Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Blaðsíða 27

Heimili og skóli - 01.08.1962, Blaðsíða 27
HEIMILI OG SKÓLI 79 Þótt Jóhannes næði alls ekki heilsu sinni á ný á þessu ári, og raunar ekki fyrr en eftir alllangt árabil, sinnti hann alltaf kennslustarfi sínu meira og minna og lengst af að fullu. Þjón- ustualdur hans sem kennari er því orðinn óvenju langur, eða samfellt 44 ár í Húsavík. Eins og nærri má geta komast slíkir hæfileikamenn sem Jóhannes Guð- mundsson engan veginn hjá því að taka að sér trúnaðarstörf fyrir byggð- arlag sitt, auk aðalstarfsins. Hann hef- ur lengi átt sæti í hreppsnefnd og stjórnum ýmissa félaga og leyst þar af hendi mikið og fórnfúst starf, ekki sízt í þágu bindindis- og barnaverndar- mála. Bindindissamtökin eiga þar einn af sínum beztu og traustustu fulltrú- um og raunar öll samtök, sem vinna markvisst að hollu uppeldi æskunnar. — Á fyrri hluta ævinnar var Jóliannes lengi vegaverkstjóri á sumrum norð- anlands. Jóhannes er mikill hamingjumaður í einkalífi. Hann er kvæntur frábærri konu, Sigríði Sigurjónsdóttur, ættaðri af Tjörnesi. Hún hefur ekki aðeins búið bónda sínum og börnum úrvals heimili af sinni kunnu umhyggju og smekkvísi, heldur einnig reynzt það bjarg, sem aldrei bifaðist, meðan erf- iðleikaárin stóðu yfir, vegna heilsu- leysis húsbóndans. Andlegur styrkur liennar og trú á tilgang og fegurð lífs- ins hefur aldrei haggazt. Börn þeirra hjóna eru fjögur: Sjöfn, húsfreyja á Fjöllum í Kelduhverfi, gift Héðni Ólafssyni bónda þar, Sigurjón, skólastjóri í Húsavík, kvæntur Herdísi Guðmundsdóttur, Ásgeir Guðmund- ur, fulltrúi í Reykjavík, kvæntur Sæ- unni Sveinsdóttur, og Gunnar Páll, kjötiðnaðarmaður, Húsavík, kvæntur Arnbjörgu Sigurðardóttur. Ég átti því láni að fagna að vera ná- inn samstarfsmaður Jóhannesar Guð- mundssonar um tuttugu ára tímabil og þekki hann því vel af okkar löngu og margvíslegu samskiptum. Ég tel það happ fyrir nrig að hafa fengið að kynnast þessum ágæta mannkosta- manni, sem alltaf var reiðubúinn að leggja hverju góðu máli lið, og alltaf tilbúinn til aðstoðar og samstarfs, öll þessi ár, hvernig sem á stóð. Mér er því jafnan einkar ljúft að minnast hans og hans ágætu konu og barna. Um leið og ég þakka Jóhannesi hjartanlega allt okkar ánægjulega sam- starf, óska ég honum gæfu og góðrar heilsu um langt árabil enn. Ég sendi eitt sinn Jóhannesi, vini mínum, tvær vísur, sem hann er senni- lega búinn að týna, en eiga alveg eins við í dag og þá. Er því bezt að þær fylgi hér með að lokum: Fyrir kynnin fornu og nýju færðu, vinur, þökk í dag: fyrir þína hjartahlýju, hollu ráð og gleðibrag. Njóttu enn þá lífsins lengi, lifðu sæll við störfin þín. Gæfudís á gullinstrengi gleðiljóð þér kveði sín. Sigurður Gunnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.