Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 32

Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 32
84 HEIMILI OG SKÓLI inn hlustaði hann á hið háttbundna hljóð þvottavélarinnar og hafði ganr- an af. Hann söng austurlenzk fög undir. Það leið ekki á löngu þar til hann kunni svo mikið í sínu nýja móður- máli, að hann gat farið að ganga í skóla. Hinir gömlu bekkjarfélagar Martins buðu hann velkominn á leik- völlinn. Athuganir leiddu í ljós, að liann var gæddur ágætum hæfileikum. Einhverjir mestu aðlögunarerfiðleikar lians fólust í því, að hann gat lengi vel ekki vanið sig á að sitja á stóli og við borð. Hann vildi sitja flötum beinum á gólfinu, með krosslagða fætur. Um það bil ári seinna, þegar Kim var að fullu búinn að venjast siðunr og háttum á bændabýlinu í Vermont, kom kunningjakona þeirra Newhalls- hjónanna heim úr löngu ferðalagi og sagði átakanlega sögu af Indíánafjöl- skyldu, sem bjó við hin hörmulegustu kjör vegna drykkjuskapar föðurins. Hann hafði barið börnin sín, svo að við misþyrmingum lá, og barnavernd- arnefndin sá sér því ekki annað fært en taka þau af honum. Hún skýrði frá því, að einn drengur, Virgil að nafni, ætti sérstaklega bágt. „Þetta er átta ára drengur, sem býr nú sem stendur á barnahæli í nánd við Denver í Colorado," sagði konan. Frú Newhall segir: „Okkur þótti sem það yrði skemmtilegt fyrir Kim, að eignast leikfélaga, sem var kominn af frumbyggjum Ameríku." Yfirvöldin í Colorado og Vermont veittu okkur leyfi til að ættleiða þenn- an dreng og Bill Newhall fór til Den- ver að sækja hann. „Mér lá við tauga- áfalli, þegar ég sá hann,“ sagði New- hall. Hann var jafnaldri Kims en ná- lega tvöfalt stærri. Það var auðséð, að hann hafði ekki skort mat. En hann var auðsjáanlega fullur af þrjózku og reiði. Hverju sinni, sem ég spurði hann vingjarnlega að einhverju, svar- aði hann ætíð í reiðitón. Mér varð það ljóst, að það fyrsta, sem hann varð að skilja var það, að faðir ávinnur sér virðingu og traust með kærleika, góðu fordæmi og með því að vera góður félagi, en ekki með hörku. Á leiðinni heim að bvlx okkar ókurn við fram hjá sundlaug. Við nám- um þar staðar til að fá okkur bað. Eg kenndi honum að fleyta sér, og við æfðum okkur á að standa á höfði í vatninu og mér kom í hug, að það væri líklega ekki svo vitlaust að sýna piltin- um hvað ég gæti. Ég er gamali fim- leikakennari, og nú reyndi ég nokkrar dýfingar af palli, sem ég hafði ekki iðkað í síðastliðin tuttugu ár. Og nú heyrði ég að einhver drengur spxxrði: „Hver er lxann þessi þarna?“ Þá svar- aði Virgil stoltur á svip: „Þetta er hann faðir minn.“ Nú vissi ég að þetta liafði verið ómaksins vert, þótt ég hefði kannski bakverk daginn eftir. Drengjunum kom ákaflega vel sam- an. En það varð að hjálpa Kim, sem var dálítið kjarklaus, til að hafa í fulltl tré við hinn stóra Virgil. Hann varð að eignast sjálfstraust, en skapsmuni sína varð Virgil aftur að temja. Til þess að hressa upp á sjálfstraust Kims kenndi frú Newhall honum að leika á harmoniku. Auk þess fékk hún hon- um það hlutverk að hirða gyltuna, sem nú átti von á grísum.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.