Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 20
72
HEIMILI OG SKÓLI
Attrœhur:
Jón P. Bj örnsson,
fyrverandi skólastjóri
Jón Þ. Björnsson er fæddur að Háa-
gerði í Húnavatnssýslu 15. ágúst árið
1882. Foreldrar hans voru merkishjón-
in Björn hreppstjóri og Dannebrogs-
maður Jónsson og Þorbjörg Stefáns-
dóttir frá Heiði í Gönguskörðum. Jón
varð gagnfræðingur frá Möðruvöllum
árið 1899. Seinna stundaði hann nám
í kennaraskólanum á Jonstrup á Sjá-
landi og tók þaðan kennarapróf. Þá
ferðaðist hann um Norðurlönd og
sótti kennaranámskeið á Kennarahá-
skólanum í Höfn. Hann fór löngu
seinna námsför til Ameríku.
Þegar heim kom, varð hann kennari
á Sauðárkróki, og skólastjóri var hann
við Barnaskóla Sauðárkróks frá 1908—
1952 eða 44 ár. Auk þess var hann
skólastjóri við unglingaskólann á Sauð-
árkróki í 38 ár. Þetta hefði verið nægi-
legt ævistarf, en hann hafði svo mikla
starfsorku og var alltaf brennandi af
áhugamálum, að honum nægði þetta
ekki. Hann sat í hreppsnefnd fjölda
ára og var meðal annars lengi oddviti
hreppsnefndar. Þá tók hann mikinn
þátt í félagsmálum barnakennara og
stóð þar oft í broddi fylkingar. Þá hef-
ur hann unnið geysilega mikið starf
fyrir Góðtemplararegluna, ekki sízt
börnin og unglingana og stóð þar í
fylkingarbroddi um hálfrar aldar
skeið. Þá má ekki gleyma starfi hans
fyrir kirkju og kristindómsmál, en það
Jón Þ. Björnsson.
hvort tveggja stóð mjög nærri hjarta
hans. Þá vann hann mikið fyrir Ung-
mennafélag staðarins, dýraverndunar-
félagið og Rauða krossinn. Jón beið
alls staðar með framréttar hendur þar
sem eitthvað þurfti að vinna að mann-
úðarmálum. Hann var alls staðar þar,
„sem lítið lautarblóm langar til að
gróa“. Jón getur litið til baka yfir