Heimili og skóli - 01.08.1962, Blaðsíða 29
HEIMILI OG SKÓLI
81
Barnalieimilið á Litlu-T jörnum
Barnaheimilið
á Litlu-Tjörn-
um.
Undanfarin sex ár hafa nokkrar
fórnfúsar konur á Akureyri rekið
barnaheimili á Litlu-Tjörnum í Ljósa-
vatnsskarði. Keyptu þær jörðina með
íbúðarhúsi og er barnaheimilið sjálfs-
eignarstofnun. Þá byggðu þær borðsal
við íbúðarhúsið. Hafa þær lagt fram
bæði vinnu og mikið fé í þessu skyni.
Formaður barnaheimilisnefndar hefur
verið frá upphafi G'uðrún Sigurgeirs-
dóttir, Akureyri.
í vor treystu þessar konur sér ekki
að reka heimilið lengur og buðu Góð-
templarareglunni á Akureyri að taka
við rekstrinum.
Það varð að ráði, að Reglan tók við
„Nei,“ sagði hann.
„Ja, ég get ekki gert að því,“ sagði
ég. „Ég hef aldrei þekkt dreng, sem
kemur míeð svo margar kjánalegar
spurningar.“
rekstri heimilisins í vor. Voru gerðar
þar ýmsar endurbætur á húsinu, máln-
ing o. fl. áður en barnaheimilið tók til
starfa. Unnu félagar Reglunnar þetta
allt í sjálfboðavinnu.
í sumar hefur svo þarna verið barna-
heimili með 28—30 börnum, og er
heimilið þá fullskipað. Fjórar konur
hafa starfað við barnaheimilið og hef-
ur frá Jónína Jónsdóttir á Akureyri
verið forstöðukona.
Fyrirhugaðar eru nokkrar fleiri end-
urbætur þarna fyrir næsta ár. Þegar
þeim et lokið, hefur þarna ekki aðeins
opnazt möguleiki til að hafa þarna
börn að sumrinu, heldur mætti einnig
hafa þarna námskeið fyrir unglinga á
vorin og síðari hluta sumars. Er sjálf-
sagt að bærinn notfæri sér slíkt heim-
ili í sveitum, sem eru undir yfirráð-
um bæjarbúa.
Eirikur Sigurðsson.