Heimili og skóli - 01.12.1946, Side 23
Bókaverzlun Þ. Thorlacius
á Akureyri hefur alltaf gert sér sérstakt far ura
vera birg af alls konar sltólavörum^
sem kröfur tímans hafa heimtað, og auk þess reynt að
innieiða nýungar á því sviði. — Það er því öruggt fyrir
kennara og skólastjóra að snúa sér til verzlunarinnar
til þess að fá leyst úr flestum vöntunum til skóla sinna
á flestum þeim skólavörum, sem þörf er fyrir.
Góðar bækur handa börnum
Kvæðabókin okkar
Bók þessi hefur að geyma 33 söngljóð handa börnum. Höfundur er Steindór Sigurðs-
son, skáld, sem einnig hefur teiknað myndir 'í bókina. — Það mun varla leika á tveim
tungum, að þetta séu fyndnustu og skemmtilegustu söngljóð, sem völ er á handa
börnum.
Við Álftavatn
Þetta er ný, myndskreytt útgáfa af hinum einkar vinsælu barnasögum Olafs Jóhanns
Sigurðssonar. Hefur bók þessi verið ófáanleg um allmörg ár, og alltaf jafn mikil eftir-
spurn eftir henni. — Gefið börnunum „Við Álftavatn“.
Hvíti selurinn
Undurfögur og heillandi saga eftir enska skáldjöfurinn Rudyard Kipling, í snilldar-
þýðingu dr. Helga Pjeturss. — Fáar sögur eru líklegri til að auka hugmyndaauðgi
barna en þessi fagra saga um selinn unga, ferðalag hans um heimshöfin og ævitakmark.
UM SUMARKVÖLD - HLUSTIÐ KRAKKAR - SKÓGARÆVINTÝRI KALLA LITLA
Bókaútgáfa Pálma H. Jónssonar
---...-----—--------------------------------■— ------------------——-----*