Heimili og skóli - 01.12.1950, Blaðsíða 22

Heimili og skóli - 01.12.1950, Blaðsíða 22
138 HEIMILI OG SKÓLI dreng, sem svaf í annarri rekkju. Það var drengur á aldri við hann. Ríkis- mannssonurinn horfði á drenginn um stund. Rúmið hans var fátæklegt. Allt umhverfis hann var fátæklegt, en um varir drengsins lék bros, yndislegt bros, það var eins og öll gleði lífsins og hamingja byggi í þessu brosi. „Hann er víst að dreyma eitthvað fallegt,“ hvíslaði ríkismanssonurinn. „Það getur vel verið,“ mælti engill- inn. „En hann sofnaði með þetta bros á vörunum, þetta er bros dagsins, þetta er bros jólagleðinnar.“ „En hvar eru jólagjafirnar?" spurði ríkismannssonurinn. „Komdu með mér,“ bauð engillinn aftur. Og hann fór með hann heim til blindu konunnar. „Sjáðu, hér er jólagjöf fátæka drengsins og fátæku konunnar.“ Hann fór með ríkismannssoninn heim til gamla mannsins og mælti: „Sjáðu, hérna er gjöf fátæka drengs- ins og fátæku konunnar til þessa ein- stæða, gamla manns.“ Og hann fór með ríkismannssoninn að beði veika drengsins og mælti: „Sjáðu, hér er gjöf fátæka drengs- ins og fátæku konunnar til þessa ein- mana, sjúka drengs." Ríkismannssonurinn þagði. Hann skildi þetta ekki enn. Hann bað eng- ilinn að lofa sér að koma heim til fá- tæka dregsins aftur. Og þeir voru þar eftir andartak. ----„En ég var að spyrja um jóla gjafirnar hans, jólagjafirnar sem hann fékk sjálfur." „Hann fékk engar jólagjafir." „Fékk hann engar jólagjafir? Eng- ar bækur?“ „Nei, engar bækur.“ Engar flugvélar eða bíla?“ „Nei, engar flugvélar eða bíla.“ „Ekki skíði eða sleða?“ „Nei, engin skíði eða sleða.“ „Ekki spil, vasahníf eða tindáta?" „Nei, ekki spil, vasahníf eða tin- dáta.“ „Ekki peninga eða peningaveski?" „Nei, ekki peninga eða peninga- veski.“ „Fékk hann þá ekki ávexti eða sael- gæti?“ „Nei, enga ávexti eða sælgæti." „Af hverju var hann þá svona glaður?“ „Hann gaf jólagjafir. Og mundu það, að það skapar miklu meiri gleði að gefa gjafir en þiggja gjafir." „Hvernig voru þá jólin haldin hér?“ Engillinn benti á hálfbrunnið kerti í skínandi fögrum stjaka. Hann benti honum á gamla sálmabók og gamalt nýjatestamenti. „Sjáðu!“ sagði engill- inn og benti með fingrunum á 2. kapítula í Lúkasarguðspjalli. „Þarna er jólaboðskapurinn. Sá, sem gleym- ir jólabarninu, finnur aldrei jólagleð- ina.“ Engillinn hvarf, kofinn hvarf. Rík- ismannssonurinn lá í hvítu rekkjunni sinni. Hann mundi eftir öllu, sem við hafði borið. Var það draumur, eða hafði þetta gerzt í raun og veru? En hvað þetta var undarlegt. Og hvað hafði engillinn sagt síðast? Jú, hann mundi það: „Sá, sem gleymir jólabarninu, finn-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.