Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Qupperneq 28

Heimili og skóli - 01.08.1962, Qupperneq 28
80 HEIMILI OG SKÓLI Opægilegar spurningar EFTIR ART BUCKWALD Ég fór í kvikmyndahús með syni mínum í gær. Myndin fjallaði um áhöfn á kafbáti, sem Japanir tóku til fanga. Á leiðinni heim sagði drengur- inn við mig: „Japanirnir voru vondir, þegar þeir fóru svona með Ameríkan- ana. Voru þeir það ekki?“ „Jú,“ svaraði ég. „En nú eru þeir ekki vondir lengur, því að þetta gera þeir aldrei nú.“ Hann hugsaði um þetta litla stund, en hélt síðan áfram: „Hvers vegna voru þeir svona vond- ir þá?“ „Þeir háfa víst ekki vitað, að þetta var ljótt.“ „Hvers vegna var þá enginn, sem sagði þeim það?“ „O, við vorum alltaf að reyna að segja þeim það, en þeir hlustuðu bara ekki á okkur.“ „Eru Þjóðverjar ekki vondir? Manstu ekki eftir kvikmyndinni þar sem þeir börðu vesalings mennina og börnin í fangabúðunum?“ „Jú, þeir voru vondir," sagði ég. „En nú eru þeir góðir.“ „Eru þá komnir nýir menn í land- ið?“ spurði hann. „Nei, það eru sömu mennirnir, að minnsta kosti niargir. En sjáðu nú til: Þegar stríðinu lauk, urðum við að gleyma því, sem vondu mennirnir höfðu gert, annars hefði komið nýtt stríð." Hann leit á mig stórum, undrandi augum. „Drapst þú nokkurn Rússa í stríð- inu?“ spurði hann næst. „Nei, því að í stríðinu voru þeir með okkur.“ „Já — en — ef þeir voru góðir menn í stríðinu og drápu þá vondu, hvers vegna eru þeir þá vondir nú?“ „Þeir eru ekki vondir nú. Flestir Rússar eru góðir menn. En við erum ekkert hrifnir af því, sem leiðtogar þeirra segja og gjöra, og þeim er ekk- ert vel við það, sem við segjum og gjörum. Það er þess vegna, sem þetta óstand er í Þýzkalandi. Sjáðu nú til: Eftir stríðið var Þýzkalandi skipt í tvo hluta. Rússarnir réðu yfir öðru hlut- anum og við yfir hinum. Og nú vilja hinir vondu Þjóðverjar á rússneska svæðinu reka góðu Þjóðverjana frá Berlín." „Hvers vegna drepa Rússarnii ekki vondu Þjóðverjana?" „Ja — Rússunum finnst ekki þeirra Þjóðverjar vera vondir. Þeim þykja sínir Þjóðverjar góðir. En þeim þykir sem okkar Þjóðverjar séu vondir. Okk- ur finnst aftur þeirra Þjóðverjar, að minnsta kosti leiðtogar þeirra — vera vondir, en okkar Þjóðverjar góðir. Skilur þú þetta?"

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.