Heimili og skóli - 01.12.1950, Blaðsíða 28
144
HEIMILI OG SKÓLI
arri hvorri blaðsíðu er forkunnarfögur lit-
mynd frá hinu ævintýralega lífi Snorra, og
gefur það bókinni mikið gildi. Og ekki trúi
ég öðru en að þessar fögru myndir eigi eftir
að skemmta mörgum börnum. Þetta er falleg
barnabók, sem óhætt er að mæla með.
Elsa litla, eftir A. Chr. Westergaard.
Sigurður Gunnarsson, skólastjóri ís-
lenzkaði.
Höfundur þessarar bókar er svo þekktur
á íslandi, að óþarfi er að kynna hann. Marg-
ar bækur hans hafa verið þýddar á íslenzku
og allar hlotið miklar vinsældir. Þessi bók er
um litla stúlku, 5 ára gamla. Faðir hennar
er listmálari, en móðir hennar fiðluleikari,
og eru bæði mjög laus við heimili sitt. Ellu
litlu er því komið fyrir hjá frændfólki sínu
vestur á Jótlandi. Sagan hefst á ferð hennar
þangað vestur, og segir síðan frá dvölinni
hjá frændfólkinu. Ella litla er óvenjulega
skemmtilegt barn, sem kemur öllum í gott
sksp. I kringum hana er alltaf eitthvað að
gerast og flest broslegt og ævintýralegt. Bók-
in er prýdd nokkrum myndum eftir Atla Má,
og þýðingin er ágæt.
Litla bangsabókin. Vilbergur Júlíus-
son íslenzkaði.
Þetta er bók fyrir allra yngslu lesendurna
r, ' ■■ ?
HEIMILl OG SKÓLI
TÍMARIT UM UPPELDISMAL
Útgefandi: Kennarafélag EyjafjarSar.
Ritið kemur út f 6 heftum á ári, minnst
24 síður hvert hefli, og kostar árgangur-
inn kr. 15.00, er greiðúa fyrir 1. júni.
Útgdfustjórn:
Snorri Siefússon. námsstjóri.
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Páll Gunnarsson, kennari.
AfgreiSslu- og innheimtumaSur:
Árni Björnsson, kennari, Þórunnar-
stræti 103, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, Páls Briems-
götu 20, Akureyri. Sími 1174.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
ú-------- . —>
og er eftir sama höfund og Stubbur, sem varð
mjög vinsæl. Bókin er mestmegnis myndir
af Bangsa og úr lífi hans, ásamt lítilsháttar
lesmáli. Þetta er góð bók fyrir lítil börn, sem
eru að byrja að stauta.
Svo eru jólabækurnar skoðaðar.