Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Side 33

Heimili og skóli - 01.08.1962, Side 33
HEIMILI OG SKÓLI 85 Mér var það Ijóst, að allt það hatur, sem Virgil bjó yfir hið innra, varð að fá útrás, áður en þar yrði rúm fyrir hlýrri og göfugri tilfinningar,“ segir Bill Newhall. „Hverju sinni, er ég varð þess var, að reiðin var að fá yfir- höndina hjá Virgil, kom ég því svo fyr- ir, að við fórum að fást við eitt eða annað starf, sem krafðist umhugsunar, til dæmis að fella tré eða eitthvað ann- að. Það leysti venjulega vandann. En ég var staðráðinn í því, að hvað sem hann kynni að segja við mig eða gera, skyldi ég aldrei leggja hendur á hann. Eg ætlaði að sýna honum, að reiði hans skyldi aldrei geta komið mér úr jafnvægi. — Það leið stöðugt lengri og lengri tími á milli reiðikasta Virgils, en þó bar svo við einn dag, að hann hótaði að fara að heiman. „Ég óttað- ist,“ sagði frú Newhall, „að ef barna- verndarnefndin kæmist að því, að hann væri strokinn að heiman, myndi hún taka hann af okkur fyrir fullt og allt.“ Bill Newhall sendi konu sína út í eldhús og bað hana að baka nokkrar bollur, en það var uppáhaldsréttur Virgils. Þegar drengurinn kom svo nið- ur stigann, hélt hann á dálitlum fata- böggli undir hendinni. „Vertu sæll!“ sagði hann þungbúinn á svip. Bill Newhall leit upp frá blaðinu, sem hann var að lesa og sagði glaðlega: „Vertu sæll! Sendu okkur nú nokkrar h'nur, þegar þú ert búinn að fá eitt- hvað að gera.“ Ilmurinn af nýbökuðum bollunum lagði um allt húsið. Virgil gekk að glugganum og leit út yfir akrana. „Ef ég fer nú alfarinn, hver á þá að gefa hænsnunum?" spurði hann. Hann stóð kyrr eitt andartak, en sagði síðan: „Það er nú líklegt, að þið þurfið mín með. Hvað á að borða í dag?“ Hann gekk aftur upp á loft og losaði sig við fataböggulinn. — Nú uppgötvaði Newhall nokkuð, sem allir foreldrar vita, er eiga fleiri en eitt barn: Að það er að mörgu leyti auðveldara að hafa tvö börn en eitt, og þá skiptir heldur ekki miklu þótt þriðja barninu sé bætt við. Kunningi þeirra hjóna, sem hafði verið í sumarleyfi í Kanada, sagði, þegar hann kom heim, frá Indíána- fjölskyldu sem bjó í hinu aumasta hreysi og við hinar erfiðustu ástæður. Myndi það koma til mála, að þau Newhallshjónin vildu ættleiða eitt af þessum sveltandi börnum, t. d. hana Mónu litlu, sem var sjö ára gömul? Já, þau hjónin samþykktu það orða- laust. Enn einu sinni sendu viðkom- andi yfirvöld nauðsynlegustu skjöl og hristu höfuð sín. Síðan ók öll. fjöl- skyldan til Kanada til að bjóða hinn nýja fjölskyldumeðlim velkominn. „Þegar við ókum að kofadyrunum," segir frú Newhall, „hélt ég að móðir- in ætlaði að bresta í grát. Ég átti líka fullt í fangi með sjálfa mig. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég hafði tekið barn frá móður sinni.“ Konan opnaði bíldyrnar og setti Mónu litlu í aftursætið milli drengj- anna tveggja. Síðan tók hún um hönd litlu stúlkunnar sinnar, þrýsti henni eitt andartak að vanga sínum og gekk síðan inn í kofann aftur. Hún hafði gefið Mónu vegna þess, að nokkur börn hennar höfðu fengið berkla og

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.