Heimili og skóli - 01.12.1950, Blaðsíða 12

Heimili og skóli - 01.12.1950, Blaðsíða 12
128 HEIMILI OG SKÓU DR. ÁSE GRUDA SKARD. Börn og peningar. Hinn norski barnasálfræðingur, Áse Gruda Skard, sem sjálf er fimm bama móðir, ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum ákveðna upphæð af peningum vikulega, allt frá 4—5 ára aldri. Aðeins tvo eða fimm aura á viku, en upphæðin hækki svo auðvitað, eftir því sem bamið eldist. Þá kemur hún að þeirri vandasömu spurningu, hvort greiða eigi börnum ýmis þau verk, sem þau kunna að vinna á heim- ilunum. Ykkur er það ef til vill ógeðfellt, að rætt sé um peninga í sambandi við barnauppeldi. Þér hafið ef til vill þá skoðun, að þegar börn fá allt það, sem þau þurfa með til daglegra þarfa, og svo fáeina aura fyrir aðgöngumiða í kvikmyndahúsið, sé allt gott og bless- að. En peningarnir hafa miklu hlut- verki að gegna í lífi okkar, hvort sem okkur líkar það vel eða illa. ,,Hvað kostar þetta? Hefur verðið hækkað? Þetta er sannarlega dýrt. Við verðum að fá launahækkun. Við verð- um að spara.“ Eru þetta ekki setning- ar, sem við heyrum og lesum oft á dag? Það, sem við vinnum okkur inn og það, sem við eyðum, er grundvöll- urinn undir daglegu lífi okkar. Börnin verða að læra sitt hvað um þennan grundvöll. Það er ekki nægi- legt að afgreiða þau með einstökum setningum, svo sem: „Við höfum ekki efni á því .Þú mátt ekki sóa burt pen- ingunum.“ Og það er heldur ekki nóg, að þau læri grundvallaratriði venju- legrar bókfærslu í skólanum. Aðeins reynslan ein getur kennt okkur þá list að halda ætíð jafnvægi á milli tekna og gjalda í daglegu lífi. Höfum við ekki efni á að gefa böm- um okkar peninga? Við gætum einn- ig spurt, hvort við hefðum efni á að láta börnin okkar ganga í skóla. Bæði peningamir og skólinn eru mikilvæg- ir aðilar að því að gera bömin að nýt- um þjóðfélagsborgurum. Og þeim peningum, sem við gefum börnum okkar, er ekki á glæ kastað. Þeir eiga, undir flestum kringumstæðum, að spara okkur einhver útgjöld. Og þeg- ar við fáum börnunum þessa peninga í hendur, á að koma því þannig fyrir, að við séum um leið losuð við ein- hver ákveðin útgjöld. Það má gefa börnum peninga á tvennan hátt: Þau geta fengið fasta viku- eða mánaðarpeninga, og þau geta unnið fyrir peningum með einhverju starfi. Böm eiga að fá fasta vikupen- inga allt frá 4—5 ára aldri. Það mætti t. d. nefna 2—5 aura á viku. (Þyrfti að vera eitthvað hærra hér á landi. Rstj.). Það er betra fyrir þau að fá litla upp- hæð vikulega en stærri upphæð t. d. mánaðarlega, því að börn sjá ekki yfir langan tíma í einu. Þegar barnið eld- ist, má auka þessa upphæð. þegar það er orðið 7—8 ára mætti t. d. gefa því 20—25 aura á viku. Og þegar það er orðið 10—12 ára, mætti gefa því 40—50

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.