för með sér hnignun hinnar andlegu menningar, og þegar trúin er farin, er siðgæðinu hætt. Þetta hefur sagan sýnt á ölluim öldum. Hin ytri menning getur að vísu blómgast og borið hina girnilegustu ávexti. Henni getur fleygt ifram eftir hinum vísindalegu leiðum, og hún getur bætt hinn ytri hag mannanna barna og skapað efnislega velmegun, en hrörnunin kemur fram fyrr eða síðar með hinum ólíkustu sjúkdóms- einkennum. Og „Allir þeir, sem guði sínuim gleyma, þeir glata fyrstir sinni þjóð,“ segir Davíð. Ég segi þetta ekki í nafni neinnar sérstakrar trúmálastefnu eða flokks, heldur blátt áfram af því, að mér virð- ist þetta blasa við frá bæjardyrum heilbrigðrar skynsemi. VI. Ein tegund þeirra gerfitrúarbragða, sem mjög hefur látið til sín taka á síðari árum, er trúin á skipulagið. Skipulag og aftur skipulag hefur orðið að eins konar lausnarorði, sem átti að leysa alla hnúta mannlegra vandamála. En að sama skapi sem skipulagið ihefur náð fastari tökum á menningunni, hefur hún orðið and- lausari. Ekki þó vegna þess, að skipu- lagning sé í nokkurri andstæðu við sanna menningu, heldur þvert á móti. Nei, hér höfðu aðeins þeir menn um vélt, sem trúðu aðeins á skipulagið, andlega menningin var aukaatriði. Þessi blinda oftrú á rnátt skipu- lagsins hefur líka orðið örlagarík nú þegar. Hún hafði byrjað á 'hinu smassta, en endaði með því að skipu- leggja hugsunarhátt þjóðfélagsþegn- anna og skoðanir, þar til allir voru orðnir að andlegum þrælum. Ríkis- hugtakið var gert að guði, sem allt varð að lúta. Skipulagið er nauðsynlegt, eins og andrúmsloftið. Það er eitt af grund- vallarski'lyrðum allrar imenningar, en það er ekki allra meina bót. Það er farvegur menningarinnar, en ekki mennnigin sjálf, tæki, en ekki tak- mark. Þetta skyldu allir þeir hafa í huga, sem trúa á mátt hinnar frjálsu hugsunar og frjálsa samstarf til að skapa sanna menningu. Ég sagði hér að framan, að endur- bygging hins nýja heims ætti að hefj- ast í mannssálunum, og það af þeirri ástæðu, að þar 'liggja dýpstu rætur allrar menningar. Eftir þeim leiðum verður maðurinn að ifinna sjálfan sig

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.