Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Side 25

Heimili og skóli - 01.08.1962, Side 25
HEIMILI OG SKÓLI 77 in okkar, skulum við gera það með til- liti til framtíðarinnar eins og þegar við tölum við þau um kynferðislífið, stjórnmál eða eðlisfræði. Og svo verð- um við að vona, að þegar þau vaxa og þroskast, fleygi þau sem minnstu af því, sem við höfum kennt þeim. Loks megum við ekki gleyma því, að við er- um í raun og veru alltaf að kenna börnunum okkar sitthvað um trúar- brögðin — viljandi eða óviljandi, ekki aðeins með því, sem við segjum, held- ur hinu, sem við gerum. Benjamín Spock sagði einhverju sinni: „Barnið skapar sér ósjálfrátt mynd af Guði, sem minnir á föðurinn, aðeins miklu stórltrotnari og fullkomnari." Það eru gerðar strangar kröfur til foreldra í þessum efnum, ef þeir eiga að leika þarna hlutverk Guðs sem fyr- irmynd. En annars á þetta að koma af sjálfu sér. Eins og allt hið verðmætasta í lífinu, er trúarþelið og trúhneigðin ekki nein námsgrein heldur afstaða til Guðs, sem við eigurn að vaxa inn í. Við getum einnig orðað það þannig, að trúarbrögðin séu ekki langur listi af svörum við spurningum okkar um þessa hluti, heldur reynsla, dýrmæt undrunarkennd og þakklætistilfinning, ásamt hryggð yfir vorum eigin tak- mörkunum. Þau eru lotning fyrir sköpunarverki alheimsins og veldi þess. Þau eru kærleikur til þeirra manna og þess lífs sem umlykur okkur. „Trúarbrögðin eru ekki þekking, heldur þrá í hjörtum vorum,“ sagði þýzka skáldið Rainer Maria Rilke. Til gamans Þegar sonur minn, 14 ára gamall, hafði vaðið elginn í símanum hálfa klukkustund, vakti það athygli mína, að allt í einu varð hljótt í dagstofunni, þar sem síminn var. Af forvitni opnaði ég dyrnar og sá þá að hann lá endilangur í legubekknum; var að borða brauðsneið, en símtólið lá á borðinu hjá símatækinu. „Hvers vegna leggur þú ekki símtólið á?“ spurði ég. „Við erum ekki búin að tala út, en hún var orðin svo svöng, og ég fékk mér þá bita líka.“ J- F. Má ég spyrja, lierra kennari? Það var laugardagur. Við vorum að tala um jörðina, i bekknum, og nú hafði þvl verið spáð, að hún ætti að farast. Reikningskenn- arinn okkar sagði í gamni, að þegar við kæmum í skólann næsta mánudag, yrðu að- eins þeir beztu og duglegustu eftir, en allir vondu mennirnir myndu farast. Nú varð dauðakyrrð í bekknum nokkra stund, en þá heyrðist rödd aftan úr kennslustofunni: „Hver á þá að kenna okkur reikning, herra kennari"? Skólafélagi. Litli heimspekingurinn. Lítil frænka mín, fjögra ára gömul, hafði kighósta og eina nótt þegar hún fékk mjög vonda hóstakviðu og móðir hennar hélt um enni hennar, spurði húu þreytulega: „Mamma, heldur þú að ég deyi?“ „Nei, vina mín,“ svaraði móðir hennar. „Ja, það væri nú líka skammarlegt, þegar ég er svona hér um bil ný,“ svaraði María litla. H. J. M. þýddi. Frænkan.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.